Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bleika slaufan í ár með breyttu sniði: Komdu með í bíó í kvöld

Árvekni- og fjár­öfl­un­ar­á­tak Krabba­meins­fé­lags Íslands, Bleika slaufan, hófst í dag undir slag­orð­inu „Þú ert ekki ein“.

Bleika slaufan í ár með breyttu sniði: Komdu með í bíó í kvöld
||

Í átak­inu er lögð áhersla á mik­il­vægi stuðn­ings og vin­áttu þegar kona grein­ist með krabba­mein, þegar til­veran breyt­ist snögg­lega og við tekur tími sem getur reynst afar erf­iður. Stuðn­ingur fjöl­skyldu og vina skiptir miklu máli í öllu ferl­inu, allt frá grein­ingu, en einnig fag­legur og félags­legur stuðn­ingur sem Krabba­meins­fé­lagið veitir án end­ur­gjalds. Rann­sóknir sýna að þeim vegnar betur sem fá stuðn­ing í ferl­inu.

Bleika slaufan í ár er háls­men.

Bleika slaufan í ár er hönnuð af Guð­björgu Kristínu Ingv­ars­dóttur, skart­gripa­hönn­uði í AURUM Banka­stræti.  Bleika slaufan í ár er öðru­vísi en þær fyrri, en í fyrsta sinn er hún háls­men, en blómin á henni vísa til vellíð­unar og jákvæðni og hring­ur­inn táknar kven­lega orku og veitir vernd. Guðbjörg leggur áherslu á að háls­men passi bæði konum og körlum: „Enda geta karl­menn verið alveg ófeimnir við að bera Bleiku slauf­una í ár.“

„Það var kom­inn á breyt­ingar eftir 12 ár í formi nælu,“ segir Halla Þor­valds­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Krabba­meins­fé­lags­ins: „Við höfum reglu­lega heyrt af áhuga stuðn­ings­manna og kvenna, á að fá ann­ars konar skart­grip og við erum viss um að þetta gull­fal­lega háls­men höfði til enn breið­ari hóps. Við hlökkum til að sjá fólk á öllum aldri ganga með háls­menið og sýna þannig stuðn­ing við konur og krabba­mein í verki”.

Bíókvöld Bleiku slaufunnar

Í kvöld verður Bíókvöld Bleiku slauf­unnar þegar Downton Abbey verður sýnd á sér­stakri bleikri sýn­ingu í stóra sal Háskóla­bíós. Húsið verður opnað kl. 19 og í and­dyri verður Bleik stemn­ing, þar sem Krabba­meins­fé­lagið kynnir helstu starf­semi sína og styrkt­ar­að­ilar kynna vörur sínar til stuðn­ings átak­inu. Bein útsend­ing verður frá dag­skrá kvölds­ins á net­inu fram að bíó­sýn­ing­unni. Dag­skráin hefst klukkan 20 og kynnar kvölds­ins eru leikkon­urnar Dóra Jóhanns­dóttir og Elva Ósk Ólafs­dóttir.

Hægt er að kaupa miða hér og útsend­ing­una má sjá á bleikaslaufan.is, á visir.is og sam­fé­lags­miðlum félags­ins og nokk­urra hag­að­ila.

Átakið Bleika slaufan er til­einkað bar­átt­unni gegn krabba­meinum hjá konum. Söfn­un­arfé Bleiku slauf­unnar stendur undir stórum hluta af þeirri fjöl­breyttu starf­semi sem Krabba­meins­fé­lagið stendur fyrir án end­ur­gjalds, svo sem ráð­gjöf, stuðn­ingur, nám­skeið, fræðsla, for­varna­starf­semi, hags­muna­gæsla og rann­sóknir.

Bleika slaufan kostar 2.500 krónur og er seld á bleikaslaufan.is og hjá fjöl­mörgum versl­unum um land allt. Að vanda verður hátíð­ars­laufa Bleiku slauf­unnar til sölu í tak­mörk­uðu upp­lagi, en einnig hafa tvær gullslaufur verið hann­aðar sem boðnar verða upp í fjár­öfl­un­ar­skyni.

„Annars vegar er um að ræða gull­háls­men og hins vegar gull­nælu sem er sér­stak­lega ætluð þeim sem sakna næl­unnar,“ segir Guðbjörg.

Taktu þátt í bleika deginum 11. október

Föstu­dag­ur­inn 11. októ­ber er bleiki dag­ur­inn en þann dag hefur skap­ast hefð fyrir því að fólk og fyr­ir­tæki um land allt skreyti sig með bleikum lit. Hægt er að sjá nán­ari upp­lýs­ingar og kaupa slaufu á heima­síð­unni bleikaslaufan.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina