Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Sólveig tjáir sig um hótanir: „Kallaði mig alltaf „konuna“ þegar hann var að úthúða mér sem fífli“

Sólveig tjáir sig um hótanir: „Kallaði mig alltaf „konuna“ þegar hann var að úthúða mér sem fífli“
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd: Róbert Reynisson

Frá því að Sólveig Anna Jóns­dóttir ákvað frá að hverfa sem for­maður Eflingar hefur hún gefið út sex yfir­lýs­ingar á Facebook-síðu sinni.

Þær hafa allar að gera með brott­hvarf hennar og þær ástæður sem hún segir liggja að baki. Sömu­leiðis fjalla þær um átök og deilur innan skrif­stofu Eflingar.

Sólveig Anna hefur enn ekki viljað tala beint við fjöl­miðla. Hún hafn­aði því til að mynda að mæta í Kastljós í fyrra­dag.

Í nýj­ustu yfir­lýs­ingu sinni kemur Sólveig meðal ann­ars inn á þær hót­anir sem hún seg­ist hafa orðið fyrir af hálfu starfs­manns Eflingar.

„Í ályktun trún­að­ar­manna starfs­fólks skrif­stofu Eflingar frá því í sumar var því haldið fram að ég hefði stöðugt í hyggju eða væri búin að fram­kvæma fyr­ir­vara­lausar upp­sagnir.

Fyr­ir­vara­laus upp­sögn er talið mjög alvar­legt brot á launa­manni hafi atvinnu­rek­andi ekki fyrir henni mjög góðar ástæður svo sem að launa­maður hafi sýnt stór­kost­legt gáleysi, hafi rækt störf sín með veru­lega ófull­nægj­andi hætti eða gerst alvar­lega brot­legur í starfi,“ segir Sólveig Anna í sjöttu yfir­lýs­ingu sinni sem hún birti á Facebook-síðu sinni í gær.

„Ég hugsa að ég hefði getað fram­kvæmt fyr­ir­vara­lausa upp­sögn á þeim manni sem hót­aði því að koma heim til mín og gera mér mein þegar ég fékk um hót­un­ina vit­neskju 13. októ­ber síð­ast­lið­inn. Það gerði ég þó ekki. Hann var ekki einu sinni áminntur.

Hvers vegna ákvað ég að gera ekk­ert? Vegna þess að mér var til­kynnt að mann­eskjan sem hann upp­lýsti um lang­anir sínar til að fara heim til mín og gera mér illt (sem hann myndi kom­ast upp með vegna þess að hann væri með hreina saka­skrá og yrði því ekki dæmdur til fang­els­is­vistar) vildi ekki, þrátt fyrir að vera svo brugðið við orð þess sem hót­aði að hún leit­aði með áhyggjur sínar til ann­ars trún­að­ar­manns starfs­fólks skrif­stof­unnar og alla­vega eins ann­ars starfs­manns, standa með mér vegna þess að hún vildi „vernda vinnu­sam­band sitt sam­starfs­fé­laga sinn til margra ára“.

Vildi frekar standa með ger­and­anum, mann­inum sem var löngu hættur að tala um mig með nafni, en kall­aði mig alltaf „kon­una“ þegar hann var að úthúða mér sem fífli sem ekk­ert kynni við sam­starfs­fólk okkar, en að lið­sinna mér.“

Sólveig Anna segir að þegar hún hafi heyrt af þessu hafi hún vitað að myndi hún krefj­ast aðgerða, til dæmis til þess að hún þyrfti ekki að borða í sama mat­sal og þessi maður, myndi allt verða vit­laust.

Hún segir að ekki hafi hún getað borðað inni á skrif­stofu sinni, þar sem áður hafði komið fram að það væri illa séð af starfs­manna­hópnum.

„Ég yrði ásökuð um lygar. Um að vera búin að setja aum­ingja mann­inn á aftöku­list­ann. Ég vissi að hann myndi sækja sér aðstoð hjá fyrrum stjórum hreyf­ingar vinn­andi fólks, þeirra sem hafa til dæmis skemmt sér við það á síð­ustu árum að senda í aðdrag­anda þinga ASÍ og SGS erindi á fjöl­menna hópa þing-gesta um hversu við­bjóðs­leg glæpa-kona ég er.

Ég vissi að ástandið á skrif­stof­unni yrði óbæri­legt fyrir mig ef ég krefð­ist þess að eitt­hvað yrði gert. Og ég gat ekki hugsað mér meira óbæri­legt ástand. Það var á end­anum hin ein­falda og sára nið­ur­staða sem ég komst að eftir að hafa hugsað um málið í næstum heila viku.

Í ályktun trún­að­ar­manna starfs­fólks skrif­stofu Eflingar frá því í sumar var því haldið fram að ég hefði stöðugt í hyggju eða væri búin að fram­kvæma fyr­ir­vara­lausar upp­sagnir. Þrátt fyrir að það væri ósatt.

Er hægt að hugsa sér alvar­legri aðför að mann­orði for­manns stétt­ar­fé­lags en að ásaka hana um þetta?

Þessi ein­beitta og grimmi­lega aðför að mann­orði mínu setti mig í þá stöðu að geta ekk­ert gert til að bregð­ast við vit­neskju um að maður gæti hugsað sér að fara heim til „kon­unnar“ til að fremja glæp. Ég var föst í gildru.

Ég er þrátt fyrir allt fegin að vera laus úr henni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ