Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lækna-Tómas hraunar yfir Möggu Frikka: „Fallhlífastökk án fallhlífar er dauðans alvara“

Lækna-Tómas hraunar yfir Möggu Frikka: „Fallhlífastökk án fallhlífar er dauðans alvara“
Tómas Guð­bjarts­son læknir.

Hjarta­skurð­lækn­ir­inn Tómas Guð­bjarts­son á varla orð yfir vit­leys­unni í Margréti Frið­riks­dóttur, bar­áttu­konu gegn sótt­varn­ar­að­gerðum og bólu­setn­ingum hér á landi. Hann segir hana á leið í ein­hvers konar harakiri-leið­angur sem stofni ekki aðeins hennar lífi í hættu heldur margra ann­arra.

Skoðun sinni lýsir Tómas í nýlegri færslu á Facebook en til­efni skrif­anna er sú stað­reynd að Margrét hefur skráð sig í alþjóð­lega sam­an­burð­ar­rann­sókn þar sem reynt verður að finna út hvor hóp­ur­inn er betur varður gegn kór­ónu­veirunni, bólu­settir eða óbólu­settir. Varla þarf að taka það fram að Margrét til­heyrir síð­ari sam­an­burð­ar­hópnum enda hefur hún lengi talað gegn bólu­setn­ingum hér á landi gegn veirunni skæðu.

Sjá einnig:

Margrét Friðriks komin í alþjóða­rann­sókn óbólu­settra: „Hlakka til að sjá nið­ur­stöð­una“

Til að berj­ast gegn sótt­varn­ar­að­gerðum og bólu­setn­ing­unum stofn­aði Margrét vef­svæðið frettin.is sem á dög­unum hlaut skrán­ingu sem fjöl­mið­ill. Í færslu á Facebook til­kynnti hún um rann­sókn­ina sem hún tekur nú þátt í og sam­kvæmt henni má hún alls ekki láta bólu­setja sig gegn Covid-19.

Tómasi líst afar illa á þetta nýjasta verk­efni Mar­grétar, eins og sjá má á færslu lækn­is­ins:

„Fall­hlífa­stökk án fall­hlífar er dauð­ans alvara.

Það er ótrú­legt að sjá ungt fólk taka þátt í bull­rann­sókn þar sem bera á saman veik­indi bólu­settra og óbólu­settra við Covid-19. Nið­ur­staðan er álíka aug­ljós og ef borið væri saman hvort fall­hlífar fyr­ir­byggi dauða eða ekki þegar stokkið er út úr flug­vél í mik­illi hæð. Reyndar hefur aldrei verið gerð slembuð sam­an­burð­ar­rann­sókn á nota­gildi fall­hlífa til að fyr­ir­byggja dauða við fall­hlífa­stökk – enda erfitt að finna fólk í sam­an­burð­ar­hóp.

Sumir óbólu­settir virð­ast hins vegar lemja hausnum við stein­inn og bjóða sig fram í ein­hvers konar harakiri; til­raun þar sem þeir stofna ekki aðeins eigin heilsu í voða – heldur einnig vel­ferð ann­arra. Ólíkt fall­hlífum, liggja hins vegar fyrir mjög vand­aðar rann­sóknir á jákvæðum áhrifum bólu­setn­inga við Covid-19. Því miður hlakka ég ekki til að sjá nið­ur­stöð­una úr þessu fall­hlífausa fall­hlífa­stökki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi