Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Búin að fá nóg af Íslandi – „Ég hef ekkert meira að gefa hér á landi“

Wictoria Joanna Ginter.
Wictoria Joanna Ginter. Mynd: Julie Rowland.

„Þetta gerði útslagið fyrir mig á Íslandi,“ skrifa Wictoria Joanna Ginter, Pólsk kona sem hefur verið búsett á Íslandi í 14 ár, í opinni færslu á Facebook.

„Takk fyrir allt sem þið hafið kennt mér um ykkur á 14 árum. Ég er búin að missa vonina um að vera nokkurn tíma meðtekin inn í íslenskt samfélag. Ég hef ekkert meira að gefa hér á landi”.

Allt leit vel út

Hún segist hafa lagt hart að sér ð leita að starfi sem myndi henta hennar hæfi­leikum, reynslu og menntun. Oft hafi hún sótt um störf sem ekki kölluðu einu sinni á hennar reynslu og getu. Hún hafi sjaldan sem aldrei fengið svar, hvað það boð í viðtal. Fyrst hafi hún einfald­lega talið að eftir­spurn eftir störfum væri þetta mikil en smám saman hafi hana farið að gruna að erlent nafn hennar hefði eitthvað með þetta að gera.

„Ég var næstum búin að gefa upp vonina þegar ég sá auglýsingu frá Marriot hótel­keðjunni, alþjóðlegri keðju hótela sem hefur á sér ákaflega gott orð. Ég sótti um stöðu veitinga­stjóra og var boðuð í viðtal næsta dag. Ég fór í gegnum flókið ráðningar­ferli og fékk hæstu mögulegu niður­stöðu og var sagt að það væri bókstaf­lega enginn annar á Íslandi sem myndi valda stöðunni”.  Hún segir að væntanlegur yfirmaður væri erlendur aðili með mikla reynslu af því að opna hótel víða um heim, hún fékk að ráða sér aðstoðar­mann og allt leit afar vel út.

Vildu ekki útlendan starfsmann

Wictoriu var brugðið þegar hún fékk drög að samningnum frá íslenska mannauðs­stjóranum, föst laun og enga greidda yfirvinnu, þrátt fyrir að hafa dregið verulega í land með launa­kröfur. Þegar hún sagðist ekki geta skrifað undir að óbreyttu var henni sagt að íslenski mannauðs­stjórinn væri „ekki ánægður með framkomu hennar”. Hún ræddi við  væntanlegan yfirmann sinn sem sagði að atvinnu­tilboðið væri dregið til baka þar sem matreiðslu­mennirnir og mannauðs­stjórinn vildu EKKI ÚTLENDAN STARFSMANN!“

Wictoria var þá búin að segja upp starfi sínu til að taka við nýju stöðunni. „Ég hef gefið Íslandi 14 bestu ár lífs míns. Ég hef aðlagast landinu fullkomlega, lært tungu­málið og unnið við að koma íslenski náttúru og menningu á kortið. Ég hef verið virk í atvinnu­lífinu og starfað í þágu íslenskra stjórn­mála. Ég á vini hérna, gifti mig hérna og eignaðist tvö yndisleg börn hér á landi.

En ég er ekki innfædd og ber ekki íslenskt nafn. Ég á ekki skilið að vera aðili á íslenskum vinnu­markaði því ég á ekki íslenskt vegabréf. Allt sem af mér er ætlast er að þrífa heima hjá fólki sem margt hvert ekki hefur sömu menntun og getu á vinnu­markaði og ég hef. Ég hef farið fram á íslenskan ríkis­borgararétt sem ég fæ ekki því það eru gerðar kröfur um ákveðna fjárhags­lega stöðu sem ég get ekki sýnt fram á, meðal annars vegna ástandsins í kjölfar Covid“.

Í þokkabót segr hún Útlendinga­stofnun hafa týnt öllum hennar pappírum og aldrei svarað tölvu­pósti.

Ísland hefur barið mig niður

Wictoria segir Ísland hafa barið sig niður og hún hafi engan kraft til að berjast á móti lengur. Hún hafi gefið sig alla í að vera virkur meðlimur í samfélaginu en sann­leikurinn sé sá að sama hvað maður reyni, sama hvað maður afreki, sama hvaða færni og hæfileika maður hafi, verði það aldrei nógu gott ef þú sért ekki innfæddur.

„Þú verður alltaf utanveltu, innflytjandi, útlend­ingur. Íslendingar segja sig eiga framsýnt samfélag, byggt á jafnræði sem taki vel á móti öllum. Það er langt frá því að vera rétt.  Ekki þykjast og sýnið velsæmi. Ég hef ekki meira að segja,“ segir Wictoria.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim