Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Húðflúr til styrktar heimilislausum dýrum: „Yfir 7000 dýr fengið heimili“

Þessar kanínur eru meðal þeirra dýra sem eru í heimilisleit hjá Dýrahjálp.
Þessar kan­ínur eru meðal þeirra dýra sem eru í heim­il­is­leit hjá Dýra­hjálp.

Húðflúrs- og göt­un­ar­stofan Blek­smiðjan býður við­skipta­vinum að fá sér flúr til styrktar Dýra­hjálp. 11 des­em­ber næst­kom­andi verður boðið upp á bæði húð­flúr og lík­ams­götun og rennur allur ágóði söl­unnar óskertur til styrktar Dýra­hjálp Íslands. Við­skipta­vinum er boðið að koma án þess að panta sér tíma og styrkja gott mál­efni í leið­inni. 28 dýr eru á vegum Dýra­hjálpar þessa stund­ina en aðeins hluti þeirra er aug­lýstur á vef­síð­unni þeirra. Aðeins er aug­lýst þau dýr sem eru til­búin að fara á sitt fram­tíð­ar­heim­ili.

Blaða­maður Mannlífs hafði sam­band við Dýra­hjálp sem gaf okkur þessar upp­lýs­ingar:

„Dýra­hjálp var stofnað á vor­mán­uðum árið 2008 og síðan þá hafa yfir 7000 dýr fengið heim­ili í gegnum vef­síð­una okkar dyra­hjalp.is og um 10% af þeim dýrum, eða yfir 700 dýr, hafa farið í gegnum fóst­ur­heim­ila­kerfið hjá okkur og fengið þannig ný fram­tíð­ar­heim­ili.

Markmið félags­ins er að leit­ast við að sjá dýrum sem þarfn­ast heim­ilis fyrir skjóli og stofna til þess dýra­at­hvarf og að vinna almenn­ing í land­inu til fylgis og stuðn­ings við dýra­vernd.

Dýra­hjálp tekur við dýrum í neyð sem þurfa ný heim­ili. Við veitum þeim dýrum sem við­fáum í fóstur við­eig­andi dýra­lækna­þjón­ustu þar sem þau eru heilsu­fars­skoðuð, bólu­sett, orma­hreinsuð, örmerkt og geld ásamt því að við greiðum fyrir aðrar nauð­syn­legar aðgerðir sem gætu komið upp.

Til þess að standa straum af kostn­aði félags­ins erum við reglu­lega með fjár­afl­anir og er þetta skemmti­lega sam­starf við Bleksmiðj­una hluti af því. En félagið er alfarið fjár­magnað með gjafa­féi og styrkjum ein­stak­linga.

Við verðum líka með sölu­vör­urnar okkar á staðnum þennan dag í Bleksmiðj­unni en þær fást líka á vef­verslun félags­ins og svo erum við með basara á ýmsum stöðum fyrir jólin, t.d. í Smára­lind 11.-12. des og svo jóla­mark­að­inum Heiðmörk 18.-19. des­em­ber.

Annars erum við mjög spennt fyrir þessum degi og erum ótrú­lega þakk­lát fyrir hvað hann er að fá mikla athygli og hvað margir eru búnir að skrá sig á við­burð­inn, Blek­smiðjan á miklar þakkir fyrir að hafa komið með þessa hug­mynd og komið henni í gang.“

„Eins vantar okkur alltaf góð fóst­ur­heim­ili á skrá til að vera til taks þegar koma inn dýr í neyð en fólk getur skráð sig hér sem fóst­ur­heim­ili. Þá fær það sendan póst þegar koma inn dýr sem vantar sama­stað“

Ef þið viljið styrkja Dýra­hjálp beint er reikn­ings­núm­erið þeirra hér:

0513-26-4311

Kt:620508-1010

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas