Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Vilja vita hvert millfærslurnar af reikningi Arcticnam fóru

Mál sem tengjast félagi í eigu Samherja og fyrir­tækja í Namibíu hafa undan­farið verið til rann­sóknar af spillingar­nefnd þar í landi.

Skjáskot / RÚV
Skjáskot / RÚV

Nefnd um varnir gegn spillingu (Anti Corruption Commision) hefur undan­farið haft til rann­sóknar mál sem tengjast spillingu í namibískum sjávar­útvegi, þar á meðal peninga­greiðslur af reikningi Articnam, sem er félag í eigu sjávar­útvegs­fyrir­tækisins Samherja og namibískra fyrir­tækja, að því er fram kemur á RÚV. Þar er greint frá því að Namibískir fjöl­miðlar hafi fjallað um rannsókn á því hvert 60 milljónir namibískra dollara, sem samsvarar um hálfum milljarði íslenskra króna, voru milli­færðar af reikningi Arcticnam, fyrir þremur árum.

Fjölmiðllinn Namibian greindi frá því í september að Sharon Neumbo, stjórnar­formaður Sinco Fishing, félags sem starfað hefur með Samherja í Namibíu, hafi leitað til lögreglu í sama mánuði vegna milljóna­millifærslu út af reikningum Arcticnam. Taldi Neumbo færsluna vera ólöglega. Í frétt The Namibian segist Neumbo hafa undir höndum gögn sem sýni að féð hafi verið millifært í þremur greiðslum til tveggja íslenskra fyrir­tækja, annað í Namibíu en hitt á Máritíus. Var Neumbo sjálf síðan handtekin grunuð um spillingu, nánar tiltekið fyrir að hafa svikið hundruð þúsund namibískra dala út úr eigin félagi, en var sleppt úr varðhaldi stuttu síðar.

Félög tengd Samherja hafa árum saman stundað fisk­veiðar við vestur­strönd Afríku og í gær sendi Samherji frá sér yfir­lýsingu vegna væntanlegrar umfjöllunar fjölmiðla um meint brot er varða starfsemi útgerðarinnar í Namibíu. Þar segir meðal annars að forráða­menn Samherja hafi orðið þess áskynja að ekki væri allt með felldu í rekstrinum í Namibíu árið 2016 og af þeim sökum hafi fyrr­verandi rannsóknar­lögreglu­maður verið sendur þangað til að kanna málið. Nokkurra mánaða vinna hafi leitt til þess að stjórn­anda Samherja í Namibíu var sagt upp störfum, vegna óásættanlegrar framgöngu hans og hegðunar.

Í yfir­lýsingunni kemur jafnframt fram að Samherji ætli ekki að tjá sig um einstakar ásakanir fyrr en niður­staða ítarlegrar rann­sóknar alþjóð­legu lögmanns­stofunnar Wikborg Rein á starfsemi útgerðarinnar í Afríku liggur fyrir.

Í auglýsingu fyrir frétta­skýringa­þáttinn Kveik, sem verður sýndur í lengri útgáfu kvöld, kemur fram að „hulunni verði svipt af vafasömum starfs­háttum íslensks stór­fyrirtækis„. Þá má geta þess að Stundin hefur boðað ítarlega útgáfu blaðisins á óhefðbundnum tíma í kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim