Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigmundur: „Þetta var svona – já, einmitt! Enn einn geðsjúklingurinn dauður.“

Sigmundur: „Þetta var svona – já, einmitt! Enn einn geðsjúklingurinn dauður.“

„Við­brögðin hafa verið gíf­ur­lega sterk og koma úr ólíkum áttum; bæði þeir sem hafa bein og óbein tengsl við rétt­ar­gæslu­deild Klepps hafa annað hvort skrifað eða hringt. Nú eru tveir dagar liðnir frá við­tal­inu og þó enn sé of snemmt að segja til um fram­haldið, er ég er alvar­lega að íhuga að ræða við lög­mann.“

Sig­mundur Árnason, bróðir og nán­asti aðstand­andi ósak­hæfs vist­manns á rétt­ar­geð­deild Klepps ræddi þær alvar­legu refs­ingar sem við­gang­ast á geð­spít­al­anum í við­tali við Eggert Skúlason nú á föstu­dag. Hann segir við­brögðin hafa verið ótrú­leg og er þakk­látur þeim sem hafa auð­sýnt þeim bræðrum stuðn­ing.

Opinberir starfsmenn og einstaklingar lýst yfir stuðningi

Viðtalið hratt af stað sterkri undir­öldu við­bragða fólks sem þekkir vel til starfs­hátta á rétt­ar­geð­deildar Klepps og segir Sig­mundur að jafnt opin­berir starfs­menn sem og ein­stak­lingar hafi bæði með beinum og óbeinum hætti lýst yfir stuðn­ingi sínum.

„Til­gang­ur­inn með við­tal­inu var að sjá hvort ég gæti knúið fram breyt­ingar með því að stíga opin­ber­lega fram. Enn er of snemmt að segja til um fram­tíð­ar­horfur og end­an­legan árangur en ég held í von­ina.“

Sig­mundur greindi meðal ann­ars frá bróður hans hafi verið neitað um sína eigin tölvu í refs­ing­ar­skyni. Tölvu­leikir, teikni­á­höld, bækur og gítar, allt hafi verið fjar­lægt, sjón­varp og þær nauð­synjar sem bróðir hans þarf á að halda var tekið i refs­ing­ar­skyni, ásamt því sem heim­sóknir voru bann­aðar og sér­stök álma reist umhverfis klef­ann.

„Þannig að hann hitti aldrei nokkurn mann þennan tíma.“

Á enn eftir að heyra rödd bróður síns og bíður fregna af viðbrögðum

Aðspurður segir Sig­mundur þá bræður fá síma­tíma í dag, sunnu­dag, en hann á enn eftir að heyra hvaða afleið­ingar umfjöll­unin hafi innan veggja spít­al­ans.

„Ég hlakka til að heyra í honum og þá vona ég að þeir [innsk. blm. yfir­stjórn rétt­ar­geð­deildar á Kleppi] hafi ekki beitt bróður minn frek­ari refs­ingum. Flest starfs­fólkið er frá­bært og allt af vilja gert.“

En það er stjórnin sem stýrir með ótta, and­legu ofbeldi og við­bjóði og þetta hræðir sjúk­ling­ana upp úr skónum.

Sig­mundur er þó ákveð­inn í að berj­ast fyrir bættum hag bróður síns og segir meðal ann­ars nú í við­tali við MANNLÍF að mestu skipti að mann­úð­legri með­höndlun verði beitt og að með­al­hófs verði gætt í allri nálgun og með­ferð.

„Mestu skiptir er að þess­ari til­rauna­starf­semi verði hætt á honum. Að hann nái og við­haldi bata í fyrsta sinn í tutt­ugu ár og að geð­læknateymið hrófli ekki meira við lyfja­gjöf manns­ins. Þetta er bara djöf­uls­ins til­rauna­starf­semi og ekk­ert annað. Geð­kerfið hefur næg úrræði til að vinna með og bróðir minn þarf að und­ir­gang­ast raun­hæfa og jafna lyfja­með­ferð sem hafi áhrif til fram­tíðar.“

Stóð upp frá hádegismatnum og framdi sjálfsmorð um síðustu jól

Nokkuð hefur verið fjallað um bein­skeytta gagn­rýni Geð­hjálpar, sem sendi Land­lækni svarta skýrslu um starfs­hætti á rétt­ar­geð­deild­inni á Kleppi og bindur Sig­mundur vonir við að með­ferð­ar­starfið á rétt­ar­geð­deild muni tekið til gagn­gerrar end­ur­skoð­unar á næstu mán­uðum og miss­erum.

„Um síð­ustu jól gekk til að mynda vist­maður á sjálfs­morðsvakt, sem ætti að vera undir sól­ar­hrings­eft­ir­liti á lok­aðri rétt­ar­geð­deild.“

„Maðurinn stóð bara upp frá hádeg­is­matnum, gekk inn í her­bergi sitt og svipti sig lífi. Þetta gerði vist­maður sem átti að heita á öfl­ugri sjálfs­morðsvakt.“

„Maður spyr sig hvernig þetta á eig­in­lega að vera mögu­legt? Auðvitað ótt­ast ég um líf bróður míns. Hann er vistaður þarna líka.“

Og Sig­mundur segir atvikið varpa ákveðnu ljósi á sárri þörf gagn­gerrar end­ur­skoð­unar og upp­stokk­unar sem geð­heil­brigð­is­kerfið og sér í lagi rétt­ar­geð­deild á Kleppi þurfi nú á að halda.

„Hvaða afleið­ingar hafði sjálfs­víg vista­manns nú um jólin í för með sér? Var atvikið eitt­hvað rann­sakað eða mokað undir teppi rétt­ar­geð­deildar? Hver er ábyrgur fyrir and­lát­inu? Það er sem mig minni að ég hafi rekið augun í eina neð­an­máls­grein í íslenskum miðlum um það bil viku eftir and­látið.“

„Þetta var svona – já, einmitt. Enn einn geð­sjúk­ling­ur­inn dauður.“

Viðtal MBL við Sigmund Árnason sem birt­ist nú föstu­dag má sjá HÉR

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi