Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Afbrýðisöm kona réðst af hörku á nágrannakonu sína – Fórnarlambið flutti vegna ótta

Afbrýðisöm kona réðst af hörku á nágrannakonu sína – Fórnarlambið flutti vegna ótta
Ofbeldi. Myndin teng­ist ekki efni grein­ar­innar með beinum hætti.

Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands dæmdi nú á föstu­dag konu í 60 daga skil­orðs­bundið fang­elsi til tveggja ára fyrir að hafa veist með hnefum að nágranna­konu sinni. Árásin átti sér stað í íbúð nágranna­konn­unar á Akranesi, þann 18 nóv­em­ber 2019.

Sló, reif ofg klóraði

Í dóms­orði kemur fram að árás­ar­konan hafi slegið nágranna­konu sína ítrekað í höfuð og and­lit, hrint henni á sal­erni þannig að hún lenti á kló­setti og slegið hana ítrekað í höf­uðið þar sem hún lá bjarg­ar­laus við kló­settið. Þá var hún ákærð fyrir að hafa rifið í hár kon­unnar og klórað hana á hálsi. Hlaut konan við árás­ina rifsár á hálsi, við nef og við munn, bólgu á vörum og sár innan á vörum, bólgu og mar á enni, aumar litlar kúlur á báðum gagn­augum, eymsli í hálsi, mar­blett ofan við hægri oln­boga og aftan á hægri upp­hand­legg, mar­bletti ofan á oln­boga og aftan á hægri upp­hand­legg, mar­bletti ofar­lega á framan á vinstri fót­legg, grunn­sár og lítið mar framan á vinstri ökkla.

Afbrýðisemi

Afbrýði­semi mun hafa verið ástæða árásar en árás­ar­konan sat við drykkju á heim­ili nágranna­konu sinnar, og var hand­tekin af lög­reglu á vett­vangi í ann­ar­legu ástandi. Var hún undir tals­verðum áhrifum þegar lög­reglu bar að. Nágranna­konan sagði árás­ina hafa komið eins og þrumu úr heið­skíru lofti að árás­ar­konan hafi rang­lega talið að konan hefði stofnað til náins sam­bands við föður barna sinna. Fórn­ar­lambið kall­aði til lög­reglu eftir að hafa með herkjum náð að grípa far­síma sinn til að svara sím­tali sál­fræð­ings sem innti hina sömu eftir því hvers vegna hún hafði ekki mætt í við­tals­tíma sinn. Var ætlun sál­fræð­ings að bjóða brota­þola nýjan sál­fræði­tíma með sím­tali en brota­þoli flúði út af bað­her­bergi íbúð­ar­innar meðan á árás stóð, svar­aði sím­tali sál­fræð­ings, greindi frá yfir­stand­andi árás og öskr­aði kröft­ug­lega á hjálp að upp­lagi sál­fræð­ings. Náði konan að flýja íbúð­ina og komst fram á stigagqang þar sem nágranna­kona í nær­liggj­andi íbúð varð vör átak­anna og óskaði strax lög­reglu. Blóð­slettur voru á fatn­aði kon­unnar við komu lög­reglu og var árás­ar­konan hand­tekin á heim­ili sínu, í íbúð­inni við hlið þol­and­ans.

Minnisleysi

Ger­and­inn neit­aði sök fyrir dómi og bar við minnis­leysi. Fram­burður brota­þola og nágranna­konu, sem varð vitni að því þegar konan komst út á stiga­gang þar sem hún öskr­aði á, sem og fram­burður þeirra lög­reglu­manna sem komu á vett­vang þóttu styðja við fram­burð brota­þola um ákærðu. Þá voru blóð­slettur í íbúð þeirri þar sem árásin átti sér stað og svo greini­leg merki um átök, ásamt áverka­vott­orði læknis sem skráð var í beinu fram­haldi fyrr­greindri árás ásamt því sem ekk­ert annað skýri að neinn annar en ákærða hafi veitt brota­þola umrædda nótt. Taldi dóm­ur­inn því hafið yfir allan skyn­sam­legan vafa að áverkar og ummerki bentu til ann­arrar atburða­rásar en þerri sem brota­þoli lýsti með orðum sínum.

Stöðugur ótti

Fram kemur í dóms­orði að konan sem varð fyrir árásinni hafi upp­lifað mikla skelf­ingu og van­mátt í kjöl­far árás­ar­innar og flutti hún ásamt syni sínum út úr íbúð­inni skömmu seinna, þar sem hún hafi upp­lifað alvar­leg ein­kenni áfallastreitu og hefði lifað við stöðugan ótta. Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands úrskurð­aði brota­þola í hag á fyrr­greindum for­sendum og úrskurð­aði árás­ar­kon­una seka sam­hliða því sem hún hlýtur 60 daga skil­orðs­bund­inn dóm fyrir árás­ina, að greiða brota­þola 300.000 krónur í miska­bætur ásamt því sem henni er gert að greiða málsvarna­laun kon­unnar, 600.000 krónur.

Dóm Hér­aðs­dóm Vest­ur­lands má lesa hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Annar glæpamannanna hafði sakaferil að baki en hinn hafði ekki áður gerst sekur um þjófnað
Heimur

Segir Net­anyahu þrýsta á Trump um kjarn­orku­árás

Pólitík

Reykja­vík ætlar að snúa millj­arða­halla í afgang á aðeins einu ári

Heimur

Úkraínsk dróna­árás olli miklum eldi í rúss­neskri olíu­hreinsi­stöð

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Innlent

Innlent

Getur munað rúmum 22 þús­und krónum á umfelgun fólks­bíls

ASÍ ráðleggur fólki að óska eftir staðfestu heildarverði.
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu