Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Karlmenn veigra sér við að leita aðstoðar

Karlmenn veigra sér við að leita aðstoðar
Mynd/Pixabay

Í umræðu um átröskun hefur athyglin fyrst og fremst beinst að konum en í umfjöllun í nýjasta hefti Lækna­blaðs­ins er rætt við Guðlaugu Þor­steins­dóttur geð­lækni sem seg­ist telja að átröskun sé algeng­ari meðal karla en tölur segja til um þar sem þeir leiti sér síður aðstoðar en konur. María Þóra Þor­geirs­dóttir, sál­fræð­ingur og teym­is­stjóri í átrösk­un­arteymi Land­spít­al­ans, tekur undir þessi orð Guð­laugar. „Það er sú til­finn­ing sem við höfum að átröskun sem lýsir sér í tog­streitu gagn­vart mat og eigin lík­ama, sé van­greindur vandi hjá karl­mönnum. Það er ákveðið stigma hjá körlum því fólk tengir átrösk­un­ar­vanda fyrst og fremst við konur og það skilar sér í því að karlar þora ekki eða átta sig ekki á því að þeir eigi mögu­lega við átrösk­un­ar­vanda að stríða,“ segir María.

Getur birst í vöðvafíkn

Hjá körlum getur átröskun tengst svo­kall­aðri lík­ams­skynj­un­ar­röskun, en í slíkum til­fellum upp­lifir fólk lík­ama sinn ekki eins og hann er. Þetta getur meðal ann­ars birst í vöðva­fíkn. „Þá átta menn sig ekki á því hvað þeir eru í raun og veru orðnir stórir, og geta ekki hætt að lyfta lóðum og stjórna matar­æði á óheil­brigðan hátt til að breyta lík­ama sínum. Svo er það hinn hóp­ur­inn sem er ekki að reyna að auka við vöðva en flakkar tals­vert  í þyngd og á í mik­illi til­finn­inga­legri tog­streitu gagn­vart mat.“

Rétt eins og hjá kon­unum segir María Þóra að karlar verði fyrir áhrifum frá fjöl­miðlum og sam­fé­lags­miðlum. Þar birt­ist ákveðnar glans­myndir af því hvernig karlar eiga að líta út og engin ástæða sé til þess að þessar glans­myndir hafa minni áhrif á karla en konur.

Íþróttafólk í áhættuhópi

Einnig hefur verið sýnt fram á sam­spil íþrótta og átrösk­unar en nýleg íslensk rann­sókn leiddi í ljós að íþrótta­fólk er í sér­stökum áhættu­hópi við að fá átrösk­un­ar­sjúk­dóma. Þannig höfðu 25% kvenna nei­kvæða lík­ams­í­mynd og átrösk­un­ar­ein­kenni og 14% karla. Gunn­hildur Gunn­ars­dóttir, sál­fræð­ingur á Barna- og ung­linga­geð­deild, kann­ast við til­felli þar sem ofþjálfun og átröskun hald­ast í hendur. „Við vitum að ung­lingar sem stunda mikla lík­ams­rækt fá stundum mis­gáfu­leg ráð frá þjálf­urum.“

Í ofan­greindu við­tali við Guðlaugu er sér­stak­lega komið inn á neyslu orku­drykkja og fæðu­bót­ar­efna og hún leggur mikla áherslu á að neysla slíkra efna geti aldrei komið í stað matar. Þetta eigi sér­stak­lega við um börn. „Orku­drykkir og fæðu­bót­ar­efni eru of ein­hæf orku­inn­taka og geta haft slæm áhrif á þroska barna og ung­linga. Fyrir full­orðna ein­stak­linga er mik­il­vægt að átta sig á því að orku­drykkir og fæðu­bót­ar­efni geta aldrei komið í stað­inn fyrir mat. Það er ekki hægt að lifa á slíku.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Segir Net­anyahu þrýsta á Trump um kjarn­orku­árás

„Eftir fyrstu kjarnorkuárásina er þriðja heimsstyrjöldin óhjákvæmileg“
Pólitík

Reykja­vík ætlar að snúa millj­arða­halla í afgang á aðeins einu ári

Heimur

Úkraínsk dróna­árás olli miklum eldi í rúss­neskri olíu­hreinsi­stöð

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Innlent

Innlent

Getur munað rúmum 22 þús­und krónum á umfelgun fólks­bíls

ASÍ ráðleggur fólki að óska eftir staðfestu heildarverði.
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu