Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Matvöruverð hækkar þrátt fyrir boðaðar verðlækkanir

Dag­vöru­vísi­tala ASÍ hækk­aði um 0,33 pró­sent frá ágúst til nóv­em­ber. Hækkanir á kjöti og mjólk­ur­vörum vógu þyngst.

Matvara
Matvara Dag­vöru­vísi­tala ASÍ hækk­aði um 0,33 pró­sent frá ágúst til nóv­em­ber.

Dag­vöru­vísi­tala ASÍ hækk­aði um 0,33 pró­sent frá ágúst til nóv­em­ber. Verð­lækk­anir voru þó tals­vert algeng­ari en áður, einkum í Bónus þar sem verð lækk­aði á rúm­lega 31 pró­senti vara.

Þrátt fyrir að versl­anir hafi í sept­em­ber boðað verð­lækk­anir og verð­fryst­ingar í því skyni að stuðla að auknum verð­stöð­ug­leika hefur mat­vöru­verð áfram hækkað. Þetta kemur fram í nýrri verð­könnun Verð­lags­eft­ir­lits ASÍ.

Dag­vöru­vísi­tala ASÍ hækk­aði um 0,33 pró­sent á tíma­bil­inu ágúst til nóv­em­ber. Hækkunin er þó minni en verið hefur frá upp­hafi árs, en á fyrsta árs­fjórð­ungi hækk­aði vísi­talan að með­al­tali um 0,66 pró­sent á mán­uði.

Það eru fyrst og fremst hækk­anir á kjöti og mjólk­ur­vörum sem skýra hækk­un­ina. Nauta­kjöt vegur þar þungt og skýrir meira en helm­ing hækk­unar vísi­töl­unnar. Verð á fiski og græn­meti hefur einnig hækkað.

Á móti hafa verð­lækk­anir að mestu verið bundnar við inn­fluttar vörur.

Mest um verð­lækk­anir í Bónus

Verð­lags­eft­ir­lit ASÍ mældi aukna tíðni verð­lækk­ana á tíma­bil­inu. Þær voru umfangs­mestar í Bónus, þar sem verð lækk­aði á 31,4 pró­sentum vara. Jafn­framt hækk­aði verð á 22,6 pró­sentum vara en verð stóð í stað á um 46 pró­sentum.

Í Krónunni lækk­aði verð á 16,1 pró­senti vara, en hækk­aði á 18,6 pró­sentum. Verð var óbreytt á 65,4 pró­sentum vara.

Hjá Nettó lækk­aði verð á 13,8 pró­sentum vara og hækk­aði á 20,1 pró­senti. Verð stóð í stað á 66,1 pró­senti vara.

Verðbreytingar eftir verslunum

Hlutfall verðlækkana, óbreytts verðs og verðhækkana í lágvöruverslunum frá ágúst til nóvember 2026

31,4%
46%
22,6%
Bónus
16,1%
65,3%
18,6%
Krónan
13,8%
66,1%
20,1%
Nettó
10,9%
70,4%
18,7%
Prís
Lækkun
Óbreytt
Hækkun

Prís var með hæsta hlut­fall vara þar sem verð stóð í stað, eða 70,5 pró­sent. Verð lækk­aði á 10,9 pró­sentum vara en hækk­aði á 18,7 pró­sentum.

Verðlag hækk­aði mest í Bónus

Þegar litið er til heild­ar­þró­unar dag­vöru­verðs hækk­aði vísi­talan mest í Bónus, um 0,49 pró­sent. Hækkunin var 0,4 pró­sent í Krónunni, en mun minni í Prís og Nettó, eða 0,06 pró­sent í Prís og 0,02 pró­sent í Nettó.

Mest verðhækkun hjá Bónus

Uppsöfnuð verðbreyting eftir verslunum frá ágúst til nóvember 2026

Bónus 0,49%
Krónan 0,4%
Prís 0,06%
Nettó 0,02%

ASÍ bendir þannig á að þrátt fyrir aukna tíðni verð­lækk­ana hafi mat­ar­verð í heild haldið áfram að hækka. Ólík verð­þróun inn­lendra og inn­fluttra vara skýri að stórum hluta þessa þróun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas