Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Var niðurlægður og tók eigið líf: „Honum var vísað frá því Hafnarfjarðarbær sagði bara Fokkaðu þér“

Rósa Guðbjartsdóttir er bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
Rósa Guð­bjarts­dóttir er bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarðar.

Heim­il­is­laus karl­mað­ur á sex­tugs­aldri tók sitt eigið líf í lok maí eft­ir að honum var ítrekað vísað frá neyð­ar­skýli í Reykja­vík.

Ástæðan fyrir því að mann­inum var vísað frá, er sú að Hafn­ar­fjarð­ar­bær neit­aði að greiða gist­ing­una; þetta kemur fram á Heim­ild­inni.

„Honum var vísað frá því Hafn­ar­fjarð­ar­bær sagði bara Fokkaðu þér. Bróðir minn þurfti að fara þessa leið út af pen­ingum. Peningar og sam­ráðs­leysi milli sveit­ar­fé­laga urðu til þess að bróðir minn er lát­inn. Þetta var í minnst þriðja skipti sem honum var vísað frá,“ segir systir manns­ins í sam­tali við Heim­ild­ina.

Á föstu­dags­kvöldið 26. maí síð­ast­lið­inn mætti mað­ur­inn í neyð­ar­skýlið við Lind­ar­götu; óskaði eftir gist­ingu; var vísað frá.

Starfs­fólk neyð­ar­skýl­is­ins hafði fengið upp­lýs­ingar að til­teknum ein­stak­lingum sem eru með lög­heim­ili í öðrum sveit­ar­fé­lögum skyldi vísa frá ef þeir kæmu þangað.

Eins og er þá er Reykja­vík­ur­borg eina sveit­ar­fé­lagið er rekur neyð­ar­skýli fyrir heim­il­is­lausa; en þeir ein­stak­lingar sem þurfa gist­ingu eiga sumir hverjir lög­heim­ili ann­ars staðar.

Þann 1. maí hækk­aði gistigjaldið úr 21.000 krónum í 46.000 krónur; 119% hækkun fyrir eina nótt; var ákvörð­unin um hækk­un­ina tekin á fundi vel­ferð­ar­ráðs Reykja­vík­ur­borgar þann 1. febr­úar; til að standa undir raun­kostn­aði við þjón­ust­una.

Það kemur fram að ókunn­ugt fólk kom að mann­inum með­vit­und­ar­lausum eftir sjálfs­vígstil­raun; hringdi á sjúkra­bíl.

„Hann komst aldrei aftur til lífs eða með­vit­undar. Þegar rann­sóknum var lokið kom í ljós að það var engin heila­starf­semi,“ segir systir manns­ins.

„Hann var búinn að vera á sjúkra­hús­inu í sjö mín­útur þegar það var hringt í mig. Ég er skráð sem hans nán­asti aðstand­andi. Ég er að fara að jarða stóra bróður minn. Börnin hans eru að fara að jarða pabba sinn. Og öllum er bara alveg sama,“ segir systir manns­ins.

Hún reyndi að aðstoða bróður sinn við að fá hjálp í kerf­inu:

„Fólk hefur spurt mig hvort hann hafi ekki verið búinn að fara í fullt af með­ferðum. Jú, hann var búinn að því. Það breytir því ekki að hann þarf samt að sofa ein­hvers staðar.“

Hún segir það hafa verið mikið áfall fyrir bróður sinn að vera neitað um gist­ingu í neyð­ar­skýl­inu.

„Hann var reiður yfir því, ofboðs­lega reiður. Honum fannst hann nið­ur­lægður og var mjög sár. Hann upp­lifði skiln­ings­leysi og van­virð­ingu.“

Í frétt Heim­ild­ar­innar kemur skýrt fram að starfs­fólki gisti­skýla finn­ist þung­bært að þurfa að vísa frá fólki í neyð, vegna kröfu frá nágranna­sveit­ar­fé­lögum.

Heim­ildin leit­aði eftir svörum frá Hafn­ar­fjarð­arbæ vegna máls­ins; hvort mögu­lega hafi verið um mis­tök að ræða þegar þess var kraf­ist að mann­inum yrði vísað frá neyð­ar­skýlum í Reykja­vík; engin svör hafa enn borist frá Hafn­ar­fjarð­arbæ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas