Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Jóhann þjáist af gríðarlegum sársauka eftir bólusetningu með AstraZeneca – „Vil sækja rétt minn“

Jóhann þjáist af gríðarlegum sársauka eftir bólusetningu með AstraZeneca – „Vil sækja rétt minn“
Jóhann Waage.

„Ég geng með staf eftir að hafa fengið mikla heila­blæð­ingu í nóv­em­ber 2017. Fyrir utan að nota staf, var ég búinn að ná mér nokkuð vel. Þegar að ég fékk spraut­una, fann ég ekk­ert fyrir stung­unni og hélt bara út í bíl. Tveimur tímum síðar byrj­aði ég að fá tauga­verki í and­litið, fyrst vinstra megin sem er mín veika/skadd­aða hlið en síðan um allt and­litið. Mjög sér­stakt,“ segir Jóhann Waage, 45 ára fjöl­skyldu­maður og graf­ískur hönn­uður.

Saga hans birt­ist á blogg­síðu Þórdísar Bjarkar Sig­ur­þórs­dóttur.

Eins og glóandi fleinar

Jóhann er einn þeirra sem glímir við alvar­leg eft­ir­köst bólu­setn­inga með AstraZeneca og vill að ein­hver svari fyrir það hvers vegna fólk með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma var gefið það bólu­efni frekar en önnur. Hann fór í AstraZeneca bólu­setn­ingu 6. maí síð­ast­lið­inn. „Ég var alveg vanur tauga­verkjum en verk­ina hafði ég haft aðeins í höndum og fótum eftir heila­blæð­ing­una en var far­inn að vinna með þá og lifa með þeim og fjöl­skyldan algjör­lega hætt að taka eftir því að þetta væri að angra mig.“

Jóhann segi eftir spraut­una hafi hann verið búinn að vera frekar slappur og fullur af sleni. Ég fór að sofa en vakn­aði um tvö leytið við gríð­ar­legan sárs­auka í geir­vörtum og enda­þarmi, það var eins og verið væri að reka tvo gló­andi fleina upp í enda­þarm­inn á mér og gefa mér raf­lost í leið­inni og það sama með geir­vört­urnar. Alla nótt­ina emjaði ég af sárs­auka og dag­inn eftir jókst þetta og hljóp í nár­ann á mér og pung­inn. Ég svaf mest lítið aðfara­nótt laug­ar­dags en ákvað að fara í sund í góða veðr­inu með börnin og athuga hvort vatnið myndi hjálpa mér eitt­hvað. Ég hitti vin minn og fór aðeins í heita pott­inn til að spjalla en þegar ég fór upp úr pott­inum stein­leið yfir mig og ég lá kylli­flatur og vissi ekki af mér fyrr en að marg­menni stumr­aði yfir mér. Ég hafði sam­band við Covid.is og þau full­vissuðu mig um að þetta myndi ganga yfir á tveimur vikum.“

Verkir og taugakláði um allan líkama

Hann segir að und­an­farnir tveir mán­uðir hafi ein­kennst af stans­lausu tauga­stríði upp á hvern ein­asta dag, hann nái engri hvíld og lækn­ari geta ekk­ert gert nema ávísað nýjum og nýjum lyfjum sem hafi lítið sem ekk­ert gagn gert nema að taka allra allra versta brodd­inn af verkj­unum í smá tíma. „Verkirnir hafa hlaupið um allan lík­ama, frá fótum og höndum, í mið­búk­inn, í and­litið, í brjóstin, í enda­þarm­inn, í pung og eistu, í kyn­færin, í munn og tungu og í augu og meira að segja í hárið á mér og svo er ég með stöðugan tauga­kláða. Þetta hefur áhrif á geðslagið og hefur mikil áhrif á fjöl­skyldu­lífið og vinn­una, en ég reyni að vinna 50% starf.“

„Ný og ný lyf gera ekk­ert gagn“

Um miðjan júní fór Jóhann á bráða­mót­tök­una eftir að hann þoldi ekki meira og eftir klukku­tíma þing­hald komu lækn­arnir þar og sögðu honum að þeir gætu ekki með­höndlað hann því ein­kennin væru of sér­tæk og sendu hann upp á tauga­deild. vÞar beið ég í tvo tíma áður en tauga­læknir kom og sinnti mér. Sú sagð­ist helst vilja leggja mig inn en sagð­ist ekki geta það því það væru engin laus rúm. Hún tók mig inn á skrif­stofu til sín og fór yfir lyfja­gjöf­ina mína og bætti um betur og sagði þetta vera það eina sem hún gæti gert. Hún sagði einnig að það væri nokkur fjöldi fólks með und­ir­liggj­andi tauga­sjúk­dóma sem hefði komið upp á síðkastið vegna eft­irkasta af Astra Zeneca, þar sem það virt­ist sem svo bólu­efnið réð­ist á tauga­kerfi sjúk­ling­anna og hún harð­bann­aði mér að fara í sprautu númer tvö af Astra.“

Vil sækja rétt sinn

„Í gær 13. júlí ákvað ég að nýta þann kost að fara í Pfizer í stað­inn. Ég tek það fram að ég var mjög opinn fyrir bólu­setn­ingum þar til núna og vil að ein­hver svari fyrir það hvers vegna veikum ein­stak­lingum var gefið AstraZeneca umfram önnur bólu­efni. Ef ein­hverjir ætla að sækja rétt sinn, þá vil ég vera þar á meðal því þessi bólu­setn­ing hefur leitt til þess að heilsu minni hefur hrakað mjög mikið og lífs­kjör versnað,“ segir Jóhann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð