Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Tryggvi safnar undirskriftum til stuðnings Ingós – Þú getur stutt Veðurguðinn í baráttunni

Í hádeginu í gær hófst undir­skrifta­söfnun þar sem skorað er á Þjóðhátíða­nefnd að endur­skoða ákvörðun sína um að afbóka tónlistar­manninn Ingólf Þórarinsson á Þjóðhátíð í Vestmanna­eyjum þetta árið. Undir­skriftirnar eru orðnar tæplega 1500 talsins þegar þetta er skrifað.

Á vefsvæðinu þar sem undir­skrifta­söfnunin fer fram stendur: „Það er ótækt með öllu að dómstóll götunnar stjórni því hverjir komi fram á viðburðum á Íslandi. Engin kæra liggur fyrir og því er engin rannsókn í gangi.“

Eftir að Þjóðhátíða­nefnd barst undir­skrifta­listi með nöfnum 130 kvenna sem lögðust gegn því að Ingólfur stýrði brekku­söngnum líkt og hann hefur gert undan­farin ár, tók nefndin þá ákvörðun að afbóka Ingólf veðurguð.

Það er Tryggvi Már Sæmundsson, fyrrum framkvæmda­stjóri ÍBV, sem hóf undir­skrifta­söfnunina til stuðnings Ingólfs.

„Þessi undir­skrifta­listi snýst um að ef það sem er sett á sam­fé­lags­miðla fer að stjórna öll­um viðburðum og öðru slíku, þá finnst mér við vera kom­in út á svo­lítið hálan ís. Ef múgæs­ing­ur á sam­fé­lags­miðlum get­ur farið að dæma og koma mönn­um út af sakra­ment­inu þá veit ég ekki al­veg hvert við erum kom­in í þessu. Það var kannski und­ir­rót­in að því að ég fór af stað með þetta,“ sagði Tryggvi í samtali við mbl.is í gær.

Tryggvi segir að með þessu sé hann þó alls ekki að taka afstöðu í málinu og segir annarra að dæma um það.

„Eitt­hvað af þessu eru margra ára gaml­ar sög­ur og ég harma það mjög ef fólk sem lend­ir í of­beldi fer ekki og læt­ur vita af því á rétt­um stöðum. Það er auðvitað mjög mik­il­vægt að þolend­ur komi þessu áfram, þó að það sé ekki kært strax þá er mjög mik­il­vægt að koma því í far­veg fljót­lega eft­ir að slík brot eru fram­in.“

Hyggst Tryggvi skila undir­skrifta­listanum til Þjóðhátíðar­nefndar innan fárra daga í von um að nefndin endur­skoði ákvörðun sína um að afbóka Ingólf veðurguð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi