Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Ragga Nagli : „Víruð upp í rjáfur af koffíni með örari hjartslátt, hærri blóðþrýsting og svima“

„Afi Naglans drakk molakaffi. Bleksvarta iðnaðar uppáhellingu með 2-3 sykur­molum dýft ofan í. Sem barn og unglingur horfði Naglinn á yndislega afa sinn sötra úr bollanum og pota neftóbaks­kornum í nös. Naglanum var ekki boðið uppá sopa af tjörunni. Aldrei datt Naglanum í hug að biðja um slurk af koffíni og sykri í bolla fyrir sjálfa sig. Þetta var ógeðis­drykkur fullorðna fólksins“ segir hin eina sanna Ragga Nagli og bætir við:

„En ungmenni dagsins sötra þessa kombinasjón íblönduðu litar­efnum og fabrikkuðu ávaxta­bragði úr áldósum allan liðlangan daginn. Tvöföldu til þreföldu magni af kaffi­bollum er hesthúsað langt fram eftir degi og fram á kvöld. Bættu svo útí aspartame, acesúlfam-K og súkralósa til að þjarma að þarma­flórunni. Toppað með sítrónu­sýru til að rústa glerungnum.“

Gefur ekkert eftir, Ragga Nagli:

„Víruð upp í rjáfur af koffíni með örari hjartslátt, hærri blóð­þrýsting, skjálfta, svima. Ekki séns að festa svefn því tauga­kerfið er stútfullt af koffíni en helmingunar­áhrif koffíns eru 8 tímar svo um miðja nótt er aðeins helmingur af orku­drykknum farið úr skrokknum. Svefninn verður lausari sem truflar svefngæði og svefn­lengdin styttri,“ og segir að „ungmenni þurfa 8-10 tíma svefn en rann­sóknir sýna að börn og unglingar eru einungis að sofa í 6-7 tíma á nóttu.

Lang­varandi svefn­leysi hefur í för með sér mjög alvarlegar afleiðingar fyrir andlegt og líkamlegt ástand. Kvíðinn dúndrast upp, sjálfs­myndin fer í niður­fallið og einbeitningin langt út á tún þegar svefninn er í tjóni. Athyglisspönnin og minnis­gáfan verður á pari við gullfisk. Frammistaða í íþróttum versnar því samræming hugar og handar er á felgunni og líkur á meiðslum marg­faldast.“

Ragga nefnir að „árið 2018 vildi ríkis­stjórn Bretlands banna sölu orku­drykkja til allra undir 18 ára aldri vegna skaðlegra áhrifa þeirra á heilsu barna og ungmenna. Ógeðis­drykkurinn af kaffi og sykri er settur í sexý umbúðir orkudrykks með ávaxta­bragði og markaðs­sett sem lausn við þreytu og orkuleysi sem er afleiðing af drykkju sama drykkjar. Hundurinn eltir sem sagt skottið á sér í þessum efnum.“

Segir að lokum:

„Fræðum börnin um skaðleg áhrif orku­drykkja og hvetjum þau til að nota frekar ókeypis lausnina við þreytu sem heitir að sofa lengur og betur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra