Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Garðabær þverneitar fyrir spillingu eftir milljarðasamning Bjargar: „Hagsmunatengslin voru þekkt“

Gunnar Einarsson bæjarstjóri Garðanbær og Björg Fenger forseti bæjarstjórnar Garðabæjar
Gunnar Ein­ars­son bæj­ar­stjóri Garð­an­bær og Björg Fenger for­seti bæj­ar­stjórnar Garða­bæjar

Eftir að það kom upp á yfir­borðið með umfjöllun Mannlífs að meirihluti Sjálfstæðis­flokksins í bæjar­stjórn Garða­bæjar hefði veitt forseta sínum, Björgu Fenger, samning án útboðs upp á einn milljarð króna, þótt hún sé einn stærsti eigandi fyrir­tækisins sem hlaut samninginn – Terru – áður Gáma­þjónustan – reyndi Mannlíf í nokkra daga að fá viðbrögð frá meirihlutanum í Garðabæ. Þegar engin svör bárust þá setti blaða­maður Mannlífs saman ítarlegan spurningar­lista og sendi á þá sem að málinu koma – þann 8. Júlí – og fylgdi með spurningar­listanum þessi fyrir­spurn:

Góðan dag.

Ég heiti Svanur Már Snorrason og starfa sem blaða­maður á mannlif.is

Ég skrifaði frétt um samning án útboðs sem Garðabær gerði við fyrir­tækið Terra sem er að hluta til í eigu forseta bæjar­stjórnar Garða­bæjar.

Hér er tengill á fréttina: https://gamla.mannlif.is/frettir/gardabaer-snidgengur-log-samid-an-utbods-vid-fyrirtaeki-i-eigu-forseta-baejarstjornar/

Ég fer fram á að fá svör og upplýsingar varðandi þetta mál – sem og svör við spurningum Mannlífs varðandi málið sem er að finna hér fyrir neðan í tölvu­pósti þessum – sem og í meðfylgjandi viðhengi – og minni ég þig á að þér ber að veita umbeðin gögn skv. upplýsinga­lögum nr. 140/2012.

Yfir­skrift póstsins frá Garðabæ var: Svör við fyrir­spurn Mannlífs varðandi kaup á færanlegum húseiningum fyrir ungbarna­leikskóla.

Ef ekki var nauðsynlegt eða ólöglegt að gera samning þennan án útboðs, hvers vegna var þá gerður samningur við einmitt þetta fyrirtæki, Terru?

„Eitt megin hlutverka sveitar­félaga er að standa að þjónustu við íbúa sína og hér í Garðabæ hefur mörg undan­farin ár foreldrum ungbarna verið tryggð leik­skólavist fyrir börn sín frá um 12 mánaða aldri. Í lok síðasta árs lá fyrir mikil fjölgun leik­skólabarna sem mjög brýnt væri að bregðast við með sem hagkvæmustum hætti. Hafist var handa við að athuga þá kosti sem gætu verið í boði með það í huga að hafa tilbúið húsnæði fyrir ungbarna­leikskóla haustið 2021. Niður­staða þeirrar athugunar sem fór fram var að nota þær húseiningar sem í boði voru hjá fyrir­tækinu Terra ehf. Um er að ræða leigu á færanlegum húseiningum samkvæmt samningi sem samþykktur hefur verið í bæjarráði. Með tilkomu starfsemi ungbarna­leikskóla mun Garðabær geta boðið fjölda foreldrum allt að 96 barna leik­skólavist í haust.“

Lá það alveg ljóst fyrir að Terra væri hagstæðasti kosturinn fyrir bæjarbúa Garða­bæjar sem án alls vafa vilja að sem best sé farið með skatt­pening þeirra?

„Samningur við Terra ehf. um færanlegar húseiningar fyrir starfsemi ungbarna­leik­sóla er mjög hagstæður og kjör samningsins í alla staði eðlileg. Hagkvæmi samningsins birtist fyrst og fremst í þeirri þjónustu sem Garðabær getur veitt sínum íbúum með því að bjóða foreldrum ungbarna leik­skólavist frá um 12 mánaða aldri.“

Eruð þið með kláran samanburð varðandi kostnað samningsins við önnur sambærileg fyrirtæki á Íslandi sem mögulega hefðu tekið þátt í útboði verksins, hefði útboðið farið fram?

„Aðrir kostir voru skoðaðir en niður­staðan var að hagkvæmast væri að semja við Terru og þróa verkefnið með fyrir­tækinu á grund­velli samnings­kaupa sem er viðurkennd innkaupa­aðferð og á vel við þegar verið er fara nýjar leiðir en í Garðabæ hefur aldrei verið farin sú leið starfs­rækja leikskóla fyrir 4-6 deildir í færanlegum húseiningum. Í samnings­ferlinu hefur verkefnið verði mótað sameiginlega af aðilum eins t.d. hönnun þakgerðar og ísetning lagna fyrir gólfhita sem er mjög til þæginda fyrir starfsemi ungbarna­leikskóla. Þá hefur leik­skólastjóri, sem ráðinn hefur verið til að stýra skólanum, komið að yfirferð teikninga og í þeirri sameiginlegu yfirferð hefur m.a. verið hægt að verða við óskum sem fram hafa komið t.d. á uppröðun á eldhúsi, stærð glugga o.fl.“

Er á einhvern hátt eðlilegt að bæjar­stjórn sjötta stærsta sveitar­félags Íslands, Garðabær, geri samning þar sem deginum ljósara er og án alls vafa að hagsmuna­tengsl eru mikil á milli bæjar­stjórnar Garða­bæjar og forseta bæjar­stjórnar? Ef þið teljið þennan samning hafa verið gerðan án vitneskju ykkar um áðurnefnd hagsmuna­tengsl þá bið ég ykkur að staðfesta það – vissuð þið eða ekki af áður­nefndum hagsmunatenglsum?

„Í málum sem hafa verið til afgreiðslu í bæjar­stjórn er varða málefni Sorpu bs, þar sem fjallað hefur verið um gjaldskrár og fjármál byggða­samlagsins hefur Björg Fenger, bæjar­fulltrúi vikið sæti við afgreiðslu og umræðu um viðkomandi mál og gætt í hvívetna hæfis­reglna sveitar­stjórnar­laga. Hagmuna­tengslin voru þekkt en eignar­hald eða önnur tengsl einstakra bæjar­fulltrúa í fyrir­tækjum útilokar ekki að bæjar­stjórn taki ákvörðun um viðskipti við viðkomandi fyrirtæki. Bæjar­fulltrúi sem veit hæfi sitt orka tvímælis ber skylda til að vekja athygli á því og ber að ávallt að yfirgefa fundarsal við meðferð máls og afgreiðslu. Það hafa bæjar­fulltrúar í bæjar­stjórn Garða­bæjar ávallt gert til að gæta hæfis­reglna og þá lýst sig vanhæfa til þátttöku í meðferð og afgreiðslu einstakra mála.“

Eru slík vinnu­brögð, að veita samning án útboðs með hliðsjón af augljósum hagsmuna­tengslum, algeng í bæjar­stjórn Garða­bæjar, og þar á ég við meirihluta Sjálfstæðis­flokksins? Er svona samninga­gerð án útboðs og með augljósum hagsmuna­tengslum eitthvað sem mætti kalla „algengt og/eða almennt fyrir­komulag,“ og þá gert í fullri samvinnu og sátt við minni­hlutann í bæjar­stjórn?

„Við skoðun á fundar­gerðum bæjarráðs má sjá með augljósum hætti að almennt gildir sú regla að verk­framkvæmdir eru boðnar út. Á árinu 2021 hafa verið opnuð tilboð í þrettán verkefni, ýmist verk­framkvæmdir eða aðra þjónusta. Við afgreiðslu á samningi um leigu á færanlegum húseiningum fyrir ungbarna­leikskóla hefur þess verið gætt að hagsmuna­tengsl hafa ekki haft nein áhrif á ákvörðunar­töku í málinu. Bæjar­fulltrúinn Björg Fenger sat ekki fund bæjarráðs þar sem samningurinn var samþykktur og það vita það eða eiga vita það allir bæjar­fulltrúar að Björg hefur ekki haft nein afskipti að málinu.“

Hvaða einstaklingur setti fram þá hugmynd að skynsamlegast væri að sleppa útboði varðandi þennan samning sem gerður var við Terra, og er því að einhverju eða að miklu leyti ábyrgur fyrir því að málið var afgreitt án útboðs og til hagsmuna­aðila sem er forseti bæjar­stjórnar Garða­bæjar? Það getur ekki verið, eða er að minnsta kosti afar ólíklegt, að allir bæjar­fulltrúar Sjálfstæðis­flokksins í Garðabæ hafi á sama andartaki fengið þessa „hugmynd“ og síðan framkvæmt hana – eða hef ég rangt fyrir mér í þeim efnum?

„Eins og fram kemur í svari við spurningu nr. 1 lá það fyrir í lok síðasta árs að vegna mikillar fjölgunar barna á leik­skólaaldri væri brýnt að leita leiða til að geta veit foreldrum ungbarna leik­skólavist fyrir börn sín. Það var sameiginlegt verkefni starfs­manna bæjarins að kanna hvað kostir væru í boði og sameiginleg niður­staða að hagkvæmasti kosturinn væri að semja við Terra ehf, um leigu á færanlegum kennslu­stofum. Garðabær er stoltur af því að opna nýjan ungbarna­leikskóla í haust þar sem tekið verður á móti fjölmörgum leik­skólabörnum og þannig komið á móts við þarfir mjög margra ungra foreldra í bæjar­félaginu. Sjá frétt að vef bæjarins: Leik­skólinn Mánahvoll tekur til starfa í haust https://www.gardabaer.is/stjornsysla/utgefid-efni/frettir/leikskolinn-manahvoll-tekur-tilstarfa-i-haust“

Mannlíf mun fjalla áfram um þetta mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim