Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Sorgir og sigrar Herra Norðurslóða – Vilhjálmur var þekktasti landkönnuður Íslands

Sorgir og sigrar Herra Norðurslóða – Vilhjálmur var þekktasti landkönnuður Íslands

Á fyrstu ára­tugum þar­síð­ustu aldar fór land­könn­uð­ur­inn og mann­fræð­ing­ur­inn Vil­hjálmur Stef­áns­son í fjölda ferða til norð­ur­skauts­ins. Það má hiks­ta­laust kalla Vilhjálm einn þekktasta, fram­sýn­ast og ást­sælasta son þjóð­ar­innar.

Frumkvöðull og hetja

Þann tíma sem Vil­hjálmur dvaldi á norð­ur­slóðum Kanada og Alaska skráði hann í dag­bækur sínar ítar­legar lýs­ingar á sam­fé­lögum heima­manna, ferða­lögum, veð­ur­fari, dýra­lífi og lands­háttum sem urðu óþrjót­andi efni í bækur, greinar og fyr­ir­lestra. Vil­hjálmur var tal­inn frum­kvöð­ull og hetja, oft nefndur Spámaður Norð­urs­ins og Herra Norð­ur­slóð enda heim­ildir hans þær fyrstu um líf frum­byggja norð­urs­ins.

Því verður seint neitað að Vil­hjálmur hafi átt hvað drýgstan þátt í að kanna ísilagðar norðu­slóðir Kanada og Alaska. Hann upp­götvað áður óþekkt land­svæði, lærði tungu­mál Inúíta, bjó með og aðlag­aði sig að siðum þeirra og mat­ar­ræði Hann skrif­aði á þriðja tug bóka og nálægt 400 greinar og rit­gerðir um norð­ur­slóðir.  Vil­hjálmur var sann­kall­aður frum­kvöð­ull sem ótal bækur, riterðir og greinar hafa gert grein­ar­góð skil í gegnum árin.

Spornaði gegn þjóðrembu

Mik­il­vægur þáttur í boð­skap hans var að með því að læra af afkom­endum kyn­slóða sem búið höfðu á norð­ur­slóðum í þús­undir ára, og með því að aðlag­ast umhverf­inu og safna þekk­ingu sem ein kyn­slóð miðlar annarri, yrðu okkur ljósir mögu­leikar norð­ur­svæð­anna. Vil­hjálmur hafði sér­stöðu vegna fram­sýnna við­horfa, við­leitni hans til að sporna við menn­ingar- og þjóð­rembu og gagn­rýni hans á yfir­gang evr­ópskrar menn­ingar gagn­vart frum­byggjum norð­urs­ins.

Þó hafa komið fram heim­ildir þar sem nokkurn skugga ber á hetju­dáðir Vil­hjálms. Árið 1913 hóf Vil­hjálmur leið­angur ásamt 25 manns á segl­skip­inu Karluk á norð­ur­slóðir og var spenn­ingur meðal almenn­ings mik­ill.

Létust úr vosbúð

Veftíma­ritið Lemúrinn segir skipið hafa fest í hafís og setið pikk­fast. Hafi þá Vil­hjálmur yfir­gefið þá skip sitt og haldið út á ísinn við þriðja mann. Þeir voru á ferða­lagi í um 100 daga og veiddu sér til matar með riffli þar til annað skip kom og sigldi með þá heim.

Karluk rak hins vegar með ísnum og feykt­ist að lokum með honum yfir Ber­ingsund á haf­svæðið á milli Síberíu og Alaska sem nefn­ist Tjúksí-sjór. Þar brotn­aði skipið og sökk í jan­úar 1914. Fjórir menn náðu til Herald-eyjar en lét­ust þar úr vos­búð. Herald-ey er ísköld eyði­eyja norður af Síberíu. Aðrir áhafn­ar­með­limir hrökt­ust til Wrangel-eyju og var þeim sem lifðu af hörm­ung­arnar þar bjargað um borð í banda­rískt fisk­veiði­skip átta mán­uðum seinna.

En aftur að Vil­hjálmi Stef­áns­syni. Hann var harð­lega gagn­rýndur fyrir örlög Karluks. Mörgum fannst að ekki hefði verið staðið nægi­lega vel að skipu­lagn­ingu og und­ir­bún­ingi leið­ang­urs­ins, vitað hefði verið að vél skips­ins væri léleg og Vil­hjálmur gagn­rýndur fyrir að yfir­gefa menn sína.

Ótrúleg reynsla Ödu – og kattarins

Það var síða árið 1921 sem Vil­hjálmur skipu­lagði nýjan leið­angur og réði fjóra unga menn til leið­ang­urs­ins sem hann valdi vegna reynslu þeirra og þekk­ingar á sviði landa­fræði og vís­inda, eins og Lemúrinn greind frá.

Fjór­menn­ing­arnir lögðu af stað frá Nome í Alaska og tóku með sér í leið­ang­ur­innn unga inú­tía­konu, Ödu Blackjack, sem skyldi verða kokkur og sauma­kona hóps­ins. Land­könn­uð­unum ungu og Ödu var svo skutlað með skipi til Wrangel-eyju og voru þau skilin eftir á henni þann 16. sept­em­ber 1921.

En ekki fór sem vonað var. Far­ang­ur­inn var illa búinn fyrir hitt óblíða veð­ur­far og leið­ang­urs­menn alls óreyndir. Þegar birgðir klár­uð­ust reyndur þeir að fara á veiðar án árang­urs. Sult­ur­inn tók yfir ákváðu þrír manna að ganga rífega þús­und kíló­metra leið yfir ísilagt hafið til meg­in­lands Síberíu í leit að mat og aðstoð.

Aldrei heyrð­ist til þeirra framar. Þeir höfu skilið eftir Ödu Blackjack, unga inúta­konu sem var hugs­uðu sem kokkur hóps­ins ásamt áhafna­með­lim­inum Lorne Knight sem var þá þegar fár­veikur.

Orðsporið bar hnekki

Knight lést ári 1923 og þjáð­ist af skyr­bjúgi og öðrum kvillum. Til þre­menn­inga hefur ekki nokkuð maður heyrt síðan og er talið að þeir hafi lát­ist á ísnum skammt frá Wrangel-eyju. Vegna reynslu sinnar af norð­ur­slóðum tórði Ada alein á einu kaldasta svæði jarðar í tvö ár og fimm mán­uði og það ásamt kett­inum sínu. Hún varð heims­fræg fyrir vikið en kunni athygl­inni illa, sett­ist að í Alaska og lést þar 85 ára að aldri.

Hið góða orð­spor Vil­hjálms hafði borið hnekki og var hann sak­aður um að senda illa reynda menn í hættu­farir á illa útbúnum skipum.

Vil­hjálmi til varnar má nefna að þekk­ing Vest­ur­landa­búa á norðuslóðum var lítil sem engin í upp­hafi 20. ald­ar­innar og efast fáin sem engir um að Vil­hjálmur hafi gert allt hið besta sem kunn­átta þess tíma bauð upp á.

Spornaði gegn þjóðrembu

Vil­hjálmur hafði sér­stöðu vegna fram­sýnna við­horfa, við­leitni hans til að sporna við menn­ingar- og þjóð­rembu og gagn­rýni hans á yfir­gang evr­ópskrar menn­ingar gagn­vart frum­byggjum norð­urs­ins.

Sögu land­könn­uð­ar­ins og fræði­manns­ins Vil­hjálms Stef­áns­sonar er ekki lokið, því eins og aðrar góðar sögur á hún sitt eigið líf óháð höf­und­inum sjálfum.

Enn þann dag í dag fást fræði­menn, rit­höf­undar og kvik­mynd­ar­gerð­ar­menn um allan heim við að fjalla um arf­leifð Vil­hjálms.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ