Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var að leita sér að nornakofa

Þóra Bergný Guð­munds­dóttir hefur aldrei verið hrædd við að fara eigin leiðir og hrinda hug­myndum sínum í fram­kvæmd. Eftir ára­tuga rekstur á far­fugla­heim­il­inu Haf­öld­unni á Seyð­is­firði gerði hún sér lítið fyrir og keypti gam­alt hús í Fort Cochin í Kera­lahér­aði á Indlandi, breytti því í hót­elið Secret Garden og býr nú þar yfir vetr­ar­tím­ann og tekur á móti gestum sínum með bros á vör. En hvernig vildi það til að hún gerð­ist hót­el­eig­andi á Indlandi?

„Ég fór að fara þangað á vet­urna og leigja mér alls konar hús­næði yfir íslenska vetr­ar­tím­ann,“ útskýrir Þóra. „Ekki síst vegna þess að ég bý hér á snjó­flóða­svæði undir Bjólf­inum á Seyð­is­firði og má ekki vera með neina starf­semi hérna á vet­urna þannig að það var alveg upp­lagt að fara og dvelja á hlýrri stað þann tíma.“

Það er nú tölu­verður munur á því að dvelja í hlýrra lofts­lagi sem gestur á vet­urna og að ráð­ast í rekstur á hót­eli. Hvernig gerð­ist það?

„Ég er voða­lega mikil hreið­ur­gerð­ar­kona og leið­ist að vera alltaf að flytja í nýtt og nýtt leigu­hús­næði, sem mér fannst oft ekki nógu fal­legt, þannig að ég fór að svip­ast um eftir ein­hverjum norna­kofa sem ég gæti átt fyrir mig og gert fal­legan. Það end­aði með því að ég fann þetta hús þar sem Secret Garden er núna. Ég hef hins vegar alls ekki gert þetta ein, ég á góðan vin úti á Indlandi sem heitir Faizal Abdulkad­her og keyrði rickshaw,þegar ég kynnt­ist honum en er núna farm­kvæmda­stjóri á hót­el­inu mínu. Einhvern veg­inn kom þetta allt upp í hend­urnar á mér, var ekk­ert planað, en ég er dug­leg að grípa þá bolta sem lífið kastar til mín og óhrædd við það.“

Hvernig komstu í kynni við Faizal?

„Okkar kynni hófust þannig að hann keyrði rickshaw, blá­fá­tækur fjöl­skyldu­maður, og hann var bara að keyra mig einn dag­inn í alls kyns erindum. Ég gleymdi sím­anum mínum í rickshawinu hans á ein­hverju borg­arr­and­inu. Hann kom svo til mín um kvöldið, þar sem ég bjó á gisti­húsi, og spurði hvort ég hefði týnt ein­hverju. Ég kann­að­ist ekk­ert við það, en það kom í ljós að ég hafði misst sím­ann undir sætið og hann fundið hann þar. Ég sá strax að hér fór góður maður, þannig að ég spurði hvort hann væri laus dag­inn eftir, sem hann játti. Síðan höfum við rúllað saman veg­inn. Fyrsta verk­efnið okkar var að kaupa nýja rickshaw, sem hann skýrði og merkti stórum stöfum  „Hafaldan“. Þetta var upp­hafið af okkar far­sæla sam­starfi og þegar ég fór að leita mér að húsi varð hann minn maður í því. Það eru engar fast­eigna­sölur á Indlandi, bara orðið á göt­unni, og hann frétti af þessu húsi og benti mér á það. Þetta var gam­alt ætt­ar­óðal, að nið­ur­lotum komið, en um leið og ég sá þetta hund­rað ára gamla hús í gömlum órækt­ar­garði var það eins og að ganga inn í ævin­týra­ver­öld og ég var ekki nema fimm mín­útur að ákveða mig.“

Þóra prýðir for­síðu nýj­ustu Vikunnar sem kom í versl­anir í dag og þar er hægt að lesa allt við­talið við hana.

Tryggðu þér áskrift að Vikunni í vef­verslun

Mynd / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina