Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Vill leggja gjöld á nagladekk í stað þess að banna þau

Vill leggja gjöld á nagladekk í stað þess að banna þau

Hin árlega umræða um nagla­dekk er farin af stað á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og skal engan undra. Loft­mengun vegna svifryks fór í vik­unni yfir heilsu­vernd­ar­mörk í borg­inn og er talið víst að upp­þyrlun vegna bíla­um­ferðar sé ástæðan. Rann­sóknir á sam­setn­ingu svifryks hafa sýnt að mal­bik­sagnir eru meira en helm­ingur svifryk­sagna og vega nagla­dekk þungt þegar kemur að sliti á götum. Í kjöl­farið lét borgin ryk­binda helstu umferð­ar­götur. Þetta kemur fram á heima­síðu

Reykja­vík­ur­borgar

.Net­verjar hafa tjáð sig mikið um málið á sam­fé­lags­miðlum und­an­farna daga og fremstur í flokki er senni­lega Gísli Marteinn Bald­urs­son, sem tístaði um málið á Twitter. Hann vill banna þau.

Reykja­vík­ur­borg hvetur borg­ar­búa til að snið­ganga nagla­dekk­inn. Kunnu­legt stef því árlega er ráð­ist í slíka mark­aðs­setn­ingu og reynt að höfða til sam­visku borg­ar­anna. Rann­sóknir sýna að nagla­dekk valda svifryki þegar þau spæna upp mal­bik á götum auk þess sem þau auka hávaða og slíta götum hraðar en æski­legt er. Eins og þetta séu ekki næg rök gegn þeim þá auka þau elds­neytis­kosnað bif­reiða og hækka þar af leið­andi rekstur bíls­ins. Og með öllu þessu, ógna þau lýð­heilsu.

Svifryk í and­rúms­lofti hefur nei­kvæð áhrif á heilsu manna og hefur verið sýnt fram á að fleiri inn­lagnir eru á sjúkra­hús á dögum þegar svifrik fer yfir heilsu­vernd­ar­mörk.

Í til­kynn­ingu frá borg­inni segir: „Langbest er þó að skilja bíl­inn eftir heima og fara til og frá vinnu og skóla með öðrum hætti – ef kostur er.“

Neyt­enda­vaktin bendir á að á dögum þegar svifryk fer yfir heilsu­vernd­ar­mörk þá er oft ekki ver­andi úti og oft eru þetta góð­viðris dagar þegar einmitt svo til­valið er að ganga eða hjóla til og frá vinnu.

Ný umferð­ar­lög voru sam­þykkt í fyrra. Í upp­haf­legum drögum að frum­varp­inu stóð til að heim­ila gjald­töku vegna nagla­dekkja­notk­unar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, slíkt er t.d. gert í Noregi og hefur gefið góða raun. Fólk á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefði þá borgað árgjald, um það bil 20 þús­und krónur. Þessi hug­mynd var felld út úr frum­varps­drög­unum í áður en málið var sent til Alþingis.

Þor­steinn Jóhanns­son, loft­gæða­sér­fræð­ingur hjá Umhverf­is­stofnun, segir stofn­un­ina hlynnt­ari gjald­töku á nagla­dekkjum frekar en að leggja blátt bann við þeim. Við viss skil­yrði úti á landi séu þau enn nauð­syn­leg. Víða um land er vetr­ar­þjón­usta á vegum ekki eins góð og á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og þá mynd­ast oft hættu­legar aðstæður og þá sé betra að vera á nagla­dekkum.

En af hverju ekki að banna þau bara í Reykja­vík?

„Ja, það yrði heldur flókið í fram­kvæmd. Hvað með sveit­ar­fé­lögin í nágrenni við Reykja­vík? Ég held að það yrði erfitt að útfæra það og að engin póli­tísk sátt næð­ist. Nagla­dekk eru leyfð í Noregi, Svíþjóð og Finn­landi en Norðmenn leggja gjald á notkun þeirra og hefur það orðið til þess að notkun þeirra hefur dreg­ist mikið saman.“

Þor­steinn segir að gjald­taka myndi hafa nei­kvæðan hvata, fólk myndi hugsa sig tvisar um. „Nagla­dekk slíta mal­biki 20 – 40 sinnum meira en ónelgd vetr­ar­dekk og því er sann­gjarnt að þeir sem þau nota borgi fyrir það. Það væri kannski sann­gjarn­ara að gera þetta svona frekar en að banna þau alfarið.“

En hug­myndin um gjald­töku var felld eins og áður sagði. „Það voru margir sem mót­mæltu gjald­tök­unni í Sam­ráðs­gátt­inni og það var kannski alveg rétt sem þar kom meðal ann­ars fram, að þetta var ekki nógu vel útfært.“

Hug­myndin hefur þó ekki verið slegin alveg út að borð­inu og er nú verið að útfæra hana betur. Það mun bæði vera vilji Umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins sem og Umhverf­is­stofn­unar. Í skýrsl­unni Hreint loft til fram­tíðar áætlun um loft­gæði á Íslandi 2018 – 2029 sem unnin var af Umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­inu kemur fram að vilji sé til þess að setja á gjöld á notkun nagla­dekkja svo þetta er eitt­hvað sem við megum eiga von á. Að draga úr notkun nagla­dekkja er risa­stórt lýð­heilsu­mál, sér­stak­lega á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Vonandi þurfum við ekki að bíða of lengi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina