Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Bára fegin að kröfum Miðflokksmanna hafi verið hafnað

Bára Hall­dórs­dóttir fagnar nið­ur­stöðu stjórnar Per­sónu­verndar, en ítrekar að hún hafi ekk­ert að fela.

Bára Halldórsdóttir.
Bára Hall­dórs­dóttir.

„Ég er bara fegin að nið­ur­staðan skuli vera sú að gögnin séu ekki talin tengj­ast upp­haf­lega mál­inu, sem gengur út á það hvort það hafi verið lög­legt eða ekki að taka þetta upp og deila með fjöl­miðlum. Það er þægi­legt að stjórnin skuli sjá hlut­ina svipað og við gerum,“ segir Bára Hall­dórs­dóttir í sam­tali við Mannlíf um þá nið­ur­stöðu að stjórn Per­sónu­verndar hafi hafnað kröfu lög­manns fjög­urra þing­manna Mið­flokks­ins um frek­ari gagna­öflun í Klaust­ur­mál­inu.

Krafa lög­manns þing­mann­anna gekk meðal ann­ars út á það að þing­menn­irnir vildu fá upp­lýs­ingar frá fjár­mála­fyr­ir­tækjum um greiðslur inn á reikn­ing Báru á tíma­bil­inu 15. nóv­em­ber til 15.des­em­ber. Eins var kraf­ist upp­lýs­inga um smá­skila­boð og sím­töl til Báru.

„Ég er bara fegin að nið­ur­staðan skuli vera sú að gögnin séu ekki talin tengj­ast upp­haf­lega mál­inu, sem gengur út á það hvort það hafi verið lög­legt eða ekki að taka þetta upp og deila með fjöl­miðlum.“

Á vef RÚV er greint frá því að Per­sónu­vernd telji sig ein­fald­lega ekki hafa heim­ild til öfl­unar upp­lýs­inga frá fjar­skipta­fyr­ir­tækjum og fjár­mála­fyr­ir­tækjum vegna með­ferðar kvört­un­ar­máls sem varði ekki við­kom­andi fyr­ir­tæki heldur í þessu til­viki Báru sjálfa. Stjórn Per­sónu­verndar telji m.a. að atvik máls­ins verði talin nægi­lega upp­lýst til að Per­sónu­vernd geti kom­ist að efn­is­legri úrlausn. Þess sé kraf­ist að mál­inu verði í heild sinni vísað frá þar sem inn­tak þess lúti að mörk­unum milli tján­ing­ar­frelsis og frið­helgi einka­lífs. Stofnun eins og Per­sónu­vernd eigi ekki að skera úr um það heldur dóm­stólar, eins og fram kemur á vef RÚV.

Þrátt fyrir að vera fegin þess­ari nið­ur­stöð­unni ítrekar Bára að hún sjálf hafi ekk­ert að fela. „Nei, eins og þegar hefur komið fram í fjöl­miðlum þá hef ég ekk­ert að fela. Bara ekki neitt. Ef þessir menn vilja vita hvað ég nota stórar nær­buxur, þá get ég alveg upp­lýst þá um það,“ segir hún yfir­veguð.

Þú virð­ist taka þessu öllu með ótrú­legu jafn­að­ar­geði. „Auðvitað er það ekki þannig að þetta hafi engin áhrif á mig,“ segir hún þá. „En ég verð að halda ró minni sama hvað gengur á. Ég hef bara ekki um annað að velja, til að við­halda heilsu minni. Það er fyrir öllu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas