Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Skoðun

Ég fór til vinnu – ekki til að missa heils­una

Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Pólitík

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

Fólk

Líf á mörkum friðar og átaka

Heimur

Alanis Moris­sette kemur út sem pankyn­hneigð

Minning

Sæmi Rokk er fall­inn frá

Heimur

Jessica Delfino segir Russell Brand hafa ítrekað boðið sér heim til sín

Innlent

„Það er alls ekki hryðju­verk að hleypa dýrum út“

Frétt

„Vændi snýst um sam­fé­lagið í heild“

Heimur

Stakk nágranna sinn í brjóstið eftir deilur um lausan hund

Skora á stjórnvöld að lækka blómatolla: „Stuðla að því að blómaverð er hátt og tilteknar vörur fást ekki“

Félag atvinnu­rek­enda hefur skrifað fjár­mála­ráð­herra og land­bún­aðar- og sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra sam­hljóða erindi og óskað við­ræðna við ráðu­neyti þeirra um nið­ur­fell­ingu tolla á blómum.

Skora á stjórnvöld að lækka blómatolla: „Stuðla að því að blómaverð er hátt og tilteknar vörur fást ekki“

Í erindi FA er bent á það óhag­ræði, háa verð og sam­keppn­is­hömlur sem leiði af háum blóma­tollum. Erindi FA fylgir stuðn­ings­yf­ir­lýs­ing 25 blóma­versl­ana, -inn­flytj­enda og -verk­stæða víða um land, sem í sam­ein­ingu standa fyrir drjúgum meiri­hluta blóma­versl­unar og blóma­inn­flutn­ings á Íslandi.

Á heima­síðu FA kemur fram að tollar á blóm hafi orðið eftir þegar áformum var hrint í fram­kvæmd um að fella niður tolla á öllum vörum nema mat­vörum 2016-2017. Háir tollar stuðli að alltof háu verði á blómum, en blóma­tollar sam­an­standa ann­ars vegar af 30% verð­tolli og hins vegar stykkja­tolli sem leggst á hverja ein­ustu plöntu, sama hvort um er að ræða potta­blóm eða afskorin blóm. Þannig leggst á flest inn­flutt potta­blóm 30% verð­tollur og 200 króna stykkja­tollur.

Tollur hvetur til innflutnings á dýrari vörum

Stykkja­toll­ur­inn hvetur inn­flytj­endur til að flytja inn dýr­ari vörur, þar sem það ein­fald­lega borgi sig ekki að flytja inn ódýr­ari vöru. „Þetta stuðlar ann­ars vegar að því að verð á blómum er hátt og hins vegar að því að til­teknar vörur fást ekki,“ segir á heima­síðu FA.

Innlend framleiðsla annar ekki eftirspurn

Samdóma álit allra fag­að­ila sem að mál­inu koma er að inn­lend fram­leiðsla anni ekki eft­ir­spurn. Fáar teg­undir eru rækt­aðar á Íslandi og magn blóma­búða fyrir stærri blóma­daga, til dæmis Mæðradag, Konudag og Val­ent­ínus­ar­dag, anni ekki eft­ir­spurn.

Háir tollar þótt innlend framleiðsla sé engin

FA segir að eina hugs­unin að baki tollum á blóm geti verið sú að vernda inn­lenda fram­leiðslu fyrir sam­keppni. Háir tollar eru hins vegar á mörgum teg­undum blóma, burt­séð frá því hvort ein­hver inn­lend fram­leiðsla er á þeim. Hvaða rök liggja þar að baki? er spurt í bréfi FA.

Telur FA ekki vafa leika á því að aukin velta með inn­flutt blóm, sem myndi fylgja afnámi tolla, myndi bæta rík­is­sjóði tekju­tapið og gott betur í formi auk­inna tekna af virð­is­auka­skatti.

Ósk um viðræður

Í nið­ur­lagi bréfs­ins til ráð­herr­anna lýsir FA sig reiðu­búið til við­ræðna við atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið og fjár­mála­ráðu­neytið um leiðir til að auka frelsi í inn­flutn­ingi á blómum og fella niður tolla, jafnt versl­un­inni í land­inu sem neyt­endum til hags­bóta. Félagið leggur til að full­trúar blóma­versl­ana og inn­flytj­enda á blómum verði jafn­framt kall­aðir til í þeirri vinnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Erlendir ferða­menn í bílnum sem lenti í Kleifá

Straumurinn bar bílinn í gegnum ræsi og þurfti að draga hann úr ánni áður en hægt var að ná öðrum ferðamanninum út.
Heimur

Ungur maður lést í umferð­ar­slysi á Kanarí­eyjum

Heimur

Fyrsti dagur Brands í Wandsworth-fang­els­inu sagður nið­ur­lægj­andi

Heimur

Huckabee segir Satan stjórna and­stæð­ingum Íran­stríðs­ins

Heimur

Ísra­elskur sjón­varps­maður lát­inn víkja eftir rasísk ummæli

Innlent

Innlent

Kristrún segir ekki þörf á fastri við­veru banda­rísks her­liðs á Íslandi

„Sambandið hefur breyst síðan þá. Við berum nú meiri ábyrgð sjálf og mér finnst það hafa gengið vel“
Innlent

Einar Logi birtir mynd­band úr inn­broti sínu hjá Stjörnu­grís

Innlent

Tveir rot­uðu mann í miðbæ Reykja­víkur

Innlent

Ökumaður ók á tvo ljósastaura og umferð­ar­eyju

Innlent

Brennu­varg­arnir í Sorpu komnir aftur á stjá

Innlent

MAST segir að aðgerðir vegna dýra­vel­ferðar megi ekki auka þján­ingar dýra