Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Örlagaríkir leynifundir: Lögreglan rannsakar fjöldabrot Ballarin

Örlagaríkir leynifundir: Lögreglan rannsakar fjöldabrot Ballarin
Mynd / Skjáskot RÚV

Michele Roosevelt Edwards Ballarin fjár­festir er til rann­sóknar hjá ákæru­sviði lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hún marg­braut sótt­kví vegna leyni­funda hér­lendis. Banka­stjóri Kviku­banka hrakt­ist meðal ann­ars í ein­angrun vegna brot­anna.

Þetta stað­festir Hulda Elsa Björg­vins­dóttir, sviðs­stjóri ákæru­sviðs lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Annað en að rann­sókn stæði yfir vildi hún ekki gefa upp í sam­tali við Mannlíf þannig að óljóst er á þessum tíma­punkti hvort rann­sóknin leiði til þess að Ballarin verði sektuð vegna fjölda­brot­anna.

Hulda Elsa Björg­vins­dóttir. Mynd / Skjáskot RÚV

Ballarin marg­braut sótt­varn­ar­reglur þegar hún var hér á landi í kringum hlut­fjár­út­boð Icelandair. Hún fór meðal ann­ars á fund með stjórn­endum Kviku­banka, á kaffi­hús og út að borða þrátt fyrir að eiga að vera í sótt­kví. Tals­maður hennar segir brotin hafa verið vegna mis­skiln­ings.

Samkvæmt sótt­varna­reglum eiga allir þeir sem koma til lands­ins að und­ir­gang­ast tvær skimanir með fimm daga sótt­kví á milli. Ballarin og Gunnar Steinn Pálsson, tals­maður hennar, brutu þær reglur er þau fóru saman á kaffi­húsið Te & kaffi í Borg­ar­túni og þau fóru einnig út að borða á La Prima­vera veit­inga­staðnum. Þá fóru þau líka saman á fund með stjórn­endum Kviku­banka, þeim Marínó Erni Tryggva­syni for­stjóra og Ármanni Þor­valds­syni aðstoð­ar­for­stjóra. Marínó Örn þurfti að fara í sótt­kví eftir að í ljós kom að Ballarin var sjálf að brjóta sótt­kví með því að mæta til fundar í bank­anum. Ármann þurfti ekki í sótt­kví því hann hafði áður smit­ast af Covid-19 og var því með upp­á­skrifað ónæmi frá Þórólfi Guðn­a­syni sótt­varn­ar­lækni.

Í sam­tali við Mannlíf stað­festir Ármann að fund­ur­inn hafi farið fram að ósk Ballarin og Gunnars Steins. „Það er ekk­ert leynda­mál að við hittum hana. Ég get stað­fest að hún óskaði eftir fundi þar sem hún var að for­vitn­ast um útboðið. Okkur var ekki ljóst á þeim tíma­punkti að hún ætti að vera í sótt­kví. Eftir á þurftum við því að grípa til við­eig­andi ráð­staf­ana,“ sagði Ármann í sam­tali við Mannlíf.

„Þar af leið­andi fórum við Michelle saman bara hingað og þangað um bæinn.“

Gunnar Steinn seg­ist aðspurður ekki geta stað­fest alla dag­skrá fjár­fest­is­ins en hún hafi vissu­lega farið viða til að kanna lands­lagið í kringum Icelandair og mögu­leik­ana í stöð­unni. „Kviku­banki er einn hluti af þessu og ég þekki strák­ana þar vel. Við vorum bæði í góðri trú þegar á fund­ina var farið. Lögmaður hennar hér á Íslandi hefur tekið á sig þennan mis­skiln­ing og þar af leið­andi fórum við Michelle saman bara hingað og þangað um bæinn,“ sagði Gunnar Steinn.

Gunnar Steinn Pálsson

Koma Ballarin til lands­ins og þátt­taka hennar í hluta­fjár­út­boð­inu reynd­ist hins vegar brot­lend­ing. Tilboði hennar var alfarið hafnað en lög­maður hennar hér á landi hafði enn ekki fengið stað­fest­ingu á því hins vegar þegar Mannlíf ræddi við hann í gær.

Ballarin flaug af landi brott eftir að til­boði hennar upp á sjö millj­arða króna í Icelandair var hafnað. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs fór hún króka­leið heim til Banda­ríkj­anna um Evrópu. Hún hugð­ist kaupa kjöl­festu­hlut fyrir sjö millj­arða króna í Icelandair en var hafnað þar sem hún þótti ekki geta sýnt fram á getu til að standa við til­boðið. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs vildi Ballarin verða stjórn­ar­for­maður Icelandair. Viðræður milli hennar og stjórn­enda Icelandair um sam­starf stóðu yfir und­an­farnar vikur.

Ballarin keypti eignir WOW air úr þrota­búi félags­ins og lagði í gær fram sjö millj­arða til­boð í hluti Icelandair. Ballarin var hins vegar hafnað og flaug hún af landi brott í kjöl­farið. Hvort hennar bíði sekt við næstu komu til lands­ins á nú eftir að koma í ljós þegar rann­sókn lög­reglu lýkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Verslunin í Hafnarfirði hefur verið sjálfstæð um áratuga skeið
Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag