Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndandið virðist sýna „aðila sem eru vísvitandi að meiða og pynta dýr“

„Af mynd­band­inu að dæma að þá lítur út fyrir að þarna séu aðilar sem eru vís­vit­andi að meiða og pynta dýr“ segir Þóra Jóhanna Jón­as­dóttir, dýra­læknir dýra­vel­ferðar hjá Mat­væla­stofnun, MAST. „Þeir virð­ast gera sér grein fyrir að skað­inn sé lík­legur til að draga dýrið til dauða.” Samkvæmt 21. grein í lögum um vel­ferð dýra segir að aflífun dýra er ekki heim­ilt sem skemmti­at­riði eða keppni.

Myndandið virðist sýna „aðila sem eru vísvitandi að meiða og pynta dýr“
Skjáskot af Facebook.

Ábend­ingar hafa borist MAST vegna mynd­bands sem hefur farið sem eldur um sinu á Facebook í dag. Mynd­bandið sýnir mann skera sporð­inn af hákarli og sleppa honum svo lausum. MAST fer með eft­ir­lit vegna brota á lögum um vel­ferð dýra.

Hefur verið sagt upp störfum

Ger­and­inn á mynd­band­inu hefur sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs játað verkn­að­inn. Þá kemur fram í til­kynn­ingu frá eig­anda báts­ins að mönn­unum hafi verið sagt upp. „Við eig­endur og útgerð­ar­að­ilar Bílds­eyjar SH 65 hörmum og for­dæmum þann óhugn­an­lega atburð sem kemur fram í mynd­bandi sem fylgir frétt DV í dag. Við höfum hingað til reynt að til­einka okkur góð vinnu­brögð og ábyrga umgengni um auð­lind­ina og líf­ríkið almennt. Þessi atburður er algjör­lega órétt­læt­an­legur og þeir sem stóðu þarna að verki eiga sér engar máls­bætur. Eigendur og útgerð­ar­að­ilar Bílds­eyjar SH 65 eiga ekki annan kost en að hafna frek­ari vinnu­fram­lagi manna sem sýna af sér slíka hegðun.“

„Þarna eru nokkur ákvæði lag­anna sem við teljum vera brotin, miðað við það sem við sjáum á þessu mynd­bandi. Fyrst og fremst [brotið á] 21 grein um aflífun. Þar kemur fram að dýr skulu aflífuð með skjótum og sárs­auka­lausum hætti og forð­ast skal að valda dýrum óþarfa þján­ingum og hræðslu” segir Þóra. „Það væri einnig 6 grein að það sé bannað að fara illa með dýr og mögu­lega 15 grein, að það er bannað að mis­bjóða dýrum.”

Geta átt von á milljónum í sekt

MAST skoða allar ábend­ingar sem koma inn. „Við höfum sam­band við þann grun­aða og upp­lýsum hann um að það sé rök­studdur grunur um að hann hafi brotið lög um vel­ferð dýra. Hann fær þá upp­lýst að hann hafi rétt til að svara ekki spurn­ingum eða afhenda gögn” segir Þóra og bætir við; „Svo skoðum við málið eins og mögu­leiki er á. Þegar rann­sókn hefur farið fram tökum við ákvörðun um hvort að málið sé fellt niður eða hvort við beitum stjórn­vald­sekt.” Þá geta þeir einnig beint mál­inu áfram til lög­reglu.

„Ef við beitum stjórn­vald­sekt þá getum við sektað fyrir upp­hæðir allt að einni milljón” segir Þóra. Þegar um hagn­að­ar­brot er að ræða getur sektin verið allt að 5 millj­ónir. „Ef við vísum mál­inu áfram til lög­reglu, annað hvort til rann­sóknar eða refsi­á­byrgðar að þá getur brotið varðað allt að einu ári í fang­elsi.”

Ábendingum til MAST farið fjölgandi

„Við erum með á heima­síðu okkar ábend­ing­ar­hnapp þar sem fólk getur sent til­kynn­ingar ef að grunur liggur á að illa sé farið með dýr. Eða að aðbún­aður þeirra sé ekki nægi­lega góður.” Þóra nefnir að ábend­ingum hefur farið fjölg­andi síð­ast liðin ár, þó fjöldi ábend­inga við­ist hafa náð jafn­vægi síð­ustu tvö árin. MAST fær um 500 til­kynn­ingar á ári.

„Allar ábend­ingar eru skoð­aðar en vissu­lega geta verið margar ábend­ingar um einn atburð“ segir Þóra. „Sér­stak­lega ef að atburð­ur­inn vekur óhug og dreif­ist víða eins og er klass­ískt í svona til­fellum. Þá fáum við oft margar ábend­ingar. Það eru ekki allar ábend­ingar sem hafa við rök að styðj­ast. Sumar ábend­ingar byggja á mis­skiln­ingi” segir Þóra.

Spurn­ingar hafa vaknað varð­andi teg­und hákarls­ins. Samkvæmt upp­lýs­ingum MAST frá Haf­rann­sókn­ar­stofnun eru þessir hákarlar ekki frið­aðir, en þó upp­lýsa þeir að á lista IUCN sé talið sé að stofnin sé nálægt hættu­mörkum. Þóra seg­ist ekki vita um hvaða teg­und sé að ræða og beinir sér­fræðisp­urn­ingum til Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar. „Við erum búin að upp­lýsa Haf­rann­sókn­ar­stofnun um atburð­inn og  bíðum eftir upp­lýs­ingum frá þeim,” segir hún.

Annar mann­anna, Halldór Gústaf Guð­munds­son, deildi mynd­band­inu af sér og félaga sínum mis­þyrma hákarl­inum í gær en mynd­bandið er ekki sýni­legt á vegg hans lengur. „Það er stundum að ein­staka aðilar finni hjá sér ein­hverja þörf að hreykja sér að ein­hverjum verkn­aði sem að þeir hafa fram­kvæmt.“ Þóra getur ekki getið sér um ástæður sem liggja að baki slíkri þörf. Það hjálpi stofn­un­inni þó við rann­sókn þegar slíkt ger­ist.

https://www.facebook.com/christelyr/videos/10156051422365940/

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi