Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

KSÍ frestar veitingu vallarleyfis fyrir milljarðahöllina í Garðabæ – Fundar enn um málið 12. apríl

Séð frá hinu sérkennilega áhorfendastæði Miðgarðs
Séð frá hinu sér­kenni­lega áhorf­enda­stæði Miðgarðs Mynd: Björgvin Gunnarsson

Vandræða­gangur við að veita íþrótta­mannvirkinu Miðgarði í Garðabæ vallar­leyfi heldur áfram hjá KSÍ. Ákveðið hefur verið að fresta ákvörðun um málið til 12. apríl.

Mannlíf hefur sagt frá því að undan­förnu að samskipta­stjóri bæjar­stjórnar Garða­bæjar hefði fullyrt í svari til miðilsins, að KSÍ væri búið að gefa grænt ljós á að Miðgarður, sem kostaði á fimmta milljarð að byggja, fengi að hýsa leiki í báðum deildum Bestu deildarinnar í sumar. Til þess þyrfti milljarða­höllin að fá undanþágu en lofthæðin er ekki nema 14 metrar en lágmarkið er rúmlega 20 metrar. Þá hefur áhorfenda­stæðið vakið athygli því það er byggt svo nálægt vellinum að ekki sjá áhorf­endur sem þar sitja nema 80-85 prósent af knattspyrnu­vellinum.

Sjá einnig: KSÍ tekur ákvörðun um milljarða­höll Garða­bæjar í næstu viku – Fær Miðgarður keppnis­leyfi?

Mannlíf hafði einnig sagt frá því hversu erfitt hefur verið að fá svör varðandi vallar­leyfið hjá KSÍ en þar á bæ hefur fólk bent hvert á annað og nefnt dagsetningar þegar málið á að vera tekið fyrir hjá Mannvirkja­nefnd. Svo bættist við önnur dagsetning þar sem KSÍ átti að taka málið fyrir sérstak­lega og svo enn önnur dagsetning þar sem KSÍ ætlaði að birta ákvörðun sína gagnvart Miðgarði. Sú dagsetning er í dag.

Vandræða­gangurinn heldur hins vegar áfram því í dag barst Mannlífi svar frá starfs­manni Mannvirkja­nefndar KSÍ. Segir í svarinu að stjórn KSÍ hafi frestað veitingu vallar­leyfis fyrir Miðgarð og setji það í hendur Mannvirkja­nefndar, að koma með tillögu að vallerleyfi fyrir Miðgarð. Segir einnig í svarinu að nefndin hafi fjallað um málið á fundi í hádeginu í dag. Kemur fram í svarinu að það sé ekki hlutverk Mannvirkja­nefndar að veita vallar­leyfi, heldur að gera tillögu um veitingu vallar­leyfis. Stjórn KSÍ eigi svo að veita vallar­leyfi að fengnum tillögum nefndarinnar.

Stjórn KSÍ mun ekki taka fyrir tillögu mannvirkja­nefndar vegna Miðgarðs fyrr en á næsta stjórnar­fundi þann 12. apríl.

Hér er svarið í heild:

„Stjórn KSÍ frestaði veitingu vallar­leyfis fyrir Miðgarð og er það í höndum mannvirkja­nefndar að koma með tillögu að vallar­leyfi fyrir Miðgarð.

Mannvirkja­nefnd fjallaði um málið á fundi hjá sér í hádeginu í dag.

Það er ekki hlutverk mannvirkja­nefndar að veita vallar­leyfi en nefndin hefur það hlutverk að gera tillögu um veitingu vallar­leyfis.  Stjórn KSÍ hefur svo það hlutverk að veita vallar­leyfi að fengnum tillögum frá mannvirkja­nefnd.

Stjórn KSÍ mun ekki taka fyrir tillögu mannvirkja­nefndar vegna Miðgarðs fyrr en á næsta stjórnar­fundi 12. apríl en þá mun það koma í ljós hvaða vallar­leyfi Miðgarður mun fá.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim