Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Algjörlega óáhugaverðir hópar slá í gegn á Facebook – þingmenn meðal virkustu meðlima

Margir myndu ætla að óáhuga­verðir Facebook-hópar væru ávísun á fámenni. Raunin er önnur og sumir vin­sæl­ustu og virk­ustu Facebook-hópar Íslands gera bók­staf­lega út á hið óáhuga­verða og kenna sig við það.

Algjörlega óáhugaverðir hópar slá í gegn á Facebook – þingmenn meðal virkustu meðlima
|

Fyrst ber að nefna hóp­inn „Algjör­lega óáhuga­verðar fót­bolta­upp­lýs­ingar,“ hóp­inn sem kom æðinu af stað og er ennþá langstærstur – telur nú tæp­lega 6500 manns, já, nærri tvö pró­sent þjóð­ar­innar þyrstir í óáhuga­verðar fót­bolta­upp­lýs­ingar. Síðu­hald­arar segja að þarna sitji djarfur hópur „mis­skemmti­legra manna og kvenna, og rýnum í öll leið­in­leg­ustu atriði fót­bolta til að íþróttin geti orðið skemmti­leg fyrir börnin okkar sem vilja helst bara hanga heima og lesa ljóð. / Gerum hið óáhuga­verða intressant. Gerum fót­bolta skemmti­legan fyrir börnin okkar!“

En lífið er óáhuga­vert á svo fjöl­breyttan hátt og því spruttu fljót­lega upp álíka óáhuga­verðar síður, eins og „Algjör­lega óáhuga­verðar stjórn­mála­upp­lýs­ingar,“ „Algjör­lega óáhuga­verðar götu­heita­upp­lýs­ingar,“ „Algjör­lega óáhuga­verðar körfu­bolta­upp­lýs­ingar“ og „Algjör­lega óáhuga­verðar tón­list­ar­upp­lýs­ingar.“ Þessir hópar telja allir hund­ruði manns og eru allir ágæt­lega virkir. En einnig má finna hópa sem hrein­lega voru of óáhuga­verðir til þess að afla sér með­lima, eins og „Algjör­lega óáhuga­verðar Eurovision-upp­lýs­ingar“ sem aðeins inni­halda þrettán með­limi og pósta að með­al­tali einu sinni í mán­uði.

Sem dæmi um pósta sem vekja lukku á síðum sem þessum má nefna nýj­ustu færsl­una í „Algjör­lega óáhuga­verðar körfu­bolta­upp­lýs­ingar,“ þar sem Erlingur Grétar Ein­ars­son fræðir okkur um að „Aðeins einn leik­maður í sögu NBA hingað til er fæddur í Alaska. Það er Mario Chalmers.“

Ef þú vilt fræð­ast um bol­inn hennar Cher eða júgóslav­nesk plötu­umslög frá níunda ára­tugnum er „Algjör­lega óáhuga­verðar tón­list­ar­upp­lýs­ingar“ hóp­ur­inn fyrir þig.

Ef þér finnst gaman að ljós­mynda hvers­dags­lega hluti er til­valið að skoða „Algjör­lega óáhuga­verðar götu­heita­upp­lýs­ingar,“ þar sem hefð hefur mynd­ast fyrir því að mynda götu­skilti með meiri­hluta færslna. Til­gangur síð­unnar krist­all­ast svo í aðfar­ar­orðum síð­unnar: „Hvað er hvers­dags­legra og óáhuga­verða en göt­urnar sem við búum á eða þvæl­umst um? Þessi síða er til heið­urs þeim.“ Myndin hér að ofan er tekin úr þessum hópi, þar sem eft­ir­far­andi upp­lýs­ingar koma fram: „Á Bar­toloměj­ská var tékk­neska örygg­is­lög­reglan til húsa og geymdi m.a. fanga í gömlu nunnu­klaustri.“

Algjörlega óáhugaverð aðkoma þingmanna VG

En þetta er ekki bara sak­leys­is­leg dægradvöl – þessar síður teygja sig í efstu lög sam­fé­lags­ins, enda tveir alþing­is­menn VG lyk­il­menn í þess­ari þróun. Fáir eru öfl­ugri á síð­unni „Algjör­lega óáhuga­verðar stjórn­mála­upp­lýs­ingar“ en Andrés Ingi Jónsson, sem eru fæð­ing­arár þing­manna sér­lega hug­leik­inn. Þar fræðir hann okkur um að þing­skjal 1959 þennan vet­ur­inn sé fyr­ir­spurn Karls Gauta Hjalta­sonar, þing­manns Mið­flokks­ins, sem sé einmitt fæddur árið 1959. Ekki nóg með það, átján árum seinna fædd­ist Jón Þór Ólafsson Pírata­þing­maður og var fyr­ir­spurn hans til­efni þing­skjals númer 1977.

Þá var kollegi Andrésar Í VG, Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, mað­ur­inn sem kom þessu öllu  saman af stað þegar hann stofn­aði „Algjör­lega óáhuga­verðar fót­bolta­upp­lýs­ingar“ tæpum tveimur árum áður en hann varð þing­maður. Fljót­lega eftir að síðan komst á flug skrif­aði hann pistil í Frétta­blaðið ásamt Jóni Erni Loðm­fjörð ljóð­skáldi og lýstu þeir mik­il­vægi hins óáhuga­verða svo: „Rétt­ur­inn til að láta sér leið­ast og eiga nógu mörg tæki­færi til að vera leið­in­legur er rétt­ur­inn til lífs, að vera lif­andi og að skilja lífið.“ Þeir bæta við að það sé ekk­ert að ótt­ast. „Hættum að ótt­ast það að vera leið­in­leg. Hættum að ótt­ast það að láta okkur leið­ast.“

Það má jafn­vel líta á gjörn­ing­inn sem ákveðið upp­gjör við hrunið. „Karni­valið er búið. Við keyrðum okkur út, í vinnu­staðaleikjum, skemmti­staða­sleikjum, í skrílslátum við flipp­skún­k­ana í svörtu maríu og núna loks í ein­hverju gríni á Feisbúkk. Það er eng­inn brand­ari að hefj­ast hér og það sem sagt verður næst og næst og næst er ekki pönslæn. Þetta er leið­in­legt. Óáhuga­vert. Njótið þess án þess að hörfa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum