Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Orkudrykkjum er markvisst haldið að grunnskólabörnum: Neysla á orkudrykkjum með því mesta í Evrópu

Orkudrykkjum er markvisst haldið að grunnskólabörnum: Neysla á orkudrykkjum með því mesta í Evrópu

Áhættu­mats­nefnd hefur að beiðni Mat­væla­stofn­unar rann­sakað hvort neysla orku­drykkja, sem inni­halda koffín, hafi nei­kvæð áhrif á heilsu ung­menna í fram­halds­skólum. Til að meta hvort neysla íslenskra ung­menna geti verið skað­leg fyrir heilsu er stuðst við við­mið­un­ar­mörk, sem Mat­væla­ör­ygg­is­stofnun Evrópu (EFSA) hefur sett, fyrir ann­ars vegar svefn og hins vegar hjarta- og æða­kerfið. Mörkin fyrir hjarta-og æða­kerfið eru mishá eftir því hvort um ræðir ein­stak­linga undir 18 ára aldri eða 18 ára og eldri.

Nið­ur­staða nefnd­ar­innar er að neysla íslenskra ung­menna sé tölu­vert meiri en sést hefur í erlendum rann­sóknum. Framboð, aðgengi og mark­aðs­setn­ing orku­drykkja hér­lendis virð­ist skila sér í því að neysla íslenskra fram­halds­skóla­nema sé meiri en æski­legt er. Nið­ur­stöður nefnd­ar­innar gefa til kynna að tak­marka þurfi aðgengi ung­menna að orku­drykkjum t.d. innan veggja skól­anna og á vegum íþrótta­hreyf­ing­anna og minnka þannig nei­kvæð áhrif koff­íns á heilsu þeirra.

Nið­ur­stöð­urnar eru hrein­lega slá­andi, en hér að neðan má sjá þær helstu.

  • Neysla íslenskra ung­menna á orku­drykkjum, sem inni­halda koffín, er með því mesta sem þekk­ist í Evrópu og er vægi orku­drykkja í heild­ar­koff­ín­n­eyslu íslenskra ung­menna mun meira en sést í sam­bæri­legum  erlendum rann­sóknum.
  • Meira en helm­ingur fram­halds­skóla­nema neytir orku­drykkja einu sinni í viku eða oftar. Tíundi hver fram­halds­skóla­nemi undir átján ára og einn af hverjum fimm yfir átján ára aldri, neytir orku­drykkja dag­lega.
  • Koff­ín­n­eysla hjá um þriðj­ungi nem­enda á aldr­inum 16-17 ára, sem drekka orku­drykki, er yfir við­mið­un­ar­mörkum sem eru talin hafa nei­kvæð áhrif á svefn. Hátt í helm­ingur 18-20 ára ung­menna, sem drekka orku­drykki, inn­byrða koffín dag­lega yfir þeim mörkum. Til sam­an­burðar inn­byrða aðeins 5-7% yngri ung­menna (<18 ára) og 10% eldri ung­menna(>18 ára), sem ekki drekka orku­drykki, koffín yfir þessum mörkum.
  • Það er sterk nei­kvæð fylgni milli neyslu fram­halds­skóla­nema á orku­drykkjum og svefns, sem lýsir sér í því að þau sem neyta mik­ils magns orku­drykkja eiga erf­ið­ara með að sofna. Mjög hátt hlut­fall þeirra seg­ist sofa lítið (minna en 6 tíma á sól­ar­hring).
  • Áhættu­mat sýnir að a.m.k. 10-12% yngri ung­menna (<18 ára), sem neyta orku­drykkja, inn­byrða koffín yfir þeim örygg­is­mörkum fyrir hjarta- og æða­kerfið sem EFSA ráð­leggur að séu örugg fyrir börn, eða 3 mg/kg lík­ams­þyngdar á dag. Til sam­an­burðar inn­byrða 1-2% ung­menna, sem ekki neyta orku­drykkja, koffín yfir þessum mörkum.
  • Þau ung­menni (<18 ára) sem inn­byrða mest koffín, inn­byrða tvö­falt til fjór­falt það magn sem EFSA leggur til sem örygg­is­mörk fyrir koff­ín­inn­töku full­orð­inna, eða 3 mg/kg lík­ams­þyngdar á dag.
  • Langtíma neysla á miklu magni (yfir 3 mg/kg lík­ams­þyngdar á dag) af koff­íni getur valdið miklu álagi á hjarta- og æða­kerfið.
  • Sam­an­burður við skýrslu áhættu­mats­nefndar frá 2020 um koff­ín­n­eyslu grunn­skóla­nema  (8.-10. bekk) leiðir í ljós að neysla orku­drykkja (2x í viku eða oftar) eykst línu­lega eftir aldri, úr 10% fyrir 13 ára í 46% fyrir 18-20 ára. Um 40-70% ung­menna í 8.-10. bekk hafa fengið orku­drykki gef­ins í tengslum við íþróttir eða hópa­starf sam­an­borið við 10% fram­halds­skóla­nema. Svo virð­ist sem orku­drykkjum sé mark­visst haldið að grunn­skóla­börnum og þar sem koffín er vana­bind­andi efni veldur þetta áhyggjum m.t.t. mögu­legra nei­kvæðra heilsu­á­hrifa til langs tíma.
  • Óheft aðgengi ung­menna (<18 ára) að orku­drykkjum í skólum, í hópa­starfi og við íþrótta­iðkun er ekki til þess fallið að draga úr neyslu þess­ara drykkja. Áhættu­matið sýnir að fram­boð, aðgengi og mark­aðs­setn­ing orku­drykkja hér­lendis virð­ist skila sér í því að neysla íslenskra fram­halds­skóla­nema sé meiri en æski­legt er. Neyslan hafi nei­kvæð áhrif á svefn, óháð and­legri líðan þeirra. Hún sé yfir því magni sem getur valdið hækkun á blóð­þrýst­ingi og þar með auknu álagi á hjarta- og æða­kerfið.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi