Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Litlu mátti muna hjá Karli í Langholtshverfi: „Ég NAUÐHEMLAÐI og hann rétt slapp“

Litlu mátti muna hjá Karli í Langholtshverfi: „Ég NAUÐHEMLAÐI og hann rétt slapp“
Börn og ung­menni eru ótryggð á breyttum vespum. Mynd / skjá­skot MBL.

Umræður um glæfra­legan vespu­akstur barna virð­ast reglu­lega skjóta upp koll­inum. Seinasta sumar vakti Birgir Örn Guð­jóns­son, betur þekktur sem Biggi lögga, athygli á mál­inu.

Biggi sagði það vera á ábyrgð for­eldra að fylgj­ast með hvað börnin séu að gera á vesp­unum og hvort verið sé að breyta þeim til að kom­ast hraðar.

Biggi sagði það ógjörn­ing fyrir lög­regl­una að fylgj­ast með hvort allt væri eftir bók­inni þegar kæmi að vespu­notkun barna, því ekki sjá­ist á vesp­unum hvort átt hafa við þær eður ei. Hann brýndi það sömu­leiðis fyrir for­eldrum að gera börnum sínum ljóst hve mik­il­vægt eft­ir­lits­hlut­verk lög­regl­unnar sé. Biggi skrif­aði: „Við höfum senni­lega öll lent í því að ætla að ræða við krakka á vespu en þeir láta sig hverfa upp næsta göngu­stíg þegar við gefum þeim merki um að stoppa. Það er eitt­hvað mjög rangt við það að börnum finn­ist í lagi að stinga lög­regl­una af.“

Nú á dög­unum sagði svo Karl nokkur, íbúi Lang­holts­hverfis, frá atviki sem hann lenti í þar sem ungir drengir á vespum sýndu mik­inn glæfra­skap. Karl skrif­aði í Facebook hóp hverf­is­ins:

„Rétt fyrir um 15 mín­útum síðan á Lang­holts­vegi sá ég eitt það glanna­leg­asta/hættu­leg­ast atvik sem ég hef orðið vitni að í umferð­inni á ævinni og það er sko ekki þessum dreng á vesp­unni að þakka að ekki varð alvar­legt slys!“

Lýsir hann atvik­inu með eft­ir­far­andi hætti: „Ég var að keyra eftir Lang­holts­vegi og við ljósin hjá Álf­heimum beygja tveir drengir á vespum inn á Lang­holts­veg og koma fyrir aftan mig.“

Segir hann dreng­ina hafa farið yfir á rauðu, þegar hann hafi keyrt yfir gatna­mótin á grænu­ljósi.

„Þeir keyra svo alveg í rass­inum á mér eftir Lang­holt­vegi þá er ég að tala um að þeir hafa ekki verið meira en einn meter í mesta lagi frá stuð­ar­anum hjá mér. Ég ók á lög­legum hámarks­hraða sem hefur ekki verið nógu hratt fyrir annan þeirra og ég sá að hann ætl­aði fram úr mér, hann sveigir yfir á öfugan veg­ar­helm­ing og keyrir á móti umferð smá stund en kemur svo við hlið­ina á mér í blinda svæðið hjá mér og heldur sig þar.“

Sjá einnig: Andrés við dauð­ans dyr í Breið­holti: ,,Hversu margir eiga eftir að slasast alvar­lega?“

Segist mað­ur­inn hafa vitað af drengnum við hlið sér, en þó ekki séð hann í spegl­inum. Ætlaði hann að beygja til vinstri og seg­ist hafa tím­an­lega gefið stefnu­ljós og hægt vel á sér til að gera drengj­unum við­vart.

„Og enn þá keyrir dreng­ur­inn við hlið­ina á mér bara á sama hraða og ég (s.s. hægði líka á sér) svo ég gerði ráð fyrir að hann væri búinn að átta sig á því að ég væri að fara beygja, ég byrja að beygja mjög rólega en þá allt í einu gefur hann allt í botn og tekur fram úr mér vinstra megin þegar ég er að taka vinstri beygju!
Ég NAUÐHEMLAÐI og hann rétt slapp við stuðar­ann hjá mér. Hinn dreng­ur­inn hins vegar var búinn að bakka aðeins frá og keyrði sem betur fer ekki aftan á mig.
Ég flaut­aði á kauða og upp­skar einn fal­legan mið­fingur í þakk­ar­skyni.“

Biður hann for­eldra vespu­eig­anda vin­sam­leg­ast um að kenna ung­ling­unum sínum umferð­ar­regl­urnar.

Karl virð­ist ekki vera sá eini sem hafi orðið vitni að ofsa­akstri ung­linga á vespum í hverf­inu, Heiða skrifar: „For­eldrar mega í leið­inni nefna við þá að það er 30 km hámarks­hraði í litlu göt­unum (eins og Hjalla­vegi og Ásvegi þar sem þeir koma yfir­leitt brun­andi allt of hratt niður)

Stór hættu­legir þessir strákar, bæði sér og öðrum, og skað­ræðis hávaði í þeim öll kvöld langt fram á nótt inn í miðju hverf­inu.“

„Ég fékk einn í hlið­ina á bílnum mínum, var að keyra Efsta­sundið, bíl­inn var gam­all, þannig að mér var sama um beygl­una, hepp­inn að drepa sig ekki,“ skrifar ein.

Harpa nokkur skrifar: „Það mun­aði litlu að annar keyrði mig og dóttur mína niður í fyrra­dag. Hann var þá á miklum hraða á gang­stétt­unum á Lang­holts­vegi. Sem betur fer var dóttir mín ekki ein á ferð því hún hefði auð­veld­lega getað verið fyrir ef ég hefði ekki rifið hana til mín þegar ég sá hann.“

„Núna eru allar vespur orðnar skrán­ing­ar­skyldar. Annars er marg­búið að kvarta yfir þessum vespuglönnum en ekk­ert breyt­ist,“ skrifar einn.

Ein skrifar: „Svo eru þeir alltaf 3 saman á einni vespu. Algjör­lega óþol­andi og hættu­legt!!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina