Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Þöggun og meðvirkni með ofbeldismönnum

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir er orðin einn helsti tals­maður stjórn­ar­and­stöð­unnar á þingi þrátt fyrir til­tölu­lega stutta þing­setu. Hún er föst fyrir og óhrædd við að taka slag­inn í umdeildum málum og hefur ein­sett sér að berj­ast gegn þöggun og með­virkni á Alþingi.

Þöggun og meðvirkni með ofbeldismönnum
Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir þing­maður Pírata. Mynd / Aldís Páls­dóttir.

„Það er og hefur verið ákveð­inn þögg­unar- og með­virkniskúltúr með ofbeldi og ofbeld­is­mönnum, bæði í sam­fé­lag­inu og inni á Alþingi og maður sér hvernig það er kerf­is­bundið reynt að þagga niður óþægi­leg mál. En við sjáum líka að það er orðið erf­ið­ara að beita þess­ari taktík þótt vissu­lega sé það reynt, eins og í Klaust­urs­mál­inu,“ segir Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata.

Hún hefur látið mikið að sér kveða á þeim rúm­lega tveimur árum sem liðin eru frá því hún sett­ist fyrst inn á þing. Hún er óhrædd við að láta í sér heyra og hefur fyrir vikið hlotið lof en um leið verið gagn­rýnd, sam­an­ber upp­á­tæki hennar og Björns Levís Gunn­ars­sonar þegar þau settu upp „Fokk ofbeldi“-húfu í þing­sal á meðan Bergþór Ólason flutti ræðu í þing­sal. Að hennar sögn var það skyndi­á­kvörðun gerð af van­mætti.

Stækkun Miðflokks breytir engu

Spjallið hefst á þing­stör­f­unum í vetur og það líður ekki langur tími þar til Klaust­urs­málið kemur upp. Eðlilega, enda for­dæma­laust mál sem skyggt hefur á flest önnur mál síðan það kom upp í lok nóv­em­ber. Það mál tók nýja stefnu á dög­unum þegar þeir Karl Gauti Hjalta­son og Ólafur Ísleifs­son gengu í Mið­flokk­inn sem þar með er orð­inn stærsti stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn á þingi. Þór­hildur Sunna telur að þessi vend­ing breyti litlu um valda­hlut­föllin á þingi.

„Nei, þetta kom ekki á óvart, mér fannst þetta alltaf tíma­spurs­mál enda sner­ist fund­ur­inn frægi á Klaustri allur um það að lokka þá félaga yfir til Mið­flokks­ins. Flokka­skiptin hafa í sjálfu sér lítil sem engin áhrif á stjórn­ar­and­stöð­una fyrir utan að nú fær Sig­mundur [Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins] að vera fyrstur stjórn­ar­and­stöðu­þing­manna í Eld­hús­dags­um­ræðum og stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra. Honum finnst það eflaust frá­bært en ég sé ekki að það hafi mikil áhrif á okkar störf.“

Fjölgun í þing­liði Mið­flokks­ins breytir engu öðru en að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son fær að fara fyrstur í ræðu­stól við sér­stök til­efni, segir Þór­hildur Sunna.

Annar angi máls­ins sneri að for­mennsku Bergþórs Ólasonar í umhverfis- og sam­göngu­nefnd þings­ins. Bergþór neit­aði lengi vel að verða við kröfu minni­hlut­ans um að víkja vegna Klaust­urs­máls­ins en lét að lokum undan og varð nið­ur­staðan sú að Jón Gunn­ars­son, Sjálf­stæð­is­flokki, tók tíma­bundið við for­mennsku. Þór­hildur Sunna furðar sig á því hvers vegna Mið­flokk­ur­inn hafi frekar verið til í að styrkja stöðu meiri­hlut­ans á þingi heldur en að láta sam­flokks­manni sínum eða öðrum flokki úr minni­hlut­anum for­mennsk­una í té.

„Ég held að þeir telji að þessu sæti Bergþórs sé best varið hjá Sjálf­stæð­is­flokknum upp á það að gera að Bergþór fái það aftur á ein­hverjum tíma­punkti, að þetta sé ráð­stöfun upp á það að gera og ekk­ert annað. Og þeir treysta sjálf­stæð­is­mönnum best til að færa Bergþóri for­manns­sætið aftur.“

Bergþór var búinn að sitja sem fast­ast í tvær vikur án þess að vilja nokkuð gera til þess að skapa vinnu­frið í nefnd­inn.

Þór­hildur Sunna lítur svo á að Mið­flokk­ur­inn sé í raun orð­inn fjórða hjólið undir vagni rík­is­stjórn­ar­innar fremur en hluti af stjórn­ar­and­stöð­unni.

„Bergþór var búinn að sitja sem fast­ast í tvær vikur án þess að vilja nokkuð gera til þess að skapa vinnu­frið í nefnd­inni og án þess að stjórn­ar­meiri­hlut­inn vildi taka af skarið og fella hann fyrst Mið­flokk­ur­inn vildi ekki skipta inn þing­manni sem var ekki á Klaustri. En hann fær þessa fal­legu útgöngu­leið á silf­ur­fati frá stjórn­ar­meiri­hlut­anum. Mér þykir það gefa í skyn að það sé eitt­hvað sam­komu­lag þarna á milli, að það séu ein­hver kaup kaups,“ segir hún og bendir jafn­framt á mik­inn sam­hljóm með rík­is­stjórn­inni og Mið­flokknum í málum eins og lækkun veiði­gjalda og sam­göngu­á­ætlun.

Skyndiákvörðun gerð af vanmætti

Upp­á­koman sem vísað var til í inn­gangi hlaut afar blendin við­brögð. Á meðan sumir hrósuðu þeim fyrir hug­rekki voru aðrir sem vildu meina að þau hafi sett svartan blett á störf þings­ins. Þór­hildur Sunna við­ur­kennir að við­brögðin hafi verið ákaf­ari en hún átti von á.

„Ég hefði betur mátt gera mér grein fyrir því að fólk myndi taka þessu svona illa. Þetta var ekki beint þaul­skipu­lagt atriði. Þetta var skyndi­á­kvörðun og eig­in­lega gerð af ákveðnum van­mætti,“ útskýrir hún. Þau hafi með þessu viljað mót­mæla þrá­tefl­inu í kringum for­mennsku Bergþórs.

„Þarna var Bergþór, sem for­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar, að ræða sam­göngu­á­ætlun og mér fannst ein­hvern veg­inn ólíð­andi að hann fengi að stíga þarna á stokk án þess að nokkur segði að þeim þætti það athuga­vert. Á sama tíma mátti ég ekk­ert tjá mig um málið því þess var óskað að trún­aði yrði haldið á meðan við­ræður milli þing­flokks­for­manna stóðu yfir. En mér fannst nauð­syn­legt að sýna að okkur stæði ekki á sama, að þetta væri ekki í lagi.“

Sérðu eftir þessu?

„Ég sé ekki eftir þessu en ég held að ef ég hefði haft meiri tíma til að hugsa þetta þá hefði ég mögu­lega ekki þorað að gera þetta.“ Engu að síður seg­ist Þór­hildur Sunna skilja að fólki hafi sárnað þessi fram­koma en þetta hafi verið gert undir ákveðnum kring­um­stæðum.

Uppátæki Þór­hildar og Björns Levís Gunn­ars­sonar, þegar þau settu upp „Fokk ofbeldi“-húfu í þing­sal á meðan Bergþór Ólason flutti ræðu í þing­sal, hlaut afar blendin við­brögð.

„Við stóðum þarna í tvær sek­úndur með þessar húfur til þess að sýna okkar skoðun á því að hann sæti þarna áfram sem for­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar og, að því að ég best veit, trufl­uðum hans ræðu nákvæm­lega ekki neitt. Rétt á undan voru umræður um sam­göngu­á­ætlun og hver ein­asta kona í stjórn­ar­and­stöðu fékk ekki að klára eina setn­ingu í andsvörum við stjórn­ar­þing­menn vegna ítrek­aðra og mjög dóna­legra framí­kalla frá stjórn­ar­meiri­hlut­anum. Að því er virt­ist skipu­lagt. Það var hluti af þessu líka. Mér mis­bauð þessi fram­koma.“

Við stóðum þarna í tvær sek­úndur með þessar húfur til þess að sýna okkar skoðun á því að hann sæti þarna áfram sem for­maður umhverfis- og sam­göngu­nefndar.

Gagn­rýnin í kjöl­far þess­arar upp­á­komu var á köflum æði per­sónu­leg og gerðu nafn­kunnir menn sér far um að gera athuga­semdir við lík­ams­vöxt Þór­hildar Sunnu.

„Það voru ein­hverjir sem fóru út í að gera athuga­semdir við hvernig ég liti út og sögðu að þarna væri lítil húfa á stórum skrokki. Mér finnst þetta vera talsmáti og árásir sem vits­muna­lega gjald­þrota fólk notar til þess að ráð­ast á fólk sem það á ekk­ert í hug­mynda­fræði­lega. Ef þú hefur ekk­ert betra að segja um mig og mína póli­tík en að setja út á hvernig ég lít út, þá er kannski ekk­ert sér­stak­lega mikið varið í þinar skoð­anir.“ Aðspurð hvort hún taki slíkar athuga­semdir nærri sér svarar hún: „Já, það er ekk­ert voða­lega þægi­legt að útlitið á manni sé á milli tann­anna á fólki. Ég held að engum finn­ist það þægi­legt. En á sama tíma er það tölu­verð huggun harmi gegn að þetta eru vopn þeirra sem hafa ekki neitt merki­legt fram að færa.“

Beita kerfisbundinni þöggunartaktík

Þau tvö og hálft ár sem Þór­hildur Sunna hefur setið á þingi seg­ist hún hafa greint ákveðið mynstur í því hvernig óþægi­leg mál eru tækluð í umræð­unni. „Ég sé þetta end­ur­tekið og kalla þetta þögg­un­ar­taktík. Þá er byrjað að gera lítið úr mál­inu og segja að þetta sé ekk­ert til þess að tala um. Þetta snýst um að smætta málið og gera það sem minnst. Þegar það dugar ekki er oft gripið til næsta ráðs sem er að skjóta sendi­boð­ann. Það er að ráð­ast á þá sem benda á vanda­málið, gera þeirra hlut sem minnstan og gera lítið úr þeirra per­sónu og hvötum.

Síðasta trikkið í þess­ari hringrás er svo sögu­fals­anir og eft­irá­skýr­ingar þar sem ann­að­hvort er farið út með hreinar lygar eða eft­irá­hag­ræð­ingu á sann­leik­anum.

Þegar það slær ekki á umræð­una er fund­inn ein­hver annar söku­dólgur eða blóra­bögg­ull, sem er mjög klass­ískt trikk í þess­ari bók. Því næst eru allir gerðir sam­sekir og sagt að þetta sé öllum að kenna og þess vegna er þetta ekki neinum að kenna. Síðasta trikkið í þess­ari hringrás er svo sögu­fals­anir og eft­irá­skýr­ingar þar sem ann­að­hvort er farið út með hreinar lygar eða eft­irá­hag­ræð­ingu á sann­leik­anum.“

Þór­hildur Sunna nefnir bæði „upp­reist æru“-málið og Klaust­urs­málið í þessu sam­hengi. Í því síð­ar­nefnda hafi þeir sem þar komu við sögu reynt að gera sem minnst úr mál­inu og talað um að þetta væri ein­ungis fyllirís­röfl á bar. Svo var farið í að skjóta sendi­boð­ann sem í þessu til­viki var Bára Hall­dórs­dóttir sem tók sam­talið upp á barnum. Næsti söku­dólgur var fund­inn í Stein­grími J. Sig­fús­syni þing­for­seta áður en Klaust­urs­menn gerðu alla sam­seka með því að segja að svona orð­ræða væri við­tekin venja á þingi. Loks hafi þeir komið fram með ýmiss konar mistrú­verð­ugar eft­irá­skýr­ingar eftir því sem mál­inu hefur undið fram.

„Það sama gerð­ist í „upp­reist æru“-mál­inu. Til dæmis steig Brynjar Níelsson fram og sagði að það væru til verri brot gegn börnum en þau sem Robert Downey framdi gegn Nínu Rún, Höllu, Glódísi Töru og Önnu Katrínu – eða þegar Bjarni sagði eftir fall rík­is­stjórn­ar­innar að hugur þeirra hafi alltaf verið með þolendum.“

Þór­hildur Sunna þakkar MeToo-umræð­unni að erf­ið­ara er að beita þess­ari taktík en áður.

„Það er erf­ið­ara fyrir með­virkn­ina að ná tökum á fólki og það er erf­ið­ara fyrir þessa þögg­un­ar­taktík að virka á mál. Það er auð­veld­ara að koma málum á dag­skrá og það er erf­ið­ara að taka þau af dag­skrá með þess­ari taktík sem stjórn­mála­menn og aðrir hafa notað til að koma sér undan óþægi­legum málum. Hún virkar síður en hún gerði fyrir tíma MeToo. Athyglin var alltaf á þeim sem var brotið á frekar en þeim sem braut á þeim. Þetta virkar síður núna. Dag­skrár­valdið er ekki lengur í hönd­unum á þeim sem frömdu brotið heldur geta þolendur líka haldið dag­skránni á lofti. Með­virknin með brota­mönnum fer þverr­andi þótt hún geti enn verið of rík í sumum til­fellum.“

Tókum illa á fyrsta alvörumálinu

Þegar MeToo-bylt­ingin hófst var Alþingi fljótt að bregð­ast við og efndu þing­menn til svo­kall­aðrar rak­ara­ráð­stefnu og var útkoman meðal ann­ars sú að breyta siða­reglum þings­ins á þann hátt að óvið­eig­andi hegðun verði ekki liðin. Var Alþingi í far­ar­broddi þjóð­þinga þegar kom að við­brögð­unum við MeToo. Þór­hildur Sunna, sem situr í Íslands­deild Evr­ópu­ráðs­þings­ins og er for­maður laga- og mann­rétt­inda­nefndar þess, hefur tekið málið upp á þeim vett­vangi.

Mér finnst samt dap­ur­legt að þurfa að færa þær fregnir líka að við höfum tekið mjög illa á fyrsta alvöru­mál­inu sem upp kom í kjöl­farið.

„Það er stutt síðan Alþjóða­þing­manna­sam­bandið í sam­starfi við Evr­ópu­ráðs­þingið, gaf út mjög svarta skýrslu um áreitni í garð þing­kvenna og starfs­manna í þjóð­þingum þess­ara stofn­ana og mér finnst mik­il­vægt að við bregð­umst hratt og örugg­lega við því alþjóð­lega og kerf­is­bundna ofbeldi sem birt­ist í þeirri skýrslu. Ég lagði fram til­lögu sem fjöld­inn allur af þing­mönnum Evr­ópu­ráðs­þings­ins hefur und­ir­ritað. Tillagan felur í sér að samin verði skýrsla sem fer yfir þróun MeToo-hreyf­ing­ar­innar í póli­tík og leggi til breyt­ingar á siða­reglum Evr­ópu­ráðs­þings­ins.“

Þór­hildur Sunna er fram­sögu­maður skýrsl­unnar sem tekin var fyrir í jafn­réttis­nefnd Evr­ópu­ráðs­þings­ins í gær, en skýrslan sjálf verður svo á dag­skrá þings­ins 9. apríl. „Ísland mun koma þar við sögu enda vorum við fyrsta þjóð­þingið til þess að bregð­ast við MeToo með rak­ara­ráð­stefnu innan þings. Mér finnst samt dap­ur­legt að þurfa að færa þær fregnir líka að við höfum tekið mjög illa á fyrsta alvöru­mál­inu sem upp kom í kjöl­farið, og að enn sjái ekki til lands í Klaust­ur­mál­inu.“

Sinnuleysi gagnvart hinum verst settu

Annað mál sem Þór­hildur Sunna berst fyrir lýtur að heild­ar­end­ur­skoðun lög­ræð­islaga og hefur þings­á­lykt­un­ar­til­laga þess efnis verið lögð fram. Gömlu lögin eru, að hennar mati, barn síns tíma. Þau feli í sér mjög ríka for­ræð­is­hyggju gagn­vart borg­ur­unum, einkum og sér í lagi þeirra sem eiga undir högg að sækja í sam­fé­lag­inu. Í skjóli þeirra laga hafi rík­is­valdið tæki til að fara fram með offorsi gegn þessum hópum.

„Ef við horfum á fólk sem á við geð­sjúk­dóma að stríða, þá er allt reglu­verk í kringum rétt­indi þess mjög veikt og völdin sem yfir­völd og læknar hafa yfir lífi þess eru gríð­ar­lega mikil. Varnir fólks­ins við því að vera beitt órétti, offorsi, þving­aðri með­ferð eða jafn­vel frels­is­svipt­ingu eru gríð­ar­lega tak­mark­aðar og stand­ast engar mann­rétt­inda­kröfur, stand­ast ekki alþjóð­legar skuld­bind­ingar Íslands og við erum langt á eftir öllum löndum sem við viljum gjarnan bera okkur saman við þegar kemur að mann­rétt­indum.“

Þannig séu rétt­ar­heim­ildir til að frels­is­svipta fólk mjög rúmar. „Það er nóg að læknir telji að þú sért með alvar­legan geð­sjúk­dóm til þess að geta svipt þig frelsi. Rétt­ar­staða fólks við að missa frelsið, vera jafn­vel sprautað niður með geð­breyt­andi efnum, er gríð­ar­lega veik. Þetta á líka við fólk sem á við alvar­legan áfengis- og fíkni­efna­vanda að stríða. Ég held að þetta komi til af því að við teljum okkur búa í þetta litlu sam­fé­lagi að það séu bara allir að passa upp á alla en átti sig ekki á því að þeim mun smærra sem sam­fé­lagið er, þeim mun mik­il­væg­ara er að það gildi skýrar og strangar reglur um allar skerð­ingar á rétt­indum fólks, sér­stak­lega því sem stendur höllum fæti í sam­fé­lag­inu.

Rétt­ar­staða fólks við að missa frelsið, vera jafn­vel sprautað niður með geð­breyt­andi efnum, er gríð­ar­lega veik.

Vegna þess að hættan á því að ein­hver kunn­ings­skapur ráði för er svo rík í svona sam­fé­lagi.“ Kerf­is­bundnir for­dómar hafa einnig áhrif þar á. „Mér hefur fund­ist vera ákveðið sinnu­leysi, fjár­skortur og póli­tísk for­gangs­röðun sem veldur því að minni­hluta­hópar, hvort sem það er fatlað fólk, geð­sjúkir, fangar eða vímu­efna­neyt­endur, hafa fengið að vera aft­ast í röð­inni þegar kemur að verndun rétt­inda.“

Dystópísk og ógeðsleg hugmynd

Annað mál er lýtur að rétt­indum borg­ar­anna gagn­vart rík­is­vald­inu, í þessu til­felli kvenna, er til með­ferðar hjá þing­inu og lýtur að fóst­ur­eyð­ingum, eða þung­un­ar­rofi eins og það verður kallað fram­vegis nái frum­varpið í gegn að ganga. Það mál er umdeilt, einkum ákvæði um að konur munu hafa fullan rétt til að taka ákvörðun um þung­un­ar­rof fram að 22. viku. Sjálf er Þór­hildur Sunna fylgj­andi frum­varp­inu.

„Það eina sem þessi nýju lög breyta er að ákvörð­un­ar­valdið fær­ist úr höndum rík­is­ins í hendur kon­unnar. Þessi tíma­frestur er nú þegar til staðar en til þess að fá hann í gegn þarf að fara fyrir und­an­þágu­nefnd á vegum rík­is­ins. 22. viku í ákveðnum und­an­tekn­ing­ar­til­fellum. Það sem er verið að gera með þess­ari nýju lög­gjöf er að konum er treyst til að taka þessa ákvörðun og að þær þurfi ekki sam­þykki ein­hverrar nefndar, lækna, rík­is­starfs­manna eða emb­ætt­is­manna fyrir þeirri ákvörðun.“

Það sem er verið að gera með þess­ari nýju lög­gjöf er að konum er treyst til að taka þessa ákvörðun.

Uppákoma varð á þingi í umræðu um málið á dög­unum þegar Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Mið­flokks­ins, spurði Þórhildi Sunnu hvort hún hefði per­sónu­lega reynslu af þung­un­ar­rofi. Því tók Þór­hildur Sunna illa og baðst Þor­steinn síðar afsök­unar á ummælum sínum. Þór­hildur Sunna segir Mið­flokk­inn nota „ljóta taktík“ í nálgun sinni á þetta mál og nefnir sér­stak­lega frum­varp sem þing­menn flokks­ins hafa lagt fram og felur í sér að mæður sem gefa börn sín til ætt­leið­ingar fái fæð­ing­ar­styrk í sex mán­uði eftir fæð­ingu barns.

„Þetta finnst mér alveg gríð­ar­lega dystópísk og ógeðs­leg hug­mynd. Þetta lyktar af því að konur séu útung­un­ar­vélar sem fái greitt fyrir að ganga með börn sem fólk vill ætt­leiða. Þetta angar af kven­fyr­ir­litn­ingu og for­dómum og van­trausti í garð kvenna. Ef þeim er svo annt um að draga úr ótíma­bærum þung­unum ættu þessir þing­menn að vera miklu dug­legri að hvetja til smokka­notk­unar. Það eru einmitt karl­menn sem best eru til þess fallnir að koma í veg fyrir slíkar þung­anir.“

Laug að hágrátandi barninu

Það lífs­við­horf að vilja vernda borg­ar­ana frá ofríki kerf­is­ins mót­að­ist snemma hjá Þórhildi Sunnu enda fékk hún sjálf að finna fyrir því á skóla­göngu sinni. Hún náði ekki að fóta sig í grunn­skóla eftir að fjöl­skylda hennar flutt­ist til lands­ins frá Þýska­landi og seg­ist hún hafa upp­lifað höfnun frá sam­nem­endum sínum. Í fyrstu var hún skilin út undan en þegar hún flutt­ist í Mos­fellsbæ varð hún fyrir grimmu ein­elti.

„Það var frekar brút­alt og ég end­aði á því að flýja því þetta var ekki hægt lengur. Ég veit ekki hvort það sé rétt upp­lifun en mér leið þá eins og allur skól­inn hataði mig og léti mér líða þannig“. Endaði Þór­hildur Sunna með að fara í Lauga­lækj­ar­skóla þar sem hún féll vel inn í hóp­inn. En það var ekki auð­sótt mál.

Það var frekar brút­alt og ég end­aði á því að flýja því þetta var ekki hægt lengur.

„Það sem situr hvað mest í mér enn þá er að reglu­lega fór ég inn á skrif­stofu aðstoð­ar­skóla­stjór­ans á þessum tíma og grát­bað hana um að fá að skipta um skóla. Þessi kona sagði mér end­ur­tekið að það væri ekki hægt, það væri allt of dýrt, vissi ég hvað það þyrfti að borga með mér ef ég færi í annan skóla, þetta væri bara ómögu­legt og ég þyrfti bara að herða mig. Þessu laug hún að mér, hágrát­andi barn­inu. Svo þegar ég loks­ins trúði for­eldrum mínum fyrir því hvað mér leið ömur­lega í skól­anum þá fóru þau form­lega fram á að ég skipti um skóla og það var ekk­ert mál. Það var ekki ein­hver pen­inga­legur ómögu­leiki eins og aðstoð­ar­skóla­stjór­inn hafði end­ur­tekið logið að mér. Það var það ljótasta í þessu öllu saman.“

Það var á þessum tíma sem Þór­hildur Sunna ákvað að leggja fyrir sig mann­rétt­inda­lög­fræði. „Ég ætl­aði alltaf að verða leik­kona en þessi höfnun hjá jafn­öldrum mínum dró mikið úr mér mátt­inn. Ég las mikið þegar ég var ein í skól­anum og las gríð­ar­lega mikið af sjálfævi­sögum kvenna frá Mið­aust­ur­löndum sem höfðu lent í alls konar ofbeldi fyrir það eitt að vera konur. Þetta rækt­aði með mér ákveðið þakk­læti fyrir að vera þó sú mann­eskja sem ég var, að vera kona á Íslandi og geta farið í skóla og geta valið að gift­ast eða ekki. Ég afréð það að ég myndi fara í að hjálpa þessum konum í Mið­aust­ur­löndum. Svo reyndar þroskað­ist það af mér og ég átt­aði mig á því að þær væru alveg full­færar um að berj­ast fyrir sínum rétt­indum sjálfar. En þessi áhugi á mann­rétt­indum kvikn­aði í kringum þetta.“

Freistar að sitja í ríkisstjórn

Þór­hildur Sunna lét draum­inn ræt­ast og hélt út eftir fram­halds­skóla til að læra mann­rétt­inda­lög­fræði, fyrst í Þýska­landi og síðan í Hollandi. Hún fór í starfs­nám hjá Alþjóð­lega stríðs­glæpa­dóm­stólnum í Haag og stóð hugur hennar til að starfa áfram á þeim vett­vangi. Í það minnsta var planið aldrei að fara á þing.

„Ég var eig­in­lega bara sótt,“ segir hún, en félagi hennar í Pírötum, Smári McCarthy, hafði rekið augun í greinar hennar um lög­fræði­leg álita­efni tengd mann­rétt­indum og borg­ara­rétt­indum. „Við end­uðum á því að hitt­ast og hann vildi meina að mínar hug­myndir ættu góða sam­leið með Pírötum og hvatti mig til þess að ganga í Pírata, beita mér þar og bjóða mig fram. Ég hafði fylgst með þeim úr fjar­lægð og lit­ist vel á það sem þau voru að gera en mér fannst póli­tík á Íslandi ekk­ert mjög freist­andi starfs­vett­vangur. Ég tók mér góðan umhugs­un­ar­frest, ákvað að slá til og gekk í Pírata 2015. Ári síðar var ég komin á þing.“

„Ég var eig­in­lega bara sótt,“ segir Þór­hildur Sunna um til­drög þess að hún fór í fram­boð fyrir Pírata. Fram að því að hafði hugur hennar stefnt á að vinna að mann­rétt­inda­málum á erlendri grundu.

Þór­hildur Sunna seg­ist una sér ágæt­lega í stjórn­ar­and­stöðu en við­ur­kennir þó að það freisti að taka sæti í rík­is­stjórn. „Sem stjórn­ar­and­stöðu­þing­maður get ég vissu­lega haft mikil og góð áhrif, en getan til þess að breyta hlut­unum eftir sinni eigin póli­tísku sýn er mjög tak­mörkuð ef maður kemst ekki í rík­is­stjórn. Vissu­lega hlýtur það að vera tak­mark að kom­ast í rík­is­stjórn og þá með flokkum sem deila svip­aðri sýn á stjórn­málin og á sam­fé­lagið. Öðruvísi held ég að það sé til lít­ils unnið. Ég væri alveg til í að kom­ast í rík­is­stjórn á ein­hverjum tíma­punkti en ekki af því bara heldur með því mark­miði að bæta rétt­ar­ríkið á Íslandi, auka aðgengi fólks á ákvarð­ana­töku og auka rétt­læti, eins og ég sé það fyrir mér, í sam­fé­lag­inu.“

Þar vegur þyngst, að mati Þór­hildar Sunnu, að allir séu jafnir fyrir lög­unum. Eins og staðan sé í dag beiti rík­is­valdið sér af óhófi gagn­vart þeim sem eiga erfitt upp­dráttar á meðan það hygli þeim sem eru í for­rétt­inda­stöðu.

„Það er mjög mis­mun­andi hvernig það er komið fram við þig ef þú ert Jón eða séra Jón. Ef þú til­heyrir ákveð­inni stétt eða hefur ákveðin ítök, þá færðu allt annað við­mót frá kerf­inu en ef þú gerir það ekki. Ég veit til dæmis ekki til þess að það sé verið að rann­saka á nokkurn hátt þennan sendi­herrakapal sem Gunnar Bragi og þeir lögðu upp með á Klaustri en á sama tíma er Per­sónu­vernd að rann­saka Báru Hall­dórs­dóttur fyrir að hafa tekið upp opin­berar per­sónur á bar. Það er heldur ekki verið að rann­saka skatta­mál Bjarna Bene­dikts­sonar eða akst­urs­ferðir Ásmundar Frið­riks­sonar og ég fæ ekki séð að það verði nokkurn tíma gert. Það held ég að hafi mikið með þeirra stöðu að gera.

Ef þú til­heyrir ákveð­inni stétt eða hefur ákveðin ítök, þá færðu allt annað við­mót frá kerf­inu en ef þú gerir það ekki.

Ég er ekki að segja að þeir hafi framið nokkurn glæp en mér finnst aug­ljóst að það sé ástæða til rann­sóknar miðað við gögnin sem við höfum fyrir framan okkur. En svo horfum við á fólk, þá sem eru bóta­þegar eða fá pen­ing frá rík­inu af einum eða öðrum ástæðum, og það er jafn­vel farið í her­ferðir út af bóta­svindli og skrif­aðar heilar skýrslur sem eftir á að hyggja reynd­ust byggja á vafasömum grunni. Rík­is­vald­inu er beitt óspart og jafn­vel úr hófi gagn­vart þeim sem eiga erfitt með að verja sig.“

Myndir / Aldís Páls­dóttir
Förðun / Björg Alfreðs­dóttir, alþjóð­legur förð­un­ar­fræð­ingur Yves Saint Laurent á Ísland

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Annar glæpamannanna hafði sakaferil að baki en hinn hafði ekki áður gerst sekur um þjófnað
Heimur

Segir Net­anyahu þrýsta á Trump um kjarn­orku­árás

Pólitík

Reykja­vík ætlar að snúa millj­arða­halla í afgang á aðeins einu ári

Heimur

Úkraínsk dróna­árás olli miklum eldi í rúss­neskri olíu­hreinsi­stöð

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Innlent

Innlent

Getur munað rúmum 22 þús­und krónum á umfelgun fólks­bíls

ASÍ ráðleggur fólki að óska eftir staðfestu heildarverði.
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu