Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Ragna um fjárhagsáhyggjurnar eftir að ferlinum lauk: „Þetta var sárt, eftir allt sem maður lagði á sig“

Margir afrek­s­í­þrótta­menn, sér­stak­lega í ein­stak­lings­í­þróttum, standa höllum fæti fjár­hags­lega þegar ferl­inum lýkur og hafa ekki áunnið sér þau launa­tengdu rétt­indi og þá stöðu á vinnu­mark­aði sem jafn­aldrar þeirra hafa gert. Þeir hafa fært miklar fórnir til að ná árangri og keppa fyrir Íslands hönd, en bíta úr nál­inni að ferli loknum.

Ragna um fjárhagsáhyggjurnar eftir að ferlinum lauk: „Þetta var sárt, eftir allt sem maður lagði á sig“
Ragna Ing­ólfs­dóttir. Mynd / Eyþór

Bad­mint­on­konan Ragna Ing­ólfs­dóttir fór á tvenna Ólymp­íu­leika á ferli sínum. Hún gekk á sínum ferli í gegnum nokkur erfið tíma­bil þegar kemur að fjár­mögnun. Um tíma lifði hún á náms­lánum, eftir að hafa valið háskóla­nám sem ekki krafð­ist mik­illar við­veru. Ragna segir að hlut­irnir hafi orðið auð­veld­ari eftir að hún tal­aði opin­skátt um fjár­hag­inn árið 2011. „Ég gat varla meir því mér fannst fjár­hags­á­hyggjur taka of mik­inn toll. Eftir það fékk ég góðan styrk frá LS Retail og nokkrum öðrum velunn­urum og gat klárað að ein­beita mér að því að und­ir­búa mig fyrir Ólymp­íu­leik­ana 2012.“

Hún segir að fjár­hag­ur­inn hafi ekki átt þátt í því að hún hætti keppni árið 2012. Hún hafi verið orðið sátt við ferl­inn og náð mark­miðum sínum. „Líkaminn var orð­inn mjög þreyttur eftir allt puðið, svo ég hefði í raun ekki getað haldið þessu áfram á sama hátt. Draum­ur­inn var að hætta á toppnum og það tókst.“

Ragna vinnur í dag að kynn­ing­ar­málum hjá ÍSÍ. Hún sótti sér BA-gráðu á meðan ferl­inum stóð og hefur bak­grunn úr íþróttum sem nýt­ist henni í starf­inu fyrir ÍSÍ. Hún er þakk­lát ÍSÍ fyrir að hafði trú á sér. „Ég var með litla sem enga reynslu af vinnu­mark­aði, fyrir utan þjálfun, þegar ferl­inum lauk. Ég hafði nán­ast engin líf­eyr­is­rétt­indi og átti ekki rétt á fæð­ing­ar­or­lofi,“ segir hún og heldur áfram. „Ég var 10 árum á eftir mínum jafn­öldrum hvað varðar þessa hluti.“

Ragna skráði sig í nám eftir að ferl­inum lauk til að geta fengið 120 þús­und króna fram­færslu í fæð­ing­ar­or­lofi. Að öðrum kosti hefði hún átt rétt á 50 þús­und krónum á mán­uði. „Þetta var sárt, eftir allt sem maður lagði á sig á ferl­inum.“ Ragna bindur miklar vonir við að bætt verði úr rétt­inda­málum afrek­s­í­þrótta­fólks og fagnar þeirri sam­stöðu sem íþrótta­menn­irnir, sem skor­uðu á mennta­mála­ráð­herra fyrir jól, sýndu. „Það sem mestu máli skiptir núna er að íþrótta­fólk fari í þessa bar­áttu saman, ekki eitt og eitt hvert í sínu horni.“
Mynda­texti:

„Ég var 10 árum á eftir mínum jafn­öldrum hvað varðar þessa hluti,“ segir Ragna Ing­ólfs­dóttir um rétt­indi sín að bad­mint­on­ferl­inum loknum. Hún skráði sig í nám til að geta fengið hærri fram­færslu í fæð­ing­ar­or­lofi.

Fjallað er ítar­lega um málið í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina