Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Orkudrykkir verði bannaðir innan 16 ára

Neysla íslenskra ungmenna í 8.-10. bekk á orku­drykkjum sem innihalda koffín er með því mesta sem þekkist í Evrópu. Neyslan hefur slæm áhrif heilsu. Ungmenni eiga erfitt með að festa svefn og sofa heilan svefn auk þess sem of mikil koffín neysla getur valdið miklu álagi á hjarta- og æðakerfið.

,,Þetta eru sláandi niður­stöður og það er nauðsynlegt að gríða til aðgerða,” segir Helga Gunnlaugs­dóttir sviðs­stjóri lýðheilsu hjá Matís og sérfræðingur á sviði áhættu­mats matvæla. 

Mast hefur gefið það út að þau ætli að leggja það til við stjórn­völd að banna orku­drykki til ungmenna yngri en 16 ára.

Áhættu­matsnefnd hefur rannsakað að beiðni Matvæla­stofnunar hvort neysla orku­drykkja hafi neikvæð áhrif á heilsu ungmenna á þessu skóla­stigi. Niður­staðan er sú að neysla íslenskra ungmenna sé töluvert meiri en sést hefur í fyrri rann­sóknum og gefur tilefni til aðgerða.

Helstu niður­stöðurnar sýna:

  • 30% íslenskra ungmenna í 8. bekk neyta orku­drykkja sem innihalda koffín og neyslan eykst með aldri og er um það bil 50% meðal ungmenna í 10. bekk.
  • Það er sterkt neikvætt samband milli neyslu íslenskra ungmenna í 8.-10. bekk á orku­drykkjum og svefns. Þau eiga erfiðara með að sofna og hlutfall þeirra sem segist sofa lítið (6 tíma eða minna á sólar­hring) er mjög hátt, eða tæplega 16%.
  • Varfærið mat sýnir að a.m.k. 12% ungmenna í 8.-10. bekk sem neyta orku­drykkja, neyta koffín­magns yfir þeim öryggis­mörkum sem Matvæla­öryggis­stofnun Evrópu (EFSA) ráðleggur að sé örugg fyrir fullorðna einstaklinga, eða 3 mg/kg líkams­þyngdar á dag. Til saman­burðar innbyrða 1-2% ungmenna, sem ekki neyta orku­drykkja, koffín yfir þessum mörkum.
  • Þau ungmenni sem innbyrða mest koffín, innbyrða tvöfalt til fjórfalt það magn sem EFSA leggur til sem öryggis­mörk fyrir koffín­inntöku full­orðinna, eða 3 mg/kg líkams­þyngdar á dag.
  • Langtíma neysla á miklu magni (yfir 3 mg/kg líkams­þyngdar á dag) af koffíni getur valdið miklu álagi á hjarta- og æðakerfið.
  • Framboð, aðgengi og markaðs­setning orku­drykkja hérlendis virðist skila sér í því að neysla ungmenna í 8.-10. bekk sé meiri en æskilegt er, hafi neikvæð áhrif á svefn og andlega líðan þeirra og sé yfir því magni sem valdið getur hækkun á blóð­þrýstingi og þar með auknu álagi á hjarta- og æðakerfið.

Nánar má lesa um skýrsluna á heima síðu Mast.

Helga segist vonast til þess að niður­stöðurnar leiði til fræðslu­átaks um skaðsemi orku­drykkja sem leiði til viðhorfs­breytingar hjá ungmennum og ekki síst foreldrum. ,,Þetta er svolítið eins og með áfengið, best er að byrja bara alls ekki.“ 

Á grund­velli áhættu­matsins hyggst Matvæla­stofnun leggja til breytingar á reglum sem varða koffín í drykkjar­vörum og aukna fræðslu með það að markmiði að takmarka aðgengi ungmenna að koffín­ríkum orku­drykkjum.

Fram til þessa hefur skortað gögn til að færa rök fyrir takmörkunum á framboði koffín­ríkra orku­drykkja á Íslandi. Ef Ísland ætlar að setja strangari reglur en almennt gilda á EES-svæðinu þurfa að vera fyrir því haldbær og málefnaleg rök. Áhættumat nefndarinnar er það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og með því býr Matvæla­stofnun nú yfir gögnum til að rökstyðja frekari takmarkanir á framboði orku­drykkja sem innihalda koffín hér á landi til að vernda viðkvæman neytendahóp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra