Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Þegar þótti fyndið að gera grín að „mongólítum“ – Tvíhöfði tæklaði þá

Þykir grín um „mongólíta“ enn fyndið?
Þykir grín um „mongólíta“ enn fyndið?

„The Times They Are A-Changin“ söng Bob Dylan forðum daga og ekki hefur tekist að afsanna orð hans. Það sem í gær þótti töff þykir á morgun hallærislegt; það sem þótti fyndið og/eða viðeigandi í dag þykir það ekki í kvöld.

Að karlmenn klipu í rassa kvenna þótti sumum eðlilegt á sínum tíma en nú er slík hegðun réttilega flokkuð sem kynferðisleg áreitni.

Það kom allt í einu upp í hug minn gamall „skets“ þeirra Tvíhöfða-bræðra, Jóns Gnarrs og Sigurjóns Kjartans­sonar, þar sem aðal­söguhetjan var kölluð „Snjalli mongólítinn“ og leysti hann dular­fullt morðmál eins og að drekka vatn.

Sem betur fer er allnokkuð um lið síðan heitið og orðið „mongólíti“ datt út úr samfélags­legu tungutaki okkar. „Mongólíti“ var heiti eða uppnefni á börnum sem fæddust með svokallað Downs heilkenni.

Talið er að um það bil 6 af hverjum 1000 börnum fæðist með litninga­galla en nokkur hundruð slíkir gallar eru þekktir. Oft er stór hluti þessara barna með frávik í þroska og ýmsa meðfædda galla á líffærum; þrístæða litnings númer 21 er algengasti litninga­gallinn og leiðir af sér Downs heilkenni sem var fyrst lýst árið 1866 af breskum lækni – John Langdon Down.

Lækn­ir­inn John Langdon Down ásamt tveimur óþekktum mann­eskjum með Downs heil­kennið.

Downs heilkenni finnst hjá einu af hverjum 700-1000 börnum, en langflest fóstur með þessa litninga­gerð látast fyrir fæðingu, þar af 30-40% eftir fyrsta þriðjung meðgöngunnar. Fæðingum barna með Downs heilkennið hefur fækkað mjög mikið á síðustu árum, vegna þess að auðvelt er að greina fóstur með heilkennið og hafa margir kosið að láta eyða fóstri þegar ljóst er að það er með Downs heilkennið.

En þá að spurningunni um hvað sé viðeigandi og óviðeigandi og allt það – því jú tímarnir eru alltaf að breytast – varðandi grín Tvíhöfða um „mongólíta“ – sem ekki varð mikið uppnám yfir í íslensku samfélagi þegar það var útgefið. Er þessi „skets“ enn fyndinn og viðeigandi, einhverjum tuttugu árum síðar, eða hvað?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim