Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Segir fjölskylduna hrædda – „Auðvitað hefur þetta hrikalegar afleiðingar“

Búið er að fresta brott­vísun ungu flótta­barn­anna Ali, Kayan, Saja og Jadin og ungra for­eldra þeirra, Mohammed Al Deewan og Wedyan Al-Shammar, frá Írak til Grikk­lands um óákveð­inn tíma. Þetta er í annað sinn sem brott­vísun þeirra er frestað. Sema Erla Serdar, stofn­andi hjálp­ar­sam­tak­anna Solaris, segir fjöl­skyld­una vera hrædda.

„Það þurfti sem sagt grísk stjórn­völd til þess að stöðva ómann­úð­lega og grimmi­lega með­ferð íslenskra yfir­valda á börnum á flótta, sem voru búin að leigja einka­flug­vél undir þau, svo það sé alveg á hreinu,“ skrif­aði Sema á Facebook í gær.

Sema sagði í sam­tali við Morg­un­út­varpið á Rás 2 í morgun að búið væri að fresta brott­vís­un­inni í óákveð­inn tíma. „Þannig að í bili eru þau óhult en hvað þetta bil er langt veit maður hrein­lega ekki,“ sagði Sema.

Hún segir að í yfir­lýs­ingu útlend­inga­stofn­unar komi fram að grísk stjórn­völd vilji ekki taka við fólk­inu en gefi á sama tíma í skyn að stofn­unin ætli að halda áfram að „suða í þeim“.

Sema benti á að aðstæður í Grikk­landi séu óboð­legar fyrir fólk á flótta. „Þar er mik­ill hús­næð­is­vandi, enga atvinnu að fá, aðgengi skóla er skert fyrir fólk á flótta,“ útskýrði Sema. Hún bætti við að flótta­fólk mæti miklu ofbeldi og for­dómum frá öfga­hópum og nýnas­istum í Grikk­landi. „Staðan hefur versnað og heldur áfram að versna. Þetta eru aðstæður sem við myndum aldrei sætta okkur við fyrir okkur og börnin okkar. Og þá getum við að sjálf­sögðu ekki sent annað fólk í þessar aðstæður.“

„Staðan hefur versnað og heldur áfram að versna.“

Sema segir að hvert Evr­ópu­ríkið á fætur öðru sé að gefa út að þau vilji taka á móti flótta­börnum frá Grikk­landi því staðan sé slæm þar. „Það er því ótrú­legt að íslensk stjórn­völd séu á sama tíma að reyna eins og þau geta að koma þessu fólki til Grikk­lands.“

Ekki það sem þjóðin vill

Sema segir aðgerðir stjórn­valda vera í and­stæðu við vilja þjóð­ar­innar. „Það eru skýr skila­boð um að fólkið í land­inu sé ekki að sam­þykkja þetta. Það sést á mót­mælum og skrifum fólks.“

Hún segir málið hafa reynst fjöl­skyld­unni afar erfitt. „Núna er búið að til­kynna þeim tvisvar sinnum að þau séu að fara og svo er verið að fresta því eftir að þau eru búin að und­ir­búa sig eins og þau geta, pakkað saman og kvatt vini sína. Auðvitað hefur þetta hrika­legar afleið­ingar.“ Sema segir fjöl­skyld­una vera hrædda og vita að „eymd og von­leysi“ bíði þeirra.

Hún bætir við að hún trúi ekki að íslensk stjórn­völd ætli að til­kynna fjöl­skyld­unni í þriðja sinn að nú eigi að vísa þeim í burtu.

Mannlíf ræddi við fjöl­skyld­una í febr­úar. Viðtalið má lesa hérna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð