Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Deilt innan Félags kvenna í atvinnurekstri: Svanhildur í vörn fyrir Loga: „Varstu í herberginu?“

Deilt innan Félags kvenna í atvinnurekstri: Svanhildur í vörn fyrir Loga: „Varstu í herberginu?“

Deilur hafa sprottið á sam­skipa­miðli Félags kvenna í atvinnu­rekstri vegna aðildar Loga Bergmann Eiðs­sonar að máli Vítalíu Lazareva sem sakar fjöl­miðla­mann­inn um að að hafa mis­boðið sér kyn­ferð­is­lega á hót­el­her­bergi í Borg­ar­firði. Logi birti til­kynn­ingu á Facebook-síðu sinni þar sem hann sagð­ist sak­laus af því að hafa brotið á Vítalíu en við­ur­kennir þó að hafa gengið inn á Vítalíu og ást­mann hennar, Arnar Grant, á hót­el­her­bergi þeirra og þannig „farið yfir mörk í einka­líf­inu“ eins og hann orð­aði það. Þegar litið er á þann ara­grúa fólks sem líkar við færslu Loga og sýnir þannig stuðn­ing sinn, má sjá margar þekktar per­sónur.

Sigríður Hrund Pét­urs­dóttir er ein þeirra sem lík­aði við færsl­una í gær en hún er for­maður  Félags kvenna í atvinnu­líf­inu (FKA). Sigríður hefur nú dregið „like“ sitt til baka.
Ólga er innan félags­ins vegna stuðn­ings hennar við mein­tan ger­anda en Sigríður Hrund hefur nú tekið til baka þum­al­inn við yfir­lýs­ingu Loga.

„Mér þætti betra að for­mað­ur­inn okkar væri ekki að taka opin­bera afstöðu með manni á Facebooksíðu sinni sem verið er að saka um að fara yfir mörk konu. Þetta er alveg til þess fallið að vekja athygli og nei­kvæðum sjónum að félagi okkar. Ást og friður,“ skrifar einn af með­limum félags­ins og birtir skjá­skot af stuðn­ings­þumli Sigríðar Hrundar.

Eig­in­kona Loga, Svan­hildur Hólm Vals­dóttir er með­limur í félag­inu. Hún kemur Loga til varnar og svarar þessum pósti og býður konum sem þurfa að ræða málið að hafa sam­band við sig per­sónu­lega. „Sælar. Ég þekki til máls­ins. Ef ein­hverjar hér vilja ræða það við mig er þeim vel­komið að hafa sam­band.“

Harpa nokkur spyr Svan­hildi; „Varstu í her­berg­inu?“

Svan­hildur svarar um hæl. „Ég ætla ekki að ræða þetta á þessum nótum hér, en ef þú vilt heyra í mér per­sónu­lega er ég alveg til.“

Hildur svarar Svan­hildi og segir sína skoðun. „Mér þykir leitt að þú skulir þurfa að standa í þessu Svan­hildur, stórt knús til þín. En það breytir ekki því að sem félag og sem frontur á félagi, þá getum við ekki leyft okkur að taka afstöðu á móti þolendum í slíkum málum, eða það er mín skoðun í það minnsta.“

Svan­hildur svarar; „Takk, og mér finnst ekki heldur að sam­tök yfir­leitt eigi að gera það.“

Þegar litið er svo yfir þau sem líkað hafa við yfir­lýs­ingu Loga má sjá þó nokkra þjóð­þekkta Íslend­inga.

Sjálf­stæð­is­menn eru áber­andi en þar ber helst að nefna Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur, Hannes Hólm­stein Giss­ura­son, Katrínu Atla­dóttur, Davíð Þor­láks­son og Sigurð Kára Krist­jáns­son.

Þá má einnig sjá Ingólf Þór­ar­ins­son, eða Ingó Veðurguð eins og hann er kall­aður, á list­anum sem og Nönnu Kristínu Tryggva­dóttur en hún er ein af for­svars­konum félags­ins Konur eru konum bestar, sem styrkt hefur ýmsar stofn­anir sem koma að mál­efnum kvenna. Þar ber helst að nefna Kvenna­at­hvarfið og Stígamót.
Inga Lind Karls­dóttir og Hafrún Krist­jáns­dóttir, sál­fræð­ingur og einn höf­unda úttekt­ar­skýrslu ÍSÍ um ofbeld­is­mál, hafa einnig líkað við færslu Loga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
InnlentMetoo

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi