Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hrafnkatla er heilari og miðill: „Stundum á ég bágt með að skella hreinlega ekki upp úr sjálf“

Hrafnkatla er heilari og miðill: „Stundum á ég bágt með að skella hreinlega ekki upp úr sjálf“
Hrafn­katla Val­geirs­dóttir Mynd: Aðsend

Hrafn­katla Val­geirs­dóttir skynjar ekki heim­inn á sama hátt og margir aðrir. Mannlíf ræddi við þessa skemmti­legu konu um upp­vaxt­ar­árin á Blöndu­ósi, jólin, and­legt ferða­lag hennar í kjöl­far fæð­ingar frum­burð­ar­ins og söng­heil­un­ina sem vakið hefur athygli fólks að und­an­förnu.

Hrafn­katla Val­geirs­dóttir er fædd á Blöndu­ósi árið 1982 og bjó hún þar til sex ára ald­urs en þá flutti fjöl­skyldan á Akureyri. Þar var hún í sjö ár og sneri aftur heim á Blönduós þegar hún var að byrja í 8. bekk.

„For­eldrar mínir búa ennþá á Blönduós, bróðir býr í Reykja­vík og systir í Njarðvík. Er með stúd­ents­próf frá Mennta­skól­anum í Kópavogi, Bs gráðu í hjúkr­un­ar­fæði frá Háskóla Íslands og svo byrj­aði ég í Guðfræði haustið 2020 og kláraði eina önn með stæl en fann að þetta var ekki leiðin,“ segir Hrafn­katla og heldur áfram, „ég er ein­hleyp og á fjóra drengi, er að ala upp tvær kyn­slóðir sem er rosa­lega lær­dóms­ríkt. Drengirnir eru 16, 14, 5 og 3 ára. Eldri drengirnir eiga sama pabba og yngri sama pabba, sem sagt tveir barns­feður.“

En hvernig var að alast upp á Blöndu­ósi? Ber Hrafn­katla sterkar taugar norður?

„Ég átti æðis­leg upp­vaxt­arár á Blöndu­ósi í faðmi for­eldra, systk­ina, ömmu og afa báðu megin og frænd­fólks. Áfram var svo ynd­is­legt á Akureyri í fyrstu bekkjum grunn­skóla. Byrjaði að æfa hand­bolta og frjálsar íþróttir 11 ára á Akureyri og þótti fljótt mjög efni­leg í báðum íþróttum. Þegar ég flutti heim á Blönduós var ég í því­líkum upp­gangi í bolt­anum en það logn­að­ist út mjög fljótt þar sem svo fáir voru að æfa hand­bolta á Blönduós að vart náð­ist í lið. Það reynd­ist tals­vert erfitt fyrir ung­lings­stúlk­una Hrafn­kötlu að hætta í hand­bolt­anum.

Var aðeins lengur í frjáls­unum en það logn­að­ist einnig út af í kjöl­farið og var það svona meira vegna þess að gelgjan var farin að segja all veru­lega til sín og hvorki töff lengur að vera í íþrótt­unum né að vera með vöðva. Ég ber mjög sterkar taugar til Blöndu­ósar og finnst æðis­legt að kom­ast úr höf­uð­borg­inni og kíkja norður til mömmu og pabba. Gæti þó ekki flutt á Blönduós því borg­ar­lífið hentar mér ein­hvern betur en smá­bæj­ar­lífið. Flutti suður 21 árs og búið þar síðan, fyrst í Graf­ar­vog­inum og síðan verið í Graf­ar­holt­inu frá 2007.“

Hrafn­katla er brosmild kona

Hrafn­katla skynjar heim­inn svo­lítið öðru­vísi en flest fólk en hún er bæði heil­ari og mið­ill. Hvernig byrj­aði það?

„Sem barn var ég víst rosa­lega róleg og sjálfri mér næg. Algör dund­ari segir mamma mín. Á þann hátt að ég gat setið tímunum saman kyrr með sama dótið. Varðandi næmni af ein­hverju tagi þá var hún vissu­lega til staðar frá fyrstu tíð í formi þess að ég skynj­aði mjög sterkt hvernig fólki leið hverju sinni. Á einum degi gat það verið þannig að ég upp­lifði allan til­finn­inga­skal­ann allt frá mik­illi sorg til mik­illar ham­ingju og var það þá minnst af mínum eigin til­finn­ingum heldur frá umhverf­inu.“

En svo breytt­ist allt. „Árið 2005 þegar ég er 23 ára hefst kröft­ugt and­legt ferða­lag strax eftir fæð­ingu fyrsta barns­ins míns með gríð­ar­legri opnun á and­lega heim­inn sem fólst í næm­ari skynjun á allan hátt. Ég réð alls ekki við þessa breyt­ingu og var lögð inn á geð­deild með barnið mitt í tvær vikur þegar hann var aðeins tveggja vikna gam­all.“

Hrafn­katla var fljót að ná sér en við tók erfitt tíma­bil. „Ég var fljót að ná mér en við tók eins og hálfs árs tíma­bil þar sem ég upp­lifði mig mjög eina á báti með mína skynjun í nokkur ár með þessa nýtil­komnu auknu skynjun og upp­lifði að ég gæti ekki tjáð mig um þetta við neinn. Það breytt­ist síðan heldur betur eftir að ég fór á fyrsta and­lega nám­skeiðið en það var hjá Garðari Jónssyni miðli. Þá komst ég loks­ins í kynni við fólk á sömu bylgju­lengd sem ég er ennþá í miklu sam­bandi við. Meðfram nám­skeiðum sem ég hef farið reglu­lega á í þessi 17 ár var það þannig að ýmis verk­efni í líf­inu sem reyndu á opn­uðu meira og meira inn á teng­ing­una við and­ans heim­inn. Má þar nefna lífs­reynslur eins og skiln­aði, ofbeldi, and­lega van­líðan og örmögnun.“

Þegar blaða­maður Mannlífs spyr Hrafn­kötlu um hennar stærstu sigra á lífs­leið­inni var hún fljót að svara. „Þessu er fljótsvarað. Að ganga með og koma fjórum börnum í heim­inn eru algjör­lega það magn­að­ast sem ég hef upp­lifað. Stærsti sigur er teng­ist and­legu þró­un­inni er að umbreyta hroka sem ég bar með mér í algera auð­mýkt.“

En nú er að koma jól og þá verður maður að spyrja hvort hún sé jóla­barn.

„Ég var gríð­ar­lega mikið jóla­barn þegar ég var yngri og fékk að fara til ömmu og afa á Blöndu­ósi um leið og jóla­fríið hófst til þess að undi­búa jólin með ömmu, skreyta, baka og pússa silfrið. Eftir að þau fóru yfir í and­ans heim­inn hafa jólin aldrei verið söm en urðu mjög ánægju­leg eftir að börnin fóru að koma í heim­inn.“

Hrafn­katla í nátt­úr­unni


Blaða­maður Mannlífs tók eftir tali Hrafn­kötlu um „Hinn fjólu­bláa loga“ á Facebook og vildi endi­lega fá útskýr­ingu á því fyr­ir­bæri.

„Ég miðla meist­ara sem er með­limur í Helgi­stjórn jarðar. Hún er nokkuð þekkt hér á jörð­inni innan þess sem kall­ast Guðspeki. Innan hennar eru upp­stignir meist­arar sem hafa gengið á jörð­inni líf eftir líf í gegnum miklar þján­ingar og nið­ur­læg­ingu af ýmsu tagi og náð svo­kall­aðri upp­stign­inu. Hann kallar sig Meistara R eða Greifann af St. Germain. Fjólu­blái log­inn táknar 7. geisla sem stendur fyrir Umbreyt­ingu og Meistari R stýrir þeim geisla. Meistari R er í for­svari fyrir Gull­gerð­ar­list­ina (E: alchemy) þar sem m.a. er verið að breyta and­legum sárs­auka í reynslu sem nýt­ist ein­stak­lingnum til góðs þannig að hann geti nýtt sárs­auk­ann til að hjálpa öðrum. Líkt og að breyta málmi í gull.“

Hrafn­katla tekur Titanic á þetta

Mjög áhuga­vert svo ekki verði meira sagt. En nú bíður Hrafn­katla ekki aðeins upp á hefð­bundna miðlun og heilun heldur einnig upp á eitt­hvað sem kall­ast söng­heilun sem hefur verið að vekja athygli. Hvað í ósköp­unum er söng­heilun?

„Ég hef verið sísyngj­andi frá fæð­ingu nán­ast. Rosalega fljót að pikka upp bæði lög og texta. Fór tvær annir í söng­nám hjá Gísla Magna. Fyrir um þremur árum fara söng­ur­inn og heil­unin að tengj­ast. Fyrst með notkun laga sem eru til og eftir aðra, síðan fara að koma lög og textar í flæð­inu sem eru per­sónu­leg til hvers og eins kúnna. Einnig oft á tíðum alls konar tónar og hljóð, sum hver mjög furðu­leg og hrein­lega eins og það séu hljóð­færi á svæð­inu. Stundum á ég bágt með að skella hrein­lega ekki upp úr sjálf,“ segir hún og hlær. Hún heldur svo áfram. „Enginn heil­un­ar­tími er eins og ekk­ert undi­búið. Ekki frekar en þegar ég er að miðla þá er ekki hægt að und­ir­búa neitt því það flæðir bara í gegnum mig orkar eða upp­lýs­ingar sem eru til við­kom­andi. Í söng­heil­unni er tíðnin í söngnum notuð til heil­unar á bæði efn­is­lega og and­lega lík­am­anum. Tíðnin er stillt eftir því hvað hentar við­kom­andi og hvað er verið að vinna með hverju sinni.“

Skemmti­legt greini­lega. En að lokum, hvað ber fram­tíðin í skauti sér? Þá meina ég bara hjá þér og þínum, ekki hjá þjóð­inni allri eins og þegar völva Vikunnar er spurð. 

„Sinna hlut­verk­inu sem ég valdi mér áður en ég kom í þetta jarð­líf. Koma börn­unum mínum vel á legg þannig þau upp­lifi sig sjálf­stæð og séu fær um að standa vel og styrk á eigin fótum. Við ætlum að njóta lífs­ins i botn saman. Þeir fá að velja sína leið hver fyrir sig og munu fá fullan stuðn­ing þó að þeir mis­stígi sig eða velja hrein­lega allt aðra leið. Eins líka að vera til staðar fyrir fólk sem þarf á minni þjón­ustu að halda er kemur að heilun og miðlun.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una