Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Svona er að vera atvinnulaus á Ísland – Henrý segir andstæðinga hækkunar bóta „smjörkúka sem hafa aldrei fengið vindinn í fangið“

Svona er að vera atvinnulaus á Ísland – Henrý segir andstæðinga hækkunar bóta „smjörkúka sem hafa aldrei fengið vindinn í fangið“
Bjarni Bene­dikts­son.

Atvinnu­leysi hefur rokið upp á Íslandi und­an­farið vegna vegna COVID-heims­far­ald­urs­ins. Á sama tíma hafa hags­muna­sam­tök atvinnu­rek­enda staðið í áróð­urs­her­ferð gegn hækkun atvinnu­leys­is­bóta með ýmsum hætti. Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hefur sömu­leiðis talað gegn því að hækka bætur.

Henrý nokkur lýsir í þræði á Twitter raun­veru­leika þeirra sem þurfa að sækja sér bætur á Íslandi. Hann segir kerfið skelfi­legt og ekki til þess að styrkja fólk í atvinnu­leit, fremur sé það hent­ugt í að gera fólk að öryrkjum. Þráður hans hefur vakið gíf­ur­lega athygli á sam­fé­lags­miðl­inum en hann starfar í dag sem for­rit­ari.

Dýrt að vera fátækur

Henrý segir hæpið að atvinnu­leys­is­bætur letji fólk í að finna sér vinnu. „Kenning: Fólk sem heldur að atvinnu­leys­is­bætur sem þú getur lifað á letji þig í að leita að vinnu hefur aldrei prófað að vera atvinnu­laust. Það sem virki­lega drepur þig er þegar þú kemst í fjár­hags­lega holu og finnur að þú yrðir amk 6 mán­uði á fullum launum að kom­ast á 0,“ segir Henrý  og heldur áfram:

„Þegar ég varð atvinnu­laus þurfti ég að velja og hafna að borga reikn­inga. Þ.á.m. var frí­stund sem var rukkuð um hásumar. Sem varð til að barnið mitt komst ekki að á frí­stund haustið eftir því pabbi fátæki átti ekki fyrir reikn­ingum. Þetta er Reykja­vík­ur­borg rekin af jafn­að­ar­fólki.“

Hann nefnir svo fleiri dæmi sér til stuðn­ings. „Þegar ég varð atvinnu­laus þá brotn­uðu gler­augun mín. Ég sé ekk­ert án þeirra og keypti því ódýr gler­augu og fékk styrk til þess frá líf­eyr­is­sjóðnum úr sjóði sem ég borg­aði í. Vinnu­mála­stofnun leit á það sem tekjur og skerti bætur. Ég borð­aði núðlur þann mánuð.“

Forðaðist að opna bréf

Hann seg­ist hafa forð­ast að opna póst­inn sinn í þessu ástandi. „Þegar ég varð atvinnu­laus fékk ég skyndi­lega miklu meiri póst en venju­lega. Oft komst ekki mikið meira í kass­ann. Alls­konar glugga­póstur með ítrek­unum og aðvör­unum til að láta mann­eskju sem leið mjög illa líða verr,“ segir Henrý.

Hann hafi svo oft þurft að fresta greiðslum. „Þegar ég varð atvinnu­laus frestaði ég greiðslum á hlutum sem fóru í hnút og ég varð að gera dóms­sátt um. Ég gat borgað 120þ og klárað dæmið eða gert sátt um að borga mun hærri upp­hæð (~300) en búta hana niður. Það er dýr­ara að vera fátækur, sjáðu til.  Þessir hlutir lentu síðan upp á kant við til­hneig­ingu mína til að borða mat. Og ég lenti á van­skila­skrá út af fárán­lega lágri upp­hæð, um 60þ sem hefðu alveg eins getað verið 12 millj­ónir á þeim tíma,“ segir Henrý.

Fólk einangrast

Allt þetta bitnar svo á því að við­kom­andi fái vinnu. „Það er erfitt að vera upp­lits­djarfur, vel undir búinn, og hress í starfsvið­tölum þegar þú sefur ekki á nótt­unni af því að þú finnur að þú gætir í raun­inni endað á göt­unni og nor­ræna vel­ferð­ar­kerfið myndi bara yppa öxlum. Þegar ég varð atvinnu­laus var maður skikk­aður á nám­skeið sem virt­ust öll ganga út á að kynna manni fyrir mögu­leik­anum á að flytja úr landi. Þar sat 35 ára tveggja barna faðir við hlið 18 ára barns og fékk sömu ræð­una (og sömu bæt­urnar),“ segir Henrý.

Hann segir kerfið svo draga úr allri einka­neyslu, við­kom­andi ein­angr­ast. „Það er einnig erfitt þegar hótað er að draga af þér bætur vegna þess að ein­hver nákom­inn lagði inn á þig pen­ing. Talað um óút­skýrðar tekjur. Ekkert af þessu hjálpar þér að kom­ast af atvinnu­leys­is­skrá. Þetta er bara mann­skemm­andi og gerir ekk­ert nema drepa niður sjálfs­virð­ingu.“

„Þegar ég varð atvinnu­laus þá ein­angr­að­ist ég. Það er í 1. lagi erfitt að hitta fólk ef þú ert mjög kvíð­inn og 2. að hitt­ast á kaffi­húsi bak­aríi eða bar er bara of mikið bruðl. Helst ég hafi hitt fólk í sundi, sem var samt þrátt fyrir allt „mun­aður“ sem ég leyfði mér sjaldan,“ lýsir Henrý.

Harðlínufólkið hefur aldrei fengið vindinn í fangið

Hann bendir á að þetta sé ekki gott fyrir sam­fé­lagið. „Það er ekki snið­ugt að atvinnu­lausir ein­angr­ist. Ísland er þannig land að lang­flestir fá starf gegnum tengsla­net. Íslenska atvinnu­leys­is­trygg­inga­kerfið er eins og upp­skrift að því að búa til öryrkja og lang­tíma­at­vinnu­leysi. Allir sem hafa lent þarna og kom­ist af eiga mitt respect. Þegar ég varð atvinnu­laus var hótað að bjóða upp heim­ilið mitt, oft. Það lýsir sér þannig að þú þorir helst ekki að svara dyra­bjöll­unni því það gæti verið stefnu­vottur eða sýslu­maður. En þeir láta þá bara nágranna hafa stefn­una í stað­inn svo þú mannar þig upp og ferð til dyra,“ segir Henrý og bætir við það:

„Þú getur samið um svona hluti. amk á þeim tímara­mma sem ég átti í þessu (þetta var minna en ár) en þú þarft að geta skrifað bréf, safnað gögnum, farið á stað­inn og haldið and­liti meðan þú rekur raunir þínar fyrir unim­pressed full­trúum og lög­fræð­ingum. Færð 6% verð­tryggt lán.“

Hann segir að lokum að þeir sem séu harð­astir á að skerða bætur hafi aldrei upp­lifað þetta. „Mesta harð­línu­fólkið á Íslandi eru smjör­kúkar sem hafa aldrei fengið vind­inn í fangið. Þeir eru líka harð­astir á að fátækir séu bara latir þrátt fyrir að hafa lítið unnið sjálfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Annar glæpamannanna hafði sakaferil að baki en hinn hafði ekki áður gerst sekur um þjófnað
Heimur

Segir Net­anyahu þrýsta á Trump um kjarn­orku­árás

Pólitík

Reykja­vík ætlar að snúa millj­arða­halla í afgang á aðeins einu ári

Heimur

Úkraínsk dróna­árás olli miklum eldi í rúss­neskri olíu­hreinsi­stöð

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Innlent

Innlent

Getur munað rúmum 22 þús­und krónum á umfelgun fólks­bíls

ASÍ ráðleggur fólki að óska eftir staðfestu heildarverði.
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu