Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Eva Björg fær alltaf samúð með afbrotamönunnunum: „Þetta er alltaf á svo gráu svæði“

Eva Björg fær alltaf samúð með afbrotamönunnunum: „Þetta er alltaf á svo gráu svæði“

„Ég hef alltaf haft rosa­legan áhuga á afbrotum, af hverju fólk fremur glæpi og þeim sam­fé­lags­legu þáttum sem hafa áhrif á þau áhrifa á ein­stak­linga að það skap­ast geta til að fremja afbrot. Mér þykir gríð­ar­lega áhuga­vert af hverju sumir fremja afbrot en ekki aðrir og hvaða hlut­verki upp­eldi þjónar á móti umhverfi,“ segir Eva Björg Ægis­dóttir, rit­höf­undur.

Íslenskir glæpa­sagna­rit­höf­undar hafa vakið mikla athygli um allan heim und­an­farin ár og þekkja allir nöfn á borð við Arnald og Yrsu. Og núna er Eva Björg að skapa sér nafn á alþjóða­vísu.

Heilluð af smábæjarlífi

Eva Björg hlaut verð­laun Samtak breskra glæpa­sagna­höf­unda í ár fyrir frumraun árs­ins, bók sína, Marrið í stig­anum. „Þegar maður er þess þenkj­andi að maður ætli að skrifa bók fer maður að leita meira í umhverfi sínum og ég fer ég strax að skrifa um bæinn minn, Akranes, bæinn sem ég þekki best, enda hefur smá­bæj­ar­líf hefur alltaf heillað mig svo­lítið. Hver maður er í smábæ, hvað skiptir mann máli og hversu langt maður til­bú­inn að ganga til að vernda sitt orð­spor innan bæj­ar­ins, vit­andi að þú átt ekki aft­ur­kvæmt ef eitt­hvað ger­ist sem eyði­leggur það.“

Hún segir Vitann á Akranesi hafa verið inn­blást­ur­inn. „Gamli vit­inn er fal­legur staður, ég fór þangað oft sem barn og maður man­aði sig í að fara upp stig­ann. Þetta er dul­ar­fullur og heill­andi staður sem mér fannst full­kom­inn til þess að þar myndi skola upp líki”.

Á margar útfylltar bækur

Eva Björg er fædd og upp­alin Skagamær sem býr núna ásamt manni sínum og þremur börnum í Vesturbæ Reykja­víkur og við­ur­kennir fús­lega að það geti verið erfitt fyrir Skaga­menn að eiga börn í erkó­vina­fé­lag­inu KR.

„Sjálf var ég í fim­leikum sem krakki, aðal­lega út af félags­skapnum en aldrei sér­stak­lega góð. Ég var aðal­lega bóka­ormur, byrj­aði að lesa fimm ára og fasta­gestur á bóka­safn­inu alla mína æsku. Ég var með ríkt ímynd­un­ar­afl og samdi sögur þegar ég labba heim úr skól­anum. Sumar skrif­aði ég niður og ég á margar útfylltar dag­bækur af þessum sögum“.

Eva Björg tók þátt í smá­sagna­keppni í ung­linga­deild og seg­ist hafa fundið fyrir inn­blæstri þegar hún sett­ist niður og skrif­aði sög­una sem síðar vann keppn­ina. „Það var var alltaf í mér að ég myndi seinna skrifa bók“.

Samfélagið skapar glæpamenn

Evu Björg fannst hún þurfa að læra eitt­hvað til að verða rit­höf­undur og skráði sig í bók­mennta­fræði sem reynd­ist ekki henta henni svo hún nam þessi í stað félags­fræði og afbrota­fræði. „Ég held að sam­fé­lagið auki sinn þátt í að skapa glæpa­menn og finnst afar erfitt að gera svört eða hvít skil þegar ég skrifa því ég fæ alltaf svo mikla samúð með afbrota­mönn­unum, þetta er aldrei skýr lína, þetta er allt á gráu svæði“.

Hlut­irnir hafa gengið hratt fyrir sig hjá Evu Björg eftir að hún gaf út bók­ina. Hún vann Svar­fuglskeppn­ina, keppni glæpa­sagna, var til­nefnd til verð­launa á CrimeFest bóka­há­tíð­inni í hópi höf­unda fyrir sína fyrstu bók og er nýkomin frá Quais du polar glæpa­sagna­há­tíð­inni í Lyon í Frakk­landi, þar sem 60.000 gestir voru við­staddir. „Þetta er búið að vera óraun­veru­legt ferli, sér­stak­lega hversu vel hefur gengið. Það var mjög sér­stakt að sjá hversu margir þekktu mann þarna úti og gaman að vita að því að útlend­ingar séu að lesa bæk­urnar mínar, þótt ég hugsi ekki mikið út í það“.

Aðspurð hvort hún orðin fræg og komin með aðdá­endur hlær Eva Björg og gerir lítið úr því. „Maður finnur aðeins fyrir þessu á sam­fé­lags­miðlum. En það er þægi­legt að vera þekktur fyrir eitt­hvað rólegt eins og bóka­skrif ef maður á að vera þekktur yfir­leitt“.

Elska að vera hrædd

Nýjsta bók Evu Bjargar er næstum til­búin og kemur út með haustinu.

„Ég er ættuð af Snæ­fells­nes­inu og fjöl­skyldan á bústað við Arn­ar­stapa. Mér hefur alltaf fund­ist þetta heill­andi og dul­magnað svæði þannig að bókin ger­ist á hót­eli þar. Þetta er svo sér­störk orka á Snæ­fells­nesi, ekki síst í kringum jökul­inn, og þetta er minn upp­á­halds­staður. Ég ólst upp við að fara í bústað­inn þar sem við sátum við olíu­lampa og sögðu drauga­sögur því það var ekk­ert raf­magn fyrstu árin.

Ég elskaði að vera hrædd sem krakki og elska það enn, horfi til dæmis mikið á hryll­ings­myndir og nýja bókin er meira í átt sál­fræði­trylli en lög­reglu­rann­sókn­ar­sögu, ég vona að það falli í kramið“, segir Eva Björg að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ