Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Sannfærð um að nú myndi hann drepa mig“

„Sannfærð um að nú myndi hann drepa mig“
||Nara Walker

*TW* Trigger Warning/*VV*varúð váhrif

Nara Walker hlaut dóm fyrir ofbeldi gegn þáverandi eiginmanni sínum sem hafði beitt hana ofbeldi í áraraðir. Hún var nýlega látin laus úr fangelsi en býr hér sem réttlaus kona þar sem enn eru 15 mánuðir eftir af skilorðsbundnum dómi hennar. Hún ætlar með mál sitt fyrir Mannréttindadómstól Evrópu og segir lesendum Mannlífs sögu sína.

„Já, það væri gaman því mér líður núna eins og allt mitt líf hverf­ist um þetta mál,“ segir Nara Walker þegar hún er beðin um að segja frá því hver hún er og hvaðan hún kemur. „Ég er fædd á stað sem heitir Springbrook, bæ sem stendur á óvirku eld­fjalli ofan við Gold Coast í Queensland í Ástralíu. Þar ólst ég upp fram yfir sjö ára aldur og það er sann­kölluð nátt­úrupara­dís þó svo að snák­arnir og kóngu­lærnar séu ekki fyrir alla. Þarna bjó ég ásamt móður minni, systur og föður sem á reyndar fleiri börn sem eru fædd bæði fyrir og eftir hjóna­bandið með mömmu. Walker er reyndar ekki eft­ir­nafn föður míns heldur stjúp­föður vegna þess að faðir minn er ofbeld­is­maður og við þurftum seinna meir að forð­ast hann af fremsta mætti. Hann er einn þess­ari manna sem sjá hvorki sól­ina né annað fyrir sjálfum sér.“

Nýkomin úr fangelsi

Nara sem verður 29 ára í júlí hefur búið víða um ævina og reynt ýmis­legt. Eftir að for­eldrar hennar skildu bjó hún á Gold Coast, flutti síðan til Suður-Ástralíu eftir að móðir hennar tók saman við stjúp­föður þeirra systra, ferð­að­ist með þeim um Evrópu um þriggja mán­aða skeið, bjó á sveitabæ með þeim þar til þau skildu og eftir það á Sunshine Coast með við­komu í Brisbane.

Í mennta­skóla vann Nara til verð­launa fyrir list­sköpun sem hvatti hana til þess að feta braut list­ar­innar. „Ég fór í list­nám með áherslu á mál­ara­list, fór svo til Óslóar með þáver­andi kærast­anum mínum og var þar í tíu mán­uði árið 2010 en sneri aftur til þess að halda áfram með námið. Fólkið hennar mömmu kemur frá Noregi og því fannst mér gaman að kynn­ast land­inu og líf­inu þar. Mamma lagði reyndar alltaf áherslu á tengslin við ástr­alska nátt­úru og nafnið mitt er komið úr máli frum­byggja og merkir félagi. En eftir að ég kom aftur frá Noregi komst ég að í Griffith Uni­versity í Brisbane og lauk þaðan BA-námi. Ég var svo á svoköll­uðu Hounors-ári þegar ég kynnt­ist mann­inum sem nú er fyrr­ver­andi eig­in­maður minn og ástæðan fyrir því að ég er á Íslandi, nýkomin úr fang­elsi.“

Sjá einnig: „Hefur lifað í sam­felldum ótta und­an­farna 17 mán­uði“

Nara var dæmd fyrir að bíta hluta af tungu fyrr­ver­andi eig­in­manns síns en hefur alla tíð lagt áherslu á að hún hafi ítrekað verið beitt ofbeldi af hans hálfu. Íslenskir dóm­stólar féllust ekki á að við­brögð hennar hafi helg­ast af sjálfs­vörn og hlaut hún því átján mán­aða dóm, þrjá hefur hún þegar afplánað á Hólms­heiði og inni á Vernd en fimmtán eru skil­orðs­bundnir.

Byrjaði með brotið andlit

„Þetta byrj­aði þannig að hann var að vinna handan göt­unnar þar sem ég var í háskóla­námi og það hræðir mig í dag hvernig hann spil­aði með mig frá upp­hafi. Faðir minn var ofbeld­is­maður og fyrir vikið er ég útsett­ari fyrir þess­ari hegðun og það var eins og hann skynj­aði það frá upp­hafi. Hann vissi nákvæm­lega hvernig hann átti að hegða sér. Hann er franskur, hávax­inn, hraustur og sex árum eldri en ég og í dag líður mér eins og ég hafi verið veidd. Hann kunni að spila á veik­leika mína og bak­grunn minn og til þess að gera langa sögu stutta end­aði það með því að við byrj­uðum saman og allt frá upp­hafi var til staðar þetta sál­ræna ofbeldi þar sem það var gefið og tekið á víxl og allt sner­ist um að ná fullri stjórn á ein­stak­lingnum.“

Nara segir að hún hafi ákveðið að slíta sam­band­inu vegna kærust­unnar sem hann átti að auki. Hún vildi ekki vera kona sem gerði annarri konu eitt­hvað slíkt. „Ég hætti að hitta hann en varð nokkru síðar fyrir því að fót­brjóta mig. Þá kom hann og sagð­ist vera hættur með kærust­unni, vildi aðstoða mig við dag­legt líf af því að ég væri meidd, ætl­aði að hugsa um mig. Ég hélt ákveð­inni fjar­lægð við hann en fór svo út með honum þegar ég var laus við gifsið og fór heim með honum en gisti bara á sóf­anum. Daginn eftir vakn­aði ég illa vönkuð í rúm­inu hans, með skelfi­lega verki í and­lit­inu.

Nara Walker hlaut dóm fyrir ofbeldi gegn þáver­andi eig­in­manni sínum sem hafði beitt hana ofbeldi í áraraðir. Hún var nýlega látin laus úr fang­elsi.

Ég hafði ekki verið drukkin kvöldið áður en vakn­aði samt þarna og í þessu ástandi og skildi ekki hvað hafði gerst. Ég spurði hann ítrekað en hann fór alltaf undan í flæm­ingi, laug og bull­aði, en þegar ég sagð­ist ætla að fara að hitta mömmu og fara svo á sjúkra­hús þá loks­ins sagð­ist hann muna hvað gerð­ist. Sagði mér að hann hefði verið að bera mig inn í rúm og misst mig á leið­inni. Þannig að ég hef rot­ast við það og hann bara lagði mig í rúmið með heila­hrist­ing. Það hefði getað kostað mig lífið og að end­ingu fór vinur minn sem er læknir með mig á sjúkra­hús og þá kom í ljós brákað kinn­bein.“

Lamin til hlýðni

Nara segir að á þessum tím­punkti hafi hún verið komin í ofbeld­is­sam­band án þess að gera sér grein fyrir því. Eftir því sem leið á sam­bandið og síðar hjóna­bandið tókst eig­in­mann­inum að herða tökin og Nara rekur fjöl­mörg dæmi um það hvernig ofbeldið stig­magn­að­ist. „Það var and­legt, lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt en alltaf var þetta mér að kenna sam­kvæmt hans bókum. Þetta var víta­hringur sem var erfitt að rjúfa og hélt áfram í gegnum allt okkar sam­band. Hann gætti þess að ein­angra mig alltaf frá því tengsla­neti sem ég mynd­aði. Við fluttum alltaf á sex mán­aða fresti og svo lof­aði hann í sífellu að sjá um fjár­málin og annað slíkt svo ég gæti sinnt list­inni en stóð mis­vel við þau orð.

Það sem mér hefur þó þótt hvað erf­ið­ast að horfast í augu við er kyn­ferð­is­of­beldið sem hann beitti mig. Það hófst oft þegar ég var sof­andi og varð sífellt gróf­ara. Það getur verið erfitt fyrir konur í núgild­andi sam­fé­lags­gerð að átta sig á því hvað er ásætt­an­legt. Í sam­fé­lagi sem segir þér að þú eigir að veita mann­inum þínum ánægju þá er erfitt að játa fyrir sjálfri sér að hann nauðgar þér. Nánd og kyn­líf er fyrir báða aðila – þú ert ekki þarna svo hann geti lokið sér af þegar honum hentar. Að við­ur­kenna fyrir sjálfum sér hvað hefur gerst er erfitt því maður upp­lifir sig sem einskis virði. Að end­ur­heimta eigið virði tekur tíma en það er hægt með því að horfast í augu við að það var hann sem gerði þér þetta.

Fyrr­ver­andi eig­in­maður minn bar enga virð­ingu fyrir mér, ég sé það núna, hann bara gerði við mig það sem hann vildi, þegar hann vildi. Ef ég sætti mig ekki við það þá var ég lamin til hlýðni með einum eða öðrum hætti.“

Hin auðmjúka sjálfsvörn

Nara segir að framan af sam­band­inu hafi hann verið lúm­sk­ari og beitt hana oft ofbeldi og nauðg­unum í svefni eða með því að byrla henni lyf. Þegar þau gengu í hjóna­band versn­aði ástandið til mik­illa muna. „Þá byrj­aði hann fyrir alvöru að berja mig. Það var annað skref í því að gera mig veik­ari fyrir, rétt eins og að flytja úr landi, því þar með leit hann end­an­lega á mig sem sína eign.

Þegar mér fór að vegna vel í minni list­sköpun og fékk að sýna á mik­il­vægum og stórum stöðum á borð við Hong Kong, Feneyjar og víðar, lagði hann sig líka fram um að eyði­leggja það. Slíkt var ógn við vald hans yfir mér og því mik­il­vægt fyrir hann að rjúfa allt sem gæti falið í sér að ég fengi aukna sjálfs­virð­ingu og innri styrk.“

Nara kom fyrst til Íslands í lok októ­ber 2016, þegar hún bjó í Bret­landi en eig­in­maður hennar þáver­andi fékk vinnu hjá stóru fyr­ir­tæki á Íslandi. Hann hefur við­ur­kennt að áður en hann fór til Íslands barði hann hana inni á heim­ili þeirra í Englandi þar sem þau bjuggu um borð í báti. „Hann reif mig upp og henti mér þvert yfir her­bergið svo ég lenti á vegg. Þar hélt hann mér og barði mig í kvið­ar­hol og brjóst og spark­aði svo hurð­ina niður þegar hann fór út. Ég lá eftir í áfalli og gat ekki hreyft mig í svona tíu mín­útur. Þegar ég kom út var hann að fara af stað með bát­inn og þá sagði ég bara: „Hæ!“ eins og ekk­ert hefði gerst. Var bara auð­mjúk og voða góð við hann en samt hélt hann áfram að hella úr skálum reiði sinnar yfir mig og ég fór til Íslands með honum.

Þetta er auð­vitað ekk­ert annað en sjálfs­varn­ar­mekk­an­ismi. Höfnun á því að það sé verið að beita mann ofbeldi og aðferð til þess að reyna að koma í veg fyrir að það ger­ist aftur. Vandinn er að ofbeldið á bara eftir að verða verra þar til víta­hring­ur­inn rofnar en það getur líka kostað þol­and­ann lífið og gerir það í fjöl­mörgum til­vikum um allan heim á hverjum degi.“

„Sannfærð um að hann myndi drepa mig“

Nara er fær um að lýsa fjölda atvika þar sem fyrr­ver­andi eig­in­maður hennar beitti hana hrotta­legu ofbeldi. Alltaf gætti hann þess þó að berja hana í brjóst- og kvið­ar­hol svo áverk­arnir væru síður sýni­legir en það sem er einkum slá­andi eru lýs­ingar hennar á því hvernig hann gætti þess að horfa í augun á henni meðan á bar­smíð­unum stóð. Þessi frá­sögn er henni allt annað en auð­veld og erf­ið­ast af öllu er að ræða kvöldið sem leiddi til þess að hún hlaut fang­els­is­dóm á Íslandi.

„Helgina fyrir atvikið höfðum við farið út á lífið, hittum banda­rískan ferða­mann, spjöll­uðum við hann í fimm mín­útur og hann fór að fylgja mér á Instagram. Sendi mér svo skila­boð á þriðju­deg­inum til að for­vitn­ast um hvað væri að ger­ast í bænum og ég sagði honum að Airwaves væri í gangi og fullt af tón­leikum. Í fram­hald­inu fórum við mað­ur­inn minn út og hittum Banda­ríkja­mann­inn og íslenska konu sem ég leit á sem sam­eig­in­lega vin­konu okkar hjóna. Hún hafði verið að vinna með mann­inum mínum en mér finnst lík­legt að þau hafi þá þegar átt í sam­bandi þegar ég var ekki á land­inu og að auki sner­ist þeirra sam­band tals­vert um eit­ur­lyf og neyslu, eitt­hvað sem er þeirra en ekki mitt.

Við fórum á tvo bari og vorum að drekka bjór en ég tók eftir því að hún var mjög agressív gagn­vart mér sem hún hafði reyndar verið um tíma. Hann ætl­að­ist til þess að við værum vin­konur, enda var hún alltaf heima hjá okkur, en á þeim tíma leit ég á þeirra sam­band sem vin­áttu. Hún átti eftir að ljúga fyrir rétti fyrir hann og ég hefði átt að kæra hana fyrir lík­ams­árás en í mínum huga var hún fyrst og fremst næsta fórn­ar­lamb hans.

Þegar við komum aftur í íbúð­ina voru mað­ur­inn minn og íslenska konan að kyss­ast eins og þau höfðu verið gera fyrr um kvöldið. Það angr­aði mig satt best að segja ekki, það finnst kannski ein­hverjum skrítið, en fyrir mér var það bara koss og ég var búin að ákveða að skilja við hann hvort eð var. Ég hafði svo sem séð slíka til­burði hjá honum áður, ég hef séð hann hafa kyn­mök við annað fólk og hef þá yfir­gefið her­bergið. En þarna um kvöldið brást ég þannig við að ég kyssti Banda­ríkja­mann­inn, það var svona ég að sýna honum að ég gæti alveg hagað mér svona en svo hætti ég því til þess að verða ekki lamin og við vorum bara að spjalla.

En svo sáum við að mað­ur­inn minn og þessi íslenska kona voru nán­ast farin að stunda kyn­líf en í föt­unum inni í stofu. Banda­ríkja­mað­ur­inn sagð­ist bara ætla að fara þannig að ég sagð­ist líka ætla að fara, vildi ekki vera hluti af þessu. Þá varð allt vit­laust.

Maðurinn minn varð brjál­aður. Hann átti mig og ótt­að­ist að ég ætl­aði að fara með Banda­ríkja­mann­inum sem ég ætl­aði alls ekki að gera. Ég vildi bara ekki vera þarna.

Maðurinn minn og konan voru stöðugt að öskra á mig ein­hverjar sví­virð­ingar og ég man að ég horfði á hana og furð­aði mig á því af hverju hún væri að standa í þessu. Íbúðin sem við vorum í var á hæðum og á ein­hverjum tíma­punkti stóðu mað­ur­inn minn og Banda­ríkja­mað­ur­inn frammi á stig­anum og þá skyndi­lega ýtti mað­ur­inn minn honum þannig að hann kút­velt­ist niður stig­ann, niður á næstu hæð. Seinna kom fram í áverka­skýrslu að hann var með alvar­lega áverka eftir þetta.

Ég frík­aði út þegar ég sá þetta. Maðurinn minn hljóp á eftir honum og stóð yfir honum og hann er stór og sterkur. Ég reyndi að beina athygli hans að mér svo að hann héldi ekki áfram að meiða hann og þá komst Banda­ríkja­mað­ur­inn undan. Maðurinn minn byrj­aði að hrinda mér harka­lega og það kemur fram á áverka­skýrsl­unni að ég var með áverka á brjóst­hrygg og brákað rif sem ég held að hafi gerst þarna. En málið er að ég var sann­færð um að nú myndi hann drepa mig.

„Hann starði inn í sál­ina á mér. Ég hef aldrei orðið eins hrædd og ég gat ekk­ert gert, leið skyndi­lega eins og ég væri utan eigin lík­ama.“

Hann starði inn í sál­ina á mér. Ég hef aldrei orðið eins hrædd og ég gat ekk­ert gert, leið skyndi­lega eins og ég væri utan eigin lík­ama. Horfði á allt ger­ast eins og fluga á vegg. Síðan byrj­aði hann að berja mig í brjóst og kvið­ar­hol á meðan hann horfði í augun á mér. Að hverju var hann að leita í aug­unum á mér? Eigin virði?“

Færð í handjárn

„Ég gat ekki andað. Hann tók mig upp og lagði mig á sófann sem er á neðri hæð­inni inni í íbúð­inni sem er á tveimur hæðum. Hún var þarna líka og hann stóð yfir mér á meðan ég var að reyna að ná and­anum. Það var eins og árásin væri enn í gangi með hann þarna yfir mér og allar þessar hugs­anir um hvað hafði gerst. Hugsanir um að hann hefði getað drepið þennan mann. Hugsanir um að hann hefði verið að berja mig og ég myndi lík­lega ekki lifa þetta kvöld af. Lá bara þarna og reyndi að anda á meðan hann stóð yfir mér og hélt áfram að öskra á mig. Öskra að hann ætti mig.

Skyndi­lega fann ég adrena­línið flæða um mig í bylgjum og lík­amann segja mér að koma mér burt. Þannig að ég stóð loks­ins upp og reyndi að kom­ast fram hjá honum. Hann greip um upp­hand­legg­ina á mér, hélt mér fastri og hélt áfram að öskra á mig. Hann er eflaust svona 25 sm hærri en ég og skyndi­lega hall­aði hann sér niður að mér og þving­aði sér á mig. Það var á því augna­bliki sem ég beit bút af tung­unni á honum.

Ég fann aldrei fyrir tung­unni á honum uppi í mér, kannski vegna þess að þau höfðu sett kókaín í drykk­ina okkar án minnar vit­undar og það hefur víst stað­deyf­andi áhrif. Ég bara brást við og lík­ami minn lok­að­ist, herpt­ist saman, með þessum afleið­ingum.

Nara ætlar ekki að játa sig sigr­aða fyrir órétt­læt­inu heldur fara með málið fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu.

Það var eins og tím­inn stæði í stað. Skyndi­lega rank­aði ég við mér og hjartað barð­ist um á ógn­ar­hraða þar sem ég lá á bak­inu á gólf­inu og hún sat klof­vega ofan á mér öskr­andi ókvæð­is­orð. Ég var skelf­ingu lostin. Þau voru tvö og bæði miklu stærri en ég. Ég reyndi að ýta henni af mér og við tók­umst á. En það sem ég ótt­að­ist mest var hvað hann mundi gera mér á meðan mér væri haldið svona fastri. Ég ótt­að­ist að hann kæmi og kastaði mér fram af svöl­unum eða eitt­hvað þaðan af verra.

Loksins náði ég að losa mig en ég komst ekki út fram hjá þeim heldur gat hlaupið upp á efri hæð­ina og falið mig þar. Ég var í algjöru áfalli. Þau héldu áfram að öskra á mig en hún hringdi í lög­regl­una. Þegar lög­reglan kom var ég grát­andi og end­ur­tók mig í sífellu sem er aug­ljóst merki um áfall, jafn­vel ég veit það, en samt var ég sett í hand­járn og þau tvö færð á sjúkra­hús. Ég var færð hand­járnuð út í aft­ur­sæti lög­reglu­bíls og var í haldi lög­reglu að því ég held í fimmtán klukku­stundir.“

Hefðu getað orðið mín örlög

Nara sýndi lög­regl­unni víð­tæka áverka á lík­am­anum sem gátu verið vís­bend­ing um inn­vortis blæð­ingar en það breytti engu. Að loknu varð­hald­inu var svo farið með hana aftur heim til eig­in­manns­ins, vega­bréf hennar tekið og hún skilin eftir heim­il­is­laus og án banka­korta því eig­in­mað­ur­inn hafði allt slíkt í sinni vörslu. Hún gat sótt ein­hverjar eigur en gekk síðan sjálf á sjúkra­hús undir mið­nætti til þess að fá lækn­is­hjálp.

„Móðir mín greiddi fyrir gisti­heim­ili og ég borð­aði hjá Samhjálp en á sama tíma var ég undir stöð­ugu áreiti frá honum. Hann sendi mömmu, öllum vinum mínum og sínu eigin sam­starfs­fólki alls konar vit­leysu um mig og gerði allt sem hann gat til þess að ein­angra mig.

Vegna lög­reglu­skýrsl­unnar og alls þess sem hann lét frá sér, var ég í hlut­verki ger­and­ans. Þurfti að takast á við hugs­anir um að þetta væri mér að kenna, að ég hefði ögrað honum og meitt hann. Samt fékk ég að sjá hvað hann skrif­aði íslensku kon­unni dag­inn eftir þar sem hún sagð­ist ekki muna hvað gerð­ist en hann sagði henni bara hvernig þetta var og það var fjarri sann­leik­anum. Hún lagði áherslu á að ég þyrfti að fara í fang­elsi í langan tíma og á stóran þátt í að ég fékk dóm. Hún fékk föður sinn sem er læknir til þess að skrifa áverka­skýrslu eftir að aðrir læknar voru búnir að skoða hana áður. Fékk föður sinn til að votta um áverka sem voru ekki til staðar og þetta sá rétt­ur­inn en tók þetta auð­vitað ekki til greina. Þetta gerði það að verkum að ég fékk ekki eins þungan dóm og ella. Engu að síður lét rétt­ur­inn samt aðrar lygar standa og tók vitn­is­burð þeirra góðan og gildan.“

Nara segir að hún sé enn að takast á við eft­ir­köstin af því sem gerð­ist þetta kvöld. Lík­am­lega, and­lega og félags­lega en þar sem hún er án rétt­inda á Íslandi og má enn ekki vinna, getur hún ekki sótt sér þá aðstoð sem hún þarf á að halda. „Ofbeldið sem ég varð fyrir frá honum hefur í dag víkkað út í það sem ég má þola af hálfu kerf­is­ins og frá þess­ari konu og fjöl­skyldu hennar. Hún tók þátt í árásinni þetta kvöld frá upp­hafi, fyrst með orðum en síðar gjörðum, þannig að sem vitni þá stenst auð­vitað ekki að hún sé hlut­laus. Hún laug upp á mig við rétt­ar­höldin þar sem hún laug einnig til um sam­band þeirra tveggja.

„Ofbeldið sem ég varð fyrir frá honum hefur í dag víkkað út í það sem ég má þola af hálfu kerf­is­ins og frá þess­ari konu og fjöl­skyldu hennar.“

Hún meira að segja bjó með eig­in­manni mínum, þau fluttu saman til London, og á meðan málið var enn fyrir Lands­rétti leiddi rétt­ur­inn í ljós að þau hefðu logið fyrir Hér­aðs­dómi. Þar með á fram­burður þeirra ekki að vera aðgrein­an­legur. Auk alls þess óhróð­urs sem þau létu frá sér á Netinu.“

Nara segir að hún hafi fundið til með þess­ari konu þrátt fyrir allt, vit­andi að hann væri mað­ur­inn á bak við þetta. „Þetta mál snýst um heim­ilsof­beldi frá a til ö. Það sem raun­veru­lega gerð­ist var að ég reyndi að yfir­gefa mann­inn sem beitti mig ofbeldi og eins og svo margar konur sem það reyna varð ég fyrir árás. Margar konur eru myrtar þegar þær reyna að fara og ég er viss um að það hefðu getað orðið mín örlög þetta kvöld.“

Rannsókn í skötulíki

Nara þagnar og heldur svo áfram. „Það sem raun­veru­lega gerð­ist var að í sept­em­ber 2017 var ég loks­ins búin að átta mig á því að ég yrði að fara frá honum. Á þeim tíma beitti hann mig lík­am­legu, and­legu, kyn­ferð­is­legu og fjár­hags­legu ofbeldi. Ég tók þátt í sýn­ingu í Berlín sem fram­kall­aði reynslu mína af heim­il­is­of­beldi frá því þegar ég var barn og þá fann ég hug­rekki til þess að segja honum að þetta yrði að hætta. Þá sömu helgi byrl­aði hann mér LSD í teið mitt og í fram­hald­inu tók ég þessa ákvörðun.

Ég var að sýna í Hong Kong og víðar og ræddi þetta við móður mína sem kom með mér í eina af þeim ferðum. Þetta kom henni ekki á óvart því hún hafði átt í bréfa­skiptum við hann þar sem þetta ofbeldi kom upp og það var lagt fram til sönn­unar við rétt­ar­höldin. Þar ját­aði hann meira að segja að hafa ráð­ist á mig og að hafa byrlað mér eit­ur­lyf.

Þetta kom fram við rétt­ar­höldin og þar var hann líka spurður út í að hafa nauðgað mér en eins og ég man svarið þá sagði hann: „Þetta er Nara að láta mér líða illa með nauðg­anir. Hún er konan mín.“ Hann sagði að ég gerði hann vondan og sýndi horn á höfði með hönd­unum til útskýr­ingar og annað í þeim dúr sem að mínu mati tók af allan vafa um að hann væri ofbeld­is­maður. Hann var spurður um atvikið á bátnum og þá svar­aði hann að hann hefði einu sinni ráð­ist á mig. En allt kom fyrir ekki. Ég fékk átján mán­aða dóm, sat í mánuð á Hólms­heiði, í tvo mán­uði á Vernd og svo standa fimmtán mán­uðir eftir skil­orð­is­bundnir.“

Nara bendir á að það sem gerð­ist þetta afdrifa­ríka kvöld sé afleið­ing heim­ilsof­beldis en lög­reglu­rann­sókn­inni hafi verið væg­ast sagt ábóta­vant. Lög­reglan sleppti því að mynda eit­ur­lyf sem stóðu á stofu­borð­inu, eng­inn var sendur í lyfja­próf. Þessi kona játar að hafa reykt gras með eig­in­manni mínum og að hann hafi sett kókaín í drykk­ina okkar. Engin rann­sókn var gerð á þessu, jafn­vel þó að ég hafi farið fram á slíkt og lagt fram lista yfir eit­ur­lyf sem hann átti en það var nokkrum dögum síðar. Lög­reglan taldi ekki ástæðu til þess að kanna það nánar.

Á rúmum tveimur vikum létt­ist ég um níu kíló sem er mikið fyrir smá­gerða konu eins og mig því þá var ég orðin aðeins 46 kíló. Ég var gerð heim­il­is­laus, því lög­reglan sendi frá sér skýrslu þar sem hún seg­ist ekki eiga von á ofbeldi af hálfu manns­ins gagn­vart mér og þar af leið­andi var ég í raun á göt­unni. Í lög­reglu­skýrsl­unni er líka ítrekað tekið fram að ég hafi engin tengsl við Ísland, ég sé það núna að það gerði mig rétt­lausa sem erlenda konu. En hann hafði tengsl þar sem hann var að vinna hjá stóru íslensku fyr­ir­tæki, sama fyr­ir­tæki og þessi kona hafði verið að vinna hjá og hún er auk þess Íslend­ingur. Sak­sókn­ar­inn lagði líka mikla áherslu á að ég hefði engin tengsl við Ísland til þess að það væri lagt á mig far­bann.“

Refsað fyrir að velja að lifa

En Nara ætlar ekki að játa sig sigr­aða fyrir órétt­læt­inu heldur fara með málið fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu. „Fyrir mér er mik­il­vægt að fara með málið burt frá Íslandi þar sem málið snýst um ofbeld­is­mann­inn og það sem ég gerði til að losna undan honum. Næst verður þetta póli­tískt og fer að snú­ast um kerfið og hvernig það tekur á heim­il­is­of­beldi. Ég ætla mér að fara með þetta alla leið vegna þess að ég vil standa með sjálfri mér og standa fyrir rétt­indum kvenna sem þurfa að búa við ofbeldi á hverjum degi, jafn­vel alla sína daga.“

„Ég ætla mér að fara með þetta alla leið vegna þess að ég vil standa með sjálfri mér og standa fyrir rétt­indum kvenna sem þurfa að búa við ofbeldi á hverjum degi.“

Nara segir að það hafi haft mikla þýð­ingu fyrir hana þegar fólk kom og sýndi henni stuðn­ing þegar hún var á leið­inni í fang­elsi. „Þau voru þarna fyrir mig en líka fyrir alla sem búa við heim­il­is­of­beldi. Þessi stuðn­ingur gerði það ekki eins erfitt að ganga þarna inn og fyrst eftir að ég kom inn þá upp­lifði ég ákveðna kyrrð sem var skrítin til­finn­ing. En að vakna í fyrsta sinn í fang­elsi var mjög erfitt enda er ég haldin áfallastreituröskun eftir allt sem á undan er gengið. En ég sé mig ekki sem glæpa­mann og ég trúi því að það sem ég gerði hafi verið að verja rétt minn til lífs. Ég valdi að lifa og fyrir það var mér refsað.

Gríð­ar­leg útgjöld fylgja máli Nöru og af þeim sökum heldur hún úti vef­síðu þar sem hægt er að styrkja hana, gofundme.com/f/bring-nara-home. Fjöldi fólks hvatti stjórn­völd til að náða Nöru á sínum tíma, eins og sjá má á und­ir­skrift­ar­lista á síð­unni thepetitionsite.com/en-au/290/558/332/bring-nara-home.

Í dag er ég enn að taka út minn dóm en ég ætla líka að halda áfram minni bar­áttu fyrir rétt­læti fyrir mig og allar konur. Þegar ég hef unnið mína bar­áttu kemur næsta kona og berst fyrir því sama og þannig koll af kolli, því það er það sem við konur höfum verið að gera, þannig munum við að end­ingu sigra þetta órétt­læti.

Þetta hefur verið skelfi­leg lífs­reynsla sem hefur breytt mér vegna þess að ég hef séð slíkt myrkur í heim­inum en það sýnir mér fram á að það getur líka verið svo miklu meira ljós. Þegar manni er kastað svona inn í myrkrið og lifir það af er það vegna þess að maður sér ljósið. Sér von­ina.“

Myndir / Aldís Páls­dóttir
Förðun / Björg Alfreðs­dóttir, alþjóð­legur förð­un­ar­fræð­ingur YSL á Íslandi

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina