Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gréta tónlistarkona: „Ég held að ég sé mjög misskilin“ – Barnæskan var ekki alltaf auðveld

Gréta tónlistarkona: „Ég held að ég sé mjög misskilin“ – Barnæskan var ekki alltaf auðveld
Mynd/skjá­skot

Í við­tali Vikunnar var rætt við tón­list­ar­kon­una Grétu Karen Grét­ars­dóttur. Gréta ólst upp hjá ein­stæðri móður sem veitti henni ást­ríka æsku, en hafði sinn djöful að draga, alkó­hól­isma.

Barn­æskan var ekki alltaf auð­veld og Gréta seg­ist að mörgu leyti hafa verið umönn­un­ar­að­ili móður sinnar, á meðan því hefði auð­vitað átt að vera öfugt farið. Óttinn var gríð­ar­legur og kvíði fylgi­fiskur hans, hún ótt­að­ist að vera tekin frá móður sinni en samt þráði hún að ein­hver myndi grípa í taumana og koma henni til bjargar.

Það má segja að þetta hafi litað allt líf Grétu sem seg­ist hafa átt erfitt með að finna hver hún nákvæm­lega er en kannski hafi hún ekki séð skóg­inn fyrir trjánum. Það eru spenn­andi tímar fram undan hjá Grétu sem vinnur nú að plötu og samdi nýverið við umboðs­mann sem upp­götv­aði Lady Gaga.

„Ég held að ég sé mjög mis­skilin,“ segir Gréta, „kannski vegna þess hvernig ég kýs að tjá mig eða ekki tjá mig. Ókunnugt fólk dæmir mig kannski út frá því hvernig ég birt­ist á sam­fé­lags­miðlum og ég hef oft fengið að heyra það eftir því sem fólk kynn­ist mér, að ég sé allt öðru­vísi mann­eskja en sú sem það hélt að ég væri.

Ég hef alltaf sagt að maður eigi ekki að dæma bók­ina eftir káp­unni. Maður veit aldrei hvað fólk er búið að ganga í gegnum. Maður er kannski ekki alltaf að opna sig og leyfa öllum að heyra og vita allt um mann. Sam­fé­lags­miðlar segja ekki alla sög­una.“

Á þeim tíma sem Gréta var að alast upp voru umgengn­is­mál barna ekki í sömu skorðum og þau eru í dag. Gréta seg­ist því til að byrja með ekki hafa farið reglu­lega til föður síns.

„Ég man að ég var alltaf rosa­lega feimin þegar ég hringdi í hann og spurði eftir Grétari,“ segir hún og brosir að minn­ing­unni. „Hann var líka að verða frægur með Stjórn­inni á þessum tíma. Hann fór svo að vera með konu sem hann var með í sautján ár. Þá fórum við að hafa meira sam­band og ég kynnt­ist hálf­systk­inum mínum pabba megin.

Þegar ég fór að fara meira til pabba tóku hann og konan hans eftir því að það væri eitt­hvað ekki alveg eins og það ætti að vera og fóru að spyrja mig út í heim­il­is­lífið hjá mömmu. Ég sagði að allt væri í lagi, ég vildi auð­vitað ekki koma mömmu í vand­ræði, en þau sáu að það væri ekki allt í lagi og báðu mig um að láta sig vita ef mamma væri að drekka og þau gætu eitt­hvað gert.

Síðan missti mamma vinn­una í bank­anum og fór í með­ferð. Það þurfti nokkrar með­ferðir til áður en hún náði að verða edrú en það var svo merki­legt að ég varð alveg ofboðs­lega reið þegar það loks­ins gekk. Ég veit að það hljómar ótrú­lega, ég hefði átt að verða ofboðs­lega ham­ingju­söm. En ég var svo reið út í hana af því að hún sagði aldrei fyr­ir­gefðu,“ segir Gréta við blaða­mann Guðrún Óla Jóns­dóttur og gerir stutt hlé á máli sínu.

Gréta seg­ist stolt af því að hafa aldrei gef­ist upp, þótt hún við­ur­kenni að hafa vissu­lega oft bognað. Þegar henni hafi liðið sem verst hafi minn­ingin um móður sinn hvatt hana til að halda áfram.

„Auðvitað hefur þetta oft verið mjög erfitt og ég hef stundum verið nálægt því að gef­ast bara upp. En þá hefur komið upp sú hugsun hjá mér að líf mömmu væri þá bara til einskis. Allt sem hún gekk í gegnum væri fyrir bí og allur sárs­auk­inn sem hún upp­lifði, og ég upp­lifði, hefði þá verið til einskis. Mér finnst ég líka hafa lifað draum okkar beggja, mamma átti sér alltaf þann draum að verða óperu­söng­kona og búa erlendis en hafði ekki tök á að láta hann ræt­ast.“ Þannig ég ákvað að gera það fyrir okkur báðar.

Hægt er að lesa við­talið í heild sinni í Vikunni.

Heimild

Guðrún Óla Jóns­dóttir. Ég er bara sú sem ég er. Vikan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu