Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Umboðsmaður tekur slaginn með öryrkjum: „Fyrir veikindi hefði ég aldrei trúað svona sögum“

Umboðsmaður tekur slaginn með öryrkjum: „Fyrir veikindi hefði ég aldrei trúað svona sögum“
Skúli Magn­ús­son er umboðs­maður Alþingis í dag – Skjaskot: RÚV

„Fyrir veik­indi hefði ég aldrei trúað svona sögum; ég hefði alltaf hugsað – það hlýtur að vera eitt­hvað meira ósagt, eitt­hvað gruggugt í gangi hjá þessu fólki. Svo horfi ég á strang­heið­ar­leg­asta og elsku­rík­asta mann jarð­ar­kringl­unnar lenda í þessu, alger­lega óvið­búið og óverð­skuldað. Við erum slegin, óhætt að segja það.“

Þessi orð má lesa í Facebook hóp Öryrkja Íslands en hér lýsir kona á fimm­tugs­aldri þrauta­göngu eig­in­manns síns, sem 43 ára að aldri, hætti að geta séð fyrir eigin fjöl­skyldu en hann er þriggja barna faðir og stát­aði af heilsu­hreysti allar götur til árs­ins 2015, þegar ókenni­legri vírus­sýk­ingu laust niður sem gerði heilsu og starfs­getu manns­ins að engu á svo til einni nóttu.

Umræddur fjöl­skyldu­faðir sótti end­ur­hæf­ing­ar­úr­ræði hjá VIRK end­ur­hæf­ing ásamt því að dvelja á Reykja­lundi vegna veik­inda sinna. Reglu­bundnar rann­sóknir, lækna­heim­sóknir ásamt fagteymi heil­brigð­is­starfs­fólks í heima­hér­aði manns­ins og end­ur­hæf­ing­arteymi skar úr um nauð­syn örorku eftir tals­vert langan end­ur­hæf­ing­ar­tíma sem ekki bar þann árangur sem von­ast hafði verið til. Þrátt fyrir strangt og langt ferli sem lauk með umsókn um örorku hjá Trygg­inga­stofnun sem inni­hélt öll gögn og skrán­ingar frá sér­fræði­teymi valt nær óskilj­an­legur úrskurður sem fól í sér synjun, á efa­semdum mats­lækna Trygg­inga­stofn­unar.

Maðurinn kærði úrskurð synj­unar en var hafnað að nýju. „Hann fékk svar sem sagði ca. – sorry, nið­ur­stöður standa því okkur finnst það“ – segir eig­in­kona manns­ins í hóp öryrkja. „Við fengum engar almenni­legar útskýr­ingar nema ein kona sagði hann ekki hafa skorað nógu hátt á and­lega mats­þætt­inum. Ég sagði mann­inum mínum að heyra í TR og sækja um vinnu hjá þeim, þeir gætu lík­lega hugsað sér að ráða hann í 50% vinnu í sínu ásig­komu­lagi.“

Sífellt fleiri kæra synjun um örorku­líf­eyri til Úrskurða­nefndar Vel­ferð­ar­mála en með mis­jöfnum árangri eins og lesa má.

Eins og lesa má af orðum með­lima í hóp Öryrkja á Facebook er ferlið lang­dregið, þrungið streitu og hefur eyði­leggj­andi áhrif á fjár­hag, vel­ferð og almenn lífs­kjör þeirra sem veikj­ast og eygja veika von um stuðn­ing frá hinu opin­bera eftir langan og far­sælan starfs­feril og jafn­vel stöðugar greiðslur í líf­eyr­is­sjóð um ára­bil. Þegar sjúkra­sjóður er á þrotum tekur oft­lega við þétt og öfl­ugt end­ur­hæf­ing­ar­ferli. Sú end­ur­hæf­ing ber þó ekki alltaf árangur og því standa fjöl­margir gagn­vart því sem virð­ist nær óvinn­andi vegur; að sækja um ótíma­bundna örorku. Við tekur þá langt og spennu­þrungið bið­ferli eftir úrskurði mats­lækna Trygg­inga­stofn­unar um örorku og synjun virð­ist orðin næst því að vera lenska í sjúkra­kerf­inu, ásamt því sem sífellt fleiri kæra slíkar synjun, oft með engum árangri.

Fleiri deila sögu sinni í hópnum og má sjá að umsækj­endur um örorku eru margir lang­þreyttir, fár­veikir og úrkula vonar um að geta séð sér efna­hags­lega far­borða meðan á veik­indum stendur. Umboðs­maður Alþingis er á sama máli og hefur krafið Ásmund Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra skýr­inga og spyr því umsóknum um örorku­líf­eyri, sér­stak­lega frá ungu fólki sé í sífellu vísað frá á þeim grund­velli að end­ur­hæf­ing sé ekki full­reynd.

Þessa starfs­hætti segir Umboðs­maður Alþingis þungt áhyggju­efni en emb­ætt­inu hafa borist fjöl­margar kvart­anir og ábend­ingar, ekki hvað síst frá ungu fólki sem leggur fram gögn sjúkra­trygg­inga­kerfis sem sýna að umsókn um örorku er synjað á þeim for­sendum að end­ur­hæf­ing sé ekki full­reynd.

„Ein­stak­lingum hefur verið synjað um örorku á þeim for­sendum að end­ur­hæf­ing hafi ekki verið full­reynd án þess þó að til­tekið sé hvaða end­ur­hæf­ing­ar­úr­ræði séu full­reynd, hvort end­ur­hæf­ing­ar­úr­ræði standi hrein­lega til boða og hvert aðgengi að end­ur­hæf­ing­ar­úr­ræðum er, með til­liti til bið­tíma, stað­setn­ingar eða ann­arra mögu­legra hind­r­ana,“ segir Umboðs­maður Alþingis meðal ann­ars í erindi til ráð­herra og krefur ráðu­neyti svara ekki síðar en 28. júní.

Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir, for­maður Öryrkja­banda­lags Íslands fagnar erindi Umboðs­manns Alþingis og lýsir þungum áhyggjum af afgreiðslu­tíma og svo svo efa­semdum mats­lækna Trygg­inga­stofn­unar. „Það er í raun ótrú­legt að ung­menni með umönn­un­ar­mat vegna marg­þættra fatl­ana, skuli við 18 ára ald­ur­inn fá synjun á örorku­mati, sem væri eðli­legt fram­hald af umönn­un­ar­mati. End­ur­hæf­ing breytir ekki fötlun þess­ara ein­stak­linga.“ Þannig segir Þuríður Harpa ungt fólk ekki hvað síst eiga við ramman reip að draga og sér í lagi þegar liggi fyrir upp­lýs­ingar um ein­stak­linga með með­fæddar tauga­þroskarask­anir. „ … þar sem legið hefur fyrir umönn­un­ar­mat sam­kvæmt 4. gr. laga nr 99/2007 fram að 18 ára aldri. Dæmi eru um að ein­stak­lingum í þess­ari stöðu hafi verið synjað um örorku­mat þótt var­an­leg skerð­ing og þörf þeirra fyrir aðstoð hafi ekki breyst við það að ná 18 ára aldri.“

Alvar­leg­asta gagn­rýni Umboðs­manns Alþingis í erindi til ráð­herra bein­ist að því hvort mats­læknar Trygg­inga­stofn­unar synji ítrekað umsóknum um örorku­mat án hald­bærra gagna og upp­lýs­inga um getu og mögu­leika umsækj­enda á raun­hæfri end­ur­hæf­ingu. Þá er getum leitt að því hvort sér­fræði­teymi Trygg­inga­stofn­unar með­höndli umsóknir með nægj­an­lega traustum hætti og hvort leið­bein­ingar skorti með öllu.

Víst er að spenna ríkir víða í heil­brigð­is­kerf­inu og segir þannig á vef Öryrkja­banda­lags­ins að Umboðs­maður Alþingis muni, að gefnu svari ráðu­neytis fyrir lok þessa mán­aðar taka afstöðu til þess hvort til­efni sé að taka álita­efni til athug­unar að eigin frum­kvæði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Annar glæpamannanna hafði sakaferil að baki en hinn hafði ekki áður gerst sekur um þjófnað
Heimur

Segir Net­anyahu þrýsta á Trump um kjarn­orku­árás

Pólitík

Reykja­vík ætlar að snúa millj­arða­halla í afgang á aðeins einu ári

Heimur

Úkraínsk dróna­árás olli miklum eldi í rúss­neskri olíu­hreinsi­stöð

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Innlent

Innlent

Getur munað rúmum 22 þús­und krónum á umfelgun fólks­bíls

ASÍ ráðleggur fólki að óska eftir staðfestu heildarverði.
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu