Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Dóttir Möggu Frikka smituð af Covid: „Ég er búin að reyna að smitast en ekkert gengur“

Dóttir Möggu Frikka smituð af Covid: „Ég er búin að reyna að smitast en ekkert gengur“

Bar­áttu­konan og rit­stýran Margrét Frið­riks­dóttir hefur síð­ustu daga verið að reyna að smit­ast af Covid-19 en ekk­ert gengur. Yngri dóttir hennar er smituð og hefur Margét reynt allt til að smit­ast af dóttur sinni, en án árang­urs.

Í sam­tali við Mannlíf segir Margrét að dóttir hennar hafi fundið fyrir smá haus­verk í tvo daga vegna veirunnar. Meiri hafi ein­kennin ekki verið. „Hún er orðin góð fékk smá haus­verk í tvo daga og búið,“ segir Margrét.

Aðspurð hvers vegna hún reyni nú allt til að smit­ast af Covid segir Margét ástæð­una vera þá að hana langi í mótefnið í lík­ama sinn. „Merki­leg­ast er að ég er búin að bera reyna smit­ast en ekk­ert gengur og eldri stelpan mín smit­ast ekki heldur, erum allar óbólu­settar. Ég er einmitt búin að vera drekka úr glas­inu hennar og láta hana anda ofan í mig en ekk­ert gengur.“

Margrét hefur skráð sig í alþjóð­lega sam­an­burð­ar­rann­sókn þar sem reynt verður að finna út hvor hóp­ur­inn er betur varður gegn kór­ónu­veirunni, bólu­settir eða óbólu­settir. Varla þarf að taka það fram að Margrét til­heyrir síð­ari sam­an­burð­ar­hópnum enda hefur hún lengi talað gegn bólu­setn­ingum hér á landi gegn veirunni skæðu.

Til að berj­ast gegn sótt­varn­ar­að­gerðum og bólu­setn­ing­unum stofn­aði Margrét vef­svæðið frettin.is sem á dög­unum hlaut skrán­ingu sem fjöl­mið­ill. Hún tekur nú þátt í þess­ari alþjóð­legu rann­sókn og sam­kvæmt henni má hún alls ekki láta bólu­setja sig gegn Covid-19.

Hjarta­skurð­lækn­ir­inn Tómas Guð­bjarts­son er hins vegar ekki par hrif­inn af hegðun Margétar. Hann segir hana á leið í ein­hvers konar harakiri-leið­angur sem stofni ekki aðeins hennar lífi í hættu heldur margra ann­arra.

Eftir frétt Mannlífs birti Margrét svo færslu á Facebook þar sem hún fór nánar yfir veik­indi dóttur sinnar:

„Kæru vinir ég tel nauð­syn­legt að tjá mig um það sem hefur gerst á heim­il­inu þessi jólin, en þannig er mál með vexti að vin­kona dóttur minnar kom í heim­sókn þann 22. des­em­ber og hringdi svo á jóla­dag og til­kynnti okkur að hún hefði greinst jákvæð með Covid. Dóttir mín var svo farin að finna fyrir ein­kennum um kvöldið þannig ég fór og keypti hrað­próf fyrir okkur mæðgurnar þrjár. Við tókum allar test og yngri stelpan mín grein­ist jákvæð en við nei­kvæðar, ég tók svo annað test dag­inn eftir og þá er sú yngri aftur jákvæð en ég og eldri dóttir mín aftur nei­kvæðar.

Við pönt­uðum því tíma fyrir stelpuna í PCR próf á Suð­ur­lands­braut. Ég hafði sam­band við net­spjallið á Covid.is og sagði þeim frá þessu og spurði hvort ég þyrfti að gera ein­hverjar ráð­staf­anir hér á heim­il­inu en var svarað að þar sem við grein­umst ekki jákvæðar og ekki með nein ein­kenni þá þyrftum við ekki að koma í PCR próf. Ég fór svo með stelpuna í hrað­prófið þann 27. des­em­ber og um kvöldið kom jákvæð nið­ur­staða.

Dóttir mín hefur haft mjög væg ein­kenni hún fékk haus­verk í tvo daga en engan hósta eða hita. Vægt verkja­lyf dugði til að slá á haus­verk­inn. Ég hef ekki farið leynt með það að ég er ekki bólu­sett en ég vil endi­lega fá mótefnið sem er sam­kvæmt vís­ind­unum lang­best og miklu betra en bólu­setn­ing. Ég reyndi því að smit­ast af dóttur minni með því að drekka úr glas­inu hennar og við vorum ekk­ert að passa okkur hér á heim­il­inu, spil­uðum hér við borð­stofu­borðið og lét hana anda oní mig. Ekkert gekk og mér hefur ekki tek­ist að smit­ast en þá en er búin að taka þrjú hrað­próf og er ein­kenna­laus.

Þetta kemur mér kannski ekki mikið á óvart því ég hef aldei á ævi minni fengið flensu­vírus eins og t.d Inflú­ensu, ég þekki ekki að fá hita, bein­verki, háls­bólgu og þers háttar eins og margir þekkja, ef samt oft umgeng­ist fólk með flensu bæði á meðan og rétt áður þegar það er mest smit­andi en aldrei hef ég smit­ast. Þetta virð­ist vera ætt­gengt því faðir minn var eins, hann fékk aldrei flensu á þeim 62 árum sem hann lifði.

Stelpan mín er orðin hress núna, þannig þessi svoköll­uðu “hræði­legu” Covid veik­indi sem hefur sett þjóð­fé­lagið á hlið­ina síð­ast­liðnu tvö ár, var haus­verkur í tvo daga, við erum allar óbólu­settar og tel ég galið að bólu­setja börn við þess­ari vægu flensu eins og raun ber vitni, því flestir vita að börn og heil­brigt fólk er almennt ekki að veikj­ast illa.

Óska ykkur öllum gleði­legs nýs árs, með von um að betra og bjart­ara ár taki við og hætt verði þessum hræðslu­á­róðri sem hefur valdið mörgum miklum skaða, kvíða, þung­lyndi og mik­illi van­líðan og sjálfs­víg hafa auk­ist gríð­ar­lega á þessu tíma­bili. Það verður alltaf að horfa á heild­ar­mynd­ina sem mér finnst ekki gert þegar kemur að Covid flens­unni. Lifið heil og Guð blessi ykkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð