Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Bryndís og Bogi segjast í járnkló barnsmóður og kerfisins: „Þú hvorki beygir okkur né brýtur“

Hjónin Bryndís Rán Birgis­dóttir og Bogi Hallgrímsson verjast nú fyrir dómstólum gagnvart barns­móður Boga sem fyrir ári síðan krafðist meðlags sjö ár aftur í tímann þrátt fyrir að þau hafi fram til þessa haft jafna umgengni. Í janúar síðastliðinn bættist svo við krafa um tvöfalt meðlag og skerta umgengi Boga við barnið miðað við það sem verið hefur.

Frá þessu greinir Bryndís í færslu á Facebook þar sem hún segist hreinlega eiga við ofurefli að etja. Eitt sé reiði barns­móðurinnar en annað og verra sé gallað kerfið. „Ég ætla ekki að fara út í smáatriði hvernig líðanin hefur verið. en ég get allavega sagt að þetta mál hefur haft mikil og víðtæk áhrif á líf okkar. Þetta hefur ekki bara reynt á okkur, heldur fjöl­skyldur okkar, börn og þá vini sem standa okkur næst,“ segir Bryndís.

„Eina fólkið sem græðir eru lög­fræð­ingar, allir aðrir tapa.“

Í gær var krafan um meðlag sjö ár aftur í tímann tekin fyrir í héraðs­dómi og þurfa þau hjónin þú að bíða niður­stöðunnar í ofvæni. Krafan nemur rúmum þremur milljónum króna. „Aðförin að okkur af hálfu barns­móðurinnar hefur verið hörð og ósann­gjörn. Það sjá það flestir að það er gjör­samlega galið að lögheimilis­foreldri geti dregið hitt foreldrið sem ekkert hefur unnið sér til saka inn í slíka atburðarrás. Eins og stórvinur okkar orðaði það þá liggur vandinn hjá kerfinu en ekki reiðu fólki í hefndarhug,“ segir Bryndís og heldur áfram:

„Við höfum ekkert að fela. Við höfum staðið við allar okkar skuld­bindingar og ekki er hægt að sýna fram á neitt annað. Við erum meðvituð um að sprengju­regninu er hvergi nærri lokið. Auðvitað er ákveðin léttir að málið sé komið þetta langt enda þýðir það að við sjáum fyrir endan á því. En þessu er hvergi nærri lokið, á sama tíma erum við að berjast gegn kröfu um tvöfalt meðlag ár aftur í tímann og að berjast fyrir að við höldum í forsjá og umgengnis­rétt.“

Bryndís segir málið sorglegt í alla staði þar sem enginn sigurvegari standi uppi. „Hverja hagsmuna er verið að gæta með svona aðför? Er verið að gæta hagsmuna barns með því að gera hitt heimilið gjald­þrota? Þegar horft er á heildar­myndina eru það ekki peningar sem skipta máli. Þetta er ekki mál sem einhver vinnur. Eina fólkið sem græðir eru lögfræðingar, allir aðrir tapa. Eftir stendur að dýrmætur tími og fjármunir sem fóru til spillis og sálarlíf allra sem sviðin jörð. Við vitum að sprengju­regninu er hvergi nærri lokið, spurning er bara hvenær næsta sprengja fellur og af hvaða strærðargráðu hún verður. En eitt mátt þú vita að þú hvorki beygir okkur né brýtur,“ segir Bryndís ákveðin.

Hér að neðan má sjá frekari frásögn Bryndísar af átökum þeirra hjóna við barns­móðurina og kerfið:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim