Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Bandaríkjamaður dró upp piparúða við Hlemm og hótaði mæðgum: „Palestína er ekki til“

Lögreglustöðin á Hverfisgötu.
Lög­reglu­stöðin á Hverf­is­götu. Mynd: Lára Garðarsdóttir

Lög­reglan hefur ekki enn yfir­heyrt mann sem dró upp piparúða og ógn­aði mót­mæl­endum fyrir utan lög­reglu­stöð­ina á Hverf­is­götu 3. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Þann 3. sept­em­ber veitt­ist Banda­ríkja­maður sem giftur er íslenskum manni, að lít­illi palest­ínskri stúlku og móður hennar fyrir utan lög­reglu­stöð­ina á Hverf­is­götu, með fúk­yrðum. Þegar íslensk kona, María Lilja Ing­veldar Þrast­ar­dóttir Kemp, sem stödd var á mót­mæl­unum sem haldin voru til að mót­mæla fram­göngu lög­regl­unnar í fyrri mót­mælum og skipu­lögð af No Borders Iceland, steig inn í og stað­setti sig á milli manns­ins og mæðgn­anna, tryllt­ist mað­ur­inn og dró upp piparúða úr tösku sinni og hót­aði að nota hann.

„Ég tók eftir því að maður stóð og jós fúk­yrðum yfir konu og litla stúlku fyrir utan lög­reglu­stöð­ina við hlemm. Við vorum saman komin þar að mót­mæla harð­ræði lög­reglu og vopna­burði,“ segir María Lilja í skrif­legu svari til Mannlífs.

„Ertu hryðju­verka­maður?“

Segir hún mann­inn, sem er yfir­lýstur sion­isti, sam­kvæmt Instagram-reikn­ingi hans, hafa öskrað á litlu stúlk­una „Palest­ína er ekki til“ og „Ertu hryðju­verka­maður?“.

„Litla stúlkan, sem er nýlega komin frá Gaza, var með fal­legt palest­ínu-háls­men yfir úlp­unni sinni og full­orðna konan var með hijab og keff­eyh þar yfir. Stelpan var orðin nið­ur­lút þegar ég kom að en mað­ur­inn öskr­aði á hana sér­stak­lega „Palestine does not exist“ „are you a ter­r­orist“ hún hélt fast í hlaupa­hjólið sitt og konan reyndi að róa hana á arab­ísku. Sagði henni að leiða hann hjá sér (eftir því sem arab­ísku­kunn­átta mín skildi) hún svar­aði honum ekki í mörgum orðum, bað hann að fara og sagði honum að hann hefði rangt fyrir sér. Sýndi ótrú­lega still­ingu.“

María Lilja seg­ist hafa á þessu augna­bliki stigið á milli manns­ins og stúlkunnar og spurt hvað hann væri eig­in­lega að gera en hún sagði hann hafa verið með „íslenska við­hlæj­endur“ stutt frá sér.

„Ég steig því á milli manns­ins og stúlkunnar og spurði hann hvað í ósköp­unum hann teldi sig vera að gera, ráð­ast á lítið barn. Hann var amer­ískur en með íslenska við­hlæj­endur sem biðu hans nálægt Hlemmi, lík­lega á leið í mat því þau köll­uðu til hans að koma en skár­ust ekki frekar í leik­inn. Ég tók mér stöðu á milli hans og kvenn­anna og bað hann að fara.“

Tók tryllingskast

Við þetta segir María Lilja mann­inn hafa tekið „tryll­ingskast“:

„Þarna tekur hann ein­hvers­konar tryll­ingskast (tan­trum) og kallar mig öllum illum nöfnum. Ég er alveg vön ýmsu en þessi maður var virki­lega unhinged. Hoppandi og æpandi, ógn­andi mér með lát­bragði en ég stóð bara áfram og þá garg­aði hann á mig að ef ég ætl­aði að vera með ein­hverja stæla þá myndi hann ekki hika við að nota pipar­úð­ann á okkur (mig, barnið og kon­una). Hann beygir sig ofan í bak­poka (hann var í tactical fötum með tactical poka) og dregur upp brúsa með piparúða.“

Þegar þarna kemur við sögu segir María Lilja að fleira fólk hafi borið að og Banda­ríkja­mað­ur­inn því hörfað.

„Ég vék ekki ef ske kynni að hann færi að spreyja svo barnið kæm­ist undan. Þarna kemur svo fleira fólk að og sér hvað er í gangi. Þá hörfar hann, stekkur á reið­hjól og hjólar hratt fram og til­baka nokkrar ferðir fyrir aftan mót­mælin öskr­andi kyn­þátta­hatur og níð­yrði í garð araba og Palest­ínu­fólks og hjólar svo burt út Hverf­is­götu.“

Bætir hún við að lokum: „Alvar­legt ef hér eru síon­istar með vopn sem fá bara að veifa þeim og ógna án afleið­inga.“

Mannlíf heyrði í lög­regl­unni sem segir að málið hafi verið til­kynnt en enn eigi eftir að ræða við umræddan mann. Aðspurð hvort pipar­úði sé ekki ólög­legur í höndum almennra borg­ara hvað lög­reglan svo vera.

Ekki náð­ist í við­kom­andi Banda­ríkja­mann við gerð frétt­ar­innar en sam­kvæmt mynd­skeiði sem Pétur Eggerz birti á Instagram en hann varð vitni af atvik­inu, svar­aði mað­ur­inn honum í skila­boðum, með því að kalla hann hryðju­verka­mann og segja að honum hafi verið ógnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn