Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Rebekka Ósk verið á túr samfleytt í 48 daga: „Það er ekkert eðlilegt við þetta“

Rebekka Ósk verið á túr samfleytt í 48 daga: „Það er ekkert eðlilegt við þetta“

Í kringum 500 konur hér á landi virð­ast kljást við trufl­anir á tíð­ar­hringnum eftir bólu­setn­ingu vegna covid-19. Rebekka Ósk Sváfn­is­dóttir er ein þeirra en hún hefur verið á túr í 48 daga sam­fleytt eftir spraut­una.Rebekka hefur talað opin­skátt um það að hún hefur verið á stans­lausum blæð­ingum síðan hún var bólu­sett fyrir Covid– 19. Hún hefur verið að grennsl­ast fyrir um það hjá öðrum konum hvort þær tengi rugl­ing á tíða­hring sínum við Covid– 19 bólu­setn­ing­arnar. Sjálf hefur Rebekka Ósk verið á stöð­ugum blæð­ingum í 48 daga. Rebekka hefur stofnað hóp á Facebook sem ein­göngu er ætl­aður bólu­settum konum, sem hafa upp­lifað breyt­ingar á tíða­hring sínum eftir að hafa fengið bólu­setn­ingu gegn Covid– 19. Hópinn má finna

hér

fyrir þær konur sem upp­fylla skil­yrði hans.Um helg­ina ákvað Rebekka að athuga hvort fleiri konur væru að brasa með tíð­ar­hring­inn sinn eftir bólu­setn­ingu og spurð­ist fyrir um það í fjöl­mennum hópi kvenna á Facebook. Ekki stóð á við­brögð­unum:„Facebookið er búið að vera rauð­gló­andi og ég hef fengið sögur bæði í einka­skila­boðum sem og á vefnum þar sem ég byrj­aði að vekja athygli á þessu. Um það bil 500 konur!!!Sögurnar eru allt frá því að konur hafi ekki farið á blæð­ingar í 4 jafn­vel 5 mán­uði og upp í það að vera a blæð­ingum stans­laust í meir en 30 daga. Ég vil að stjórn­völd tali um þetta og gefi okkur svör við þessu þegar í stað!“

Rebekka Ósk er hörku kona sem ætlar ekki að láta koma fram við sig eins og hún sé klikkuð.

Dagur 48

Mannlíf hafði sam­band við Rebekku Ósk og spurði hana hvernig staðan væri hjá henni, hvort hún væri enn á blæð­ingum.

„Ég er á degi 48 í dag“

tjáði hún blaða­manni. Rebekka sagð­ist halda úti hóp sem hún stofn­aði í fyrra­kvöld og þangað inn eru strax komnar 53 konur sem glíma við ein­hvers konar breyt­ingar á tíða­hringnum líkt og hún. Hún hefur fengið fjöld­ann allan af skila­boðum sem og vitn­is­burði kvenna undir inn­leggi sem hún setti inn á mjög stóran hóp á Facebook sem ein­göngu konur eru með­limir í.

Bent á að leita til kvensjúkdómalæknis

Rebekka hefur leitað til heilsu­gæsl­unnar vegna óstöðv­andi tíða sem eru nú eins og áður sagði á degi 48. Þar var henni tjáð að hún skildi fara til kven­sjúk­dóma­læknis sem hún hefur ekki komið við vegna þess að hún er nú stödd í Svíþjóð og hefur ekki getað leitað sér aðstoðar þaðan eins og gefur að skilja.

Rebekka hvetur konur sem eru að kljást við breyt­ingar á tíða­hring eftir bólu­setn­ingu að til­kynna það til Lyfja­stofn­unar.

Hvetur konur til þess að tilkynna

Hún seg­ist vissu­lega hafa til­kynnt auka­verk­an­irnar til Lyfja­stofn­unar og nú hvetur hún allar konur sem ekki enn hafa gert það og eru að upp­lifa breyt­ingar á sínum tíða­hring. Hér má til­kynna. Mannlíf spurði hvað hún væri helst búin að heyra frá þeim fjölda kvenna sem þjást af truflun á tíða­hring eftir Covid- 19 bólu­setn­ingu. Rebekka sagði að það væru konur í sömu stöðu og hún, stöðugar blæð­ingar, konur sem fara alls ekki á blæð­ingar lengur, konur sem hafa verið á breyt­inga­skeið­inu í jafn­vel fjölda ára og byrj­uðu allt í einu að hafa blæð­ingar sem voru löngu hættar.

Allskyns afbrigði

Það virð­ist vera allur gangur á þessu og ýmsar útgáfur af breyt­ingum sem konur eru að finna fyrir, bletta­blæð­ingar, vika á milli blæð­inga og svona mætti lengi telja. Konur hafa líka minnst á aukn­ingu túr­verkja sem geta orðið ansi slæmir og jafn­vel hjá konum sem aldrei hafa fundið slíka verki að ráði.

„Ég kastaði þessu fram á stórum kvenna hóp á Facebook, þegar ég sá frétt á Mbl. um að yfir 250 konur höfðu til­kynnt og ég veit fyrir víst að þær eru mikið fleiri núna vegna þess ég hef verið að hvetja konur til þess“.

Enga þöggun

Rebekka tekur sér­stak­lega fram að hún sé alls ekki á móti bólu­setn­ingum, enda bólu­sett sjálf og bætir við: „Við sem þjóð eigum rétt á því að heyra sann­leik­ann um auka­verk­anir af þessum bólu­setn­ingum. Ekki bara algjöra þöggun og ef maður segir eitt­hvað þá er maður bara klikk­aður og þar fram eftir göt­unum“. að lokum segir Rebekka, að það séu að minnsta kosti mörg hund­ruð konur að kljást við sama vanda og þær eigi það allar sam­eig­in­legt að hafa þegið bólu­setn­ingu gegn Covid- 19 og að vanda­málin hafi byrjað í kjöl­far þess.

Mannlíf reyndi að ná sam­bandi við starfs­mann hjá Land­lækn­is­emb­ætt­inu en þar var engin við sem gat svarað spurn­ingum blaða­manns sökum sum­ar­fría. Málið verður tekið upp að sum­ar­fr­íum loknum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina