Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Dúdda rekur ótrúlega örlagasögu sína: „Ekkert af því sem ég hafði ráðgert í lífinu passaði saman við umsjón með fjölfötluðu barni“

Dúdda rekur ótrúlega örlagasögu sína: „Ekkert af því sem ég hafði ráðgert í lífinu passaði saman við umsjón með fjölfötluðu barni“
Dúdda

Guðríður Stein­dórs­dóttir er rétt rúm­lega sex­tug, en er öryrki eftir langvar­andi erf­ið­is­vinnu við að sinna fjöl­fötl­uðum syni sínum til fjölda ára, auk fjölda áfalla. Guðríður segir sögu sína á Facebook-síð­unni: Við erum hér líka, en það eru hjónin Alda Lóa Leifs­dóttir og Gunnar Smári Egilsson sem skrifa þar sam­tíma­sögur öryrkja á Íslandi.

„Ég fædd­ist ekki svona og lenti heldur ekki í slysi, ekki nema þið viljið kalla örlögin slys. Ég er ekki öryrki eftir slys eða vírus eða smit, ég er öryrki eftir erf­ið­is­vinnu. Og samt var ég ekki í vinnu þegar ég varð öryrki,“ segir Guðríður eða Dúdda eins og hún er alltaf kölluð.

Hún er fædd og upp­alin í Reykja­vík, en flutti ung með fjöl­skyld­unni til Sauð­ár­króks. Eftir gjald­þrot föður hennar flutti hún til Akur­eyrar í nám og kynnt­ist þar fyrsta barns­föður sínum 16 ára gömul og eign­að­ist með honum dóttur. Skildu þau og Dúdda gift­ist öðrum manni, sem hún bjó með í 11 ár og ætt­leiddi dóttur með.

Báðir menn­irnir voru drykk­felldir og sá seinni ofbeld­is­maður, og seinna kom í ljós að sá hafði mis­notað báðar dætur Dúddu. Kærði hún þó aldrei þar sem hún vildi ekki að það hefði áhrif á umgengni feðgin­anna.

Annar tvíburinn lést og hinn fjölfatlaður

Þriðji maður Dúddu var þó ólíkur hinum fyrri og eign­uð­ust þau son, giftu sig og lífið var gott. Árið 1994 gekk þó ýmis­legt á hjá fjöl­skyld­unni. Dúdda var ólétt af tví­burum á sama tíma og eig­in­maður hennar mjaðm­argrind­ar­brotn­aði og dóttir hennar lenti í bílslysi, en meidd­ist þó ekki. Dúdda eign­að­ist síðan tví­bura­syni sex vikum fyrir tím­ann.

„Fyrri tví­bur­inn lifði en sá seinni var með hjarta­galla og fékk strept­a­kokka­sýk­ingu. Lækn­arnir stóðu yfir drengnum í hálfan sól­ar­hring við að hand­pumpa hann, en það dugði ekki til. Hann dó áður en hann fékk að lifa. En hinn dreng­ur­inn lifði en var mjög veikur. Þau bjuggu í sex vikur á vöku­deild­inni. Dreng­ur­inn er með heila­himnu­bólgu, en hann virt­ist ætla að ná sér þegar honum var gefið lyf fyrir mis­tök sem leiddu til skemmda í heil­anum,“ segir um dreng­ina í sögu Dúddu, en son­ur­inn varð meg­in­verk­efni og til­gangur Dúddu næstu tutt­ugu árin.

Fjölskyldan uni hag sínum vel í Noregi

Fjöl­skyldan flutti til Noregs og bjó þar í átta ár og rekur Dúdda mis­mun milli Íslands og Noregs hvað aðstoð við umönnun son­ar­ins varðar, segir hún að hér heima hafi verið efast í hvert sinn sem þau báðu um aðstoð og þau jafn­vel verið talin ætla að svíkja kerfið. Í Noregi var aðstoð boðin að fyrra bragði. Ætt­jarð­ar­ástin og löngun Dúddu og eig­in­manns hennar til að ala börnin upp hér olli þó því að þau fluttu heim aftur. Þar leið þeim vel á Akureyri, en skiln­ings­leysið í kerf­inu var enn það sama.

„Og ég fór að finna til, síþreyta og linnu­lausir bak­verkir, hand­legg­ur­inn varð mátt­laus þegar ég var að stinga upp kart­öflur, ég var farin að bogna undan álagi. Ein­hverju síðar, þegar ég hafði sótt um fyrir dreng­inn á sam­býli, var gerð úttekt á þörfum hans. Ég fór í við­tal hjá konu sem spurði hvernig hann borð­aði, hvernig hann væri bað­aður, hver aðstoð­aði hann með kló­sett­ferðir, hvernig honum var sinnt þegar honum leið illa, hvernig hann færi að sofa og hvernig hann færi út undir bert loft og svo fram­vegis. Þegar ég var búin að leysa úr þessu flestu, stopp­aði konan allt í einu og horfði á mig: Nei, þetta er ekki hægt, þetta er starf fyrir átta mann­eskjur. Þetta er eina hrósið sem ég hef fengið fyrir að sjá um fjöl­fatl­aðan son minn í rúm tutt­ugu ár. En auð­vitað er þetta ekki hrós. Þetta var bara við­ur­kenn­ing á því að ég sleit mér út, mér var slitið út við að sinna drengnum, eig­in­lega án aðstoðar,“ segir Dúdda.

Ekkja með þrjá syni

Álagið á heim­il­inu var mikið, hrunið kom og skuld­irnar juk­ust og álagið varð eig­in­manni Dúddu ofviða og lést hann úr hjarta­á­falli. Dúdda stóð eftir ein með börnin,  skuld­setta hús­eign og var orðin öryrki og slitin. Hún náði að selja húsið, fyrir utan eitt lán sem gleymd­ist að taka með í reikn­ing­inn, sem hún er enn að borga af.

Eftir öll þessi áföll kynnt­ist Dúdda nýjum manni, þau keyptu íbúð, en hann lést skyndi­lega og aftur missti Dúdda allt. Hún fékk tauga­á­fall, greind­ist með brjóstakrabba­mein og flutti til höf­uð­borg­ar­innar aftur.

Í dag er hún að ljúka háskóla­námi, býr í lít­illi ósam­þykktri kjall­ara­í­búð út í sveit, veitir sér ekk­ert, á í raun ekk­ert og aldrei krónu í lok mán­aðar, slær lán fyrir mat og skilur ekki hvað hún hafi gert til að verð­skulda þessa stöðu.

„Ég er bara rétt rúm­lega sex­tug, en ég er strax komin í ruslakist­una. Það er búið að afskrifa mig. Ég hef alið upp börnin og nú er ekki hægt að hafa af mér meira gagn. Mér dettur oft í hug kart­öflu­mamma. En ég er hérna enn þá, ég er enn til inni í mér. Ég lifi. En stundum finnst mér eins og ég sé aðeins til fyrir sjálfri mér. Oft finnst mér eins og ég sé jafn ósýni­leg öðrum og huldu­fólkið, að aðeins þau skyggnu geti séð mig.“

Sögu Dúddu má lesa í heild sinni á Facebook-síðu: Við erum hér líka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina