Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Baldur varð manni að bana: „Ég grét bara“

„Ég var búinn að lenda í öllum tegundum ofbeldis fyrir 10 ára aldur“ segir Baldur Freyr Einarsson um æskuárin í Keflavík. „Eina sem var nóg af var sársauki“.

Baldur Freyr er í bata frá fíkni­sjúkdómi og hefur verið í 14 ár. Hann er einnig aðstandandi og ólst upp við mikið ofbeldi og erfiðar aðstæður. Hann segir sögu sína í nýjasta hlaðvarpi Það er von.

Var strax háður

Þegar Baldur fór að nota hugbreytandi efni af alvöru um fermingar­aldur, varð hann strax háður flóttanum frá kvíðanum og vanlíðaninni. Uppvöxturinn var vægast sagt óhefðbundinn og bjó Baldur einn þegar hann var á síðasta ári í grunn­skóla. Neyslan jókst og námið var vanrækt.

„Þegar ég var lítill lék ég mér með hvítt efni í poka, ég ætlaði að verða eiturlyfja­sali þegar ég yrði stór,” segir Baldur í viðtalinu því þannig voru hans fyrir­myndar og smám saman fetaði hann þann veg afbrota og fíkniefna. Líf hans var litað ofbeldi.

Fyrsta innlögn Baldurs á Vog var einungis til að sleppa við að fara á geðdeild eftir eina af mörgum sjálfsvígs­tilraun. „Mér leið eins og algjörum lúser, ég gat ekki einu sinni kálað mér. Ég tók meðvitaða ákvörðun inni á Vogi að fara í sprautu­neyslu. Ég gerði það og beitti hrotta­legu ofbeldi á sama tíma, við vorum bæði hættu­legir sjálfum okkur og öðrum.”

Baldur og hans hópur réttlættu ofbeldið að þolendur ættu það skilið samkvæmt þeirra bókum.

Varð manni að bana

Ásamt félaga sínum varð Baldur ungum manni að bana í miðbænum. „Ég grét bara, maður hefði kannski gengið svona langt í ofbeldi ef hann hefði gert eitthvað en ekki í einhverjum slags­málum niðri í bæ“.

Baldur talar um hvernig fólk í virkri neyslu réttlætir fyrir sér neysluna. „Ég vildi vera í skólanum, þá fékk ég bara 4000 krónur á viku, þá þarf maður auðvitað að redda sér pening. Ég fór þá strax að flytja inn kókaín á Hraunið“.

Baldur hefur í seinni tíð, eftir að hafa verið ofbeldis­fullur eiturlyfja­sali, rekið vændishús og sat meðal annars inni fyrir að verða manni að bana. Hann hefur tileinkað líf sitt því að aðstoða aðra við að ná bata með aðstoð guðs.

Líf Baldurs, eftir að hann varð edrú, hefur ekki verið dans á rósum. Hann hefur gengið í gegnum mörg erfið áföll, sem hann segir frá í hlað­varpinu, en komist í gegnum þau án þess að flýja í hugbreytandi efni.

Hann talar um mátt fyrirgefningar og hvernig hann hefur bæði notað hana fyrir sig og veitt öðrum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim