Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Spurt hvenær kalla skuli til Barnavernd: „Barnið skítugt með ónýtan glerung og angar af fúkkalykt“

Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Myndin teng­ist ekki frétt­inni beint.

„Hvenær er ástæða til að hafa samband við Barna­verndar­nefnd?“ spyr kona sem kýs ekki að koma fram undir nafni á Facebook síðunni Mæðratips. Hún segir að barns­móðir manns hennar sendi barnið til þeirra í of litlum fötum, með skítugt hár, óhreinar og óklipptar neglur auk þess sem það angi af fúkkalykt.

Hún segir ennfremur tann­glerung vera að eyðast upp hjá barninu, það sé búið að vera í sömu skónum í tvö ár, sé með bauga, andfúlt og allt út sárum.

Og að hún gæti hæglega tiltekið fleira, að eigin sögn.

Sjáum fötin aldrei aftur

Hún segir að þau hjón hafi boðist til að kaupa ný föt á barnið en svo virðist sem hún gleymi eða hundsi athuga­semdir. „Við höfum rætt um að senda föt á milli en hún harðneitar því, og segir að hún kaupi föt á það og við kaupum svo föt sem við eigum að vera með hjá okkur á það. Það hefur einstaka sinnum komið fyrir að það komi í fötum sem það passar í, en þá eru það mjög illa farin föt. Og við sendum það í nýjum fötum tilbaka sem við sjáum aldrei aftur.“

Hún tekur fram að henni sé langt því frá að vera illa við móðurina, hún sé almennileg og kurteis, en lítið sem ekkert breytist við samtöl.

Mikill fjöldi kvenna hefur lagt orð í belg og komið með hugmyndir og tillögur.

Hjördís bendir á að Barna­vernd sé engin Grýla. Þar fáist stuðningur ef þörf er á, inngrip í formi stuðnings og eftir­fylgdar ef þörf er á. „Barna­vernd er engin refsing fyrir að standa sig illa sem foreldri. Það á samkvæmt lögum að tilkynna ef grunur er að barn búi ekki við nægilega gott atlæti á heimili. Ef við tilkynnum ekki um slíkan grun okkar erum við sakhæf ef upp um það kemst“.

„Að til­kynna á ekki að vera ávísun á sam­visku­bit“

„Það á að vera léttir að vita af fagfólki sem mun kanna aðstæður og gera það sem þarf, ef þess er þörf“. Karen tekur undir og segir barnið ávallt eiga að njóta vafans, það sé ekkert það því að leita til fagaðila og láta þau meta hvort grípa þurfi inní.

Sigga bendir á að móðirin gæti hugsanlega farið í hart. „Þess vegna var mitt ráð að láta það þá frekar koma frá ömmunni eða vinkonu parsins eða einhvers sem þau þekkja sem er tilbúinn að taka á sig reiði móður“.

Þrif hafa ekkert með fátækt að gera

Stella segir það vanrækslu að tann­bursta ekki barn, þrífa og þvo á því hárið. Það hafi ekkert með fátækt að gera. Og Brynhildur bendir á að ef til væri best að leita til barna­læknis og tann­læknis þar sem glerungs­eyðing gæti verið ómeðhöndlað bakflæði og andfýla tengd of stórum háls­kirtlum.

Aðrar benda á að fúkkalykt gæti tengsl myglu í húsi sem orsakað geti veikindi.

Margir spyrja konuna hvort þau kaupi ekki önnur föt til að eiga hjá sér og hvort þau hafi einfald­lega sest niður til að finna sameiginlega niður­stöður sem verði til þess að barnið upplifi besta mögulega umhverfi.

Það sé best að gera áður en leitað sé til yfirvalda. Það sé alltaf betra að reyna að leysa hlutina á góðu nótunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim