Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Anna hefur fengið nóg af sérmeðferð dómara á nauðgurum – Hrottar sleppa oftast við fangelsi

Anna hefur fengið nóg af sérmeðferð dómara á nauðgurum – Hrottar sleppa oftast við fangelsi
Anna Bentína Herman­sen hjá Stíga­mótum

Anna Bentína Herman­sen, ráð­gjafi hjá Stíga­mótum, hefur fengið sig fullsadda af því hvernig dæmdir nauð­garar sleppi við alla refs­ingu trek í trek. Hún hefur komið á stað und­ir­skrift­ar­söfnun sem nærri þús­und Íslend­ingar hafa lagt nafn sitt við á stuttum tíma. Á Íslandi er algengt að þó maður sé dæmdur fyrir hrotta­lega nauðgun þá sleppi hann við alla fang­els­is­vist. Nöfn þeirra eru æ oftar ekki birt opin­ber­lega og því má segja að afleið­ingar dóms sé oft harla litlar á Íslandi.

Anna segir vægan dóm Jóns Páls Eyj­ólfs­sonar, fyrr­ver­andi leik­hús­stjóri Leik­fé­lags Akur­eyrar, á dög­unum hafa verið kornið sem fyllti mæl­inn. Hann var dæmdur í tveggja og hálfs árs skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir hrotta­lega nauðgun. Anna segir það óboð­legt. „Þann 30. nóv­em­ber 2020 féll fyrsti nauðg­un­ar­dóm­ur­inn í máli sem teng­ist #metoo á Íslandi. Umfjöllun fjöl­miðla bendir til þess að nauðg­unin hafi verið hrotta­leg og voru les­endur varaðir við grófum lýs­ingum. Sak­born­ing­ur­inn hlaut tveggja og hálfs árs dóm sem var skil­orðs­bund­inn að fullu! (Skil­orðs­bund­inn dómur þýðir að sak­born­ing­ur­inn sleppur alfarið við fang­els­is­vist, þrátt fyrir að hafa verið fund­inn sekur um næst alvar­leg­asta brotið í mann­legu sam­fé­lagi á eftir morði.)“

Hún bendir á að þetta sé ekki svona í þeim löndum sem við berum okkur saman við. „Á Norð­ur­löndum, t.d. í Svíþjóð, er ólög­legt dæma fólk til vægrar refs­ingar á borð við skil­orð, ef það fremur alvar­leg brot gegn lífi og limum ann­arra. Í brota­flokkum á borð við nauðgun, morð og morð­til­raun, þar sem lág­marks­refs­ingin er 1 ár eða meira, er ólög­legt að dæma hinn seka ekki til fanga­vistar. Sömu lög þyrfti að taka upp á Íslandi,“ segir Anna.

Hún telur nokkuð ljóst að svo vægir dómar í málum nauð­gara byggi ekki á skoðun almenn­ings. „Það hlýtur að vera á skjön við rétt­læt­is­kennd almenn­ings að fólk geti framið hrotta­legar nauðg­anir og að þeir örfáu ger­endur sem eru sak­felldir fyrir dóm­stólum þurfi ekki að verja einni mín­útu bak við lás og slá. Við krefj­umst þess að lögum verði breytt á þann máta að skil­borðs­bundin refs­ing eigi ekki við þegar um jafn alvar­legt brot og nauðgun er að ræða. Það er löngu tíma­bært að refs­ingar fyrir gróf­ustu glæp­ina end­ur­spegli afleið­ing­arnar fyrir þolendur – og sam­fé­lagið í heild. Hér er enn einn dóm­ur­inn sem er algjör­lega á skjön við alvar­leika brots­ins. Rétt­ar­kerfið er þrauta­ganga fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis, og í þeim fáu til­fellum sem ger­endur hljóta dóm er hann í hróp­andi ósam­ræmi við refsiramma lag­anna og rétt­læt­is­kennd sam­fé­lags­ins. Lögin virð­ast vernda frekar þá sem brjóta af sér en þá sem er brotið er á.“

Hér fyrir neðan má leggja nafn sitt við mál­stað hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina