Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Glowie sagði engum frá brotinu: „Því mér fannst ég hafa gert eitthvað rangt“

Glowie sagði engum frá brotinu: „Því mér fannst ég hafa gert eitthvað rangt“
Glowie/skjá­skot

„Það er dálítið kald­hæðn­is­legt að segja frá því að þátt­ur­inn Law & Order: Special Victims Unit var í gangi í sjón­varp­inu þegar hann kom heim til mín, en ég horfði mikið á þá þætti á þessum tíma. Hann byrj­aði að snerta mig og ég var bara í þeirri stöðu að ég vissi ekki alveg hvað ég átti að gera, ég var með rosa­lega lítið sjálfs­traust og fannst ég ekki geta sagt nei þótt ég vildi það.“

Söng­konan Sara Pét­urs­dóttir, betur þekkt sem Glowie, opnar sig um í hjart­næmu við­tali í Vikunni þegar hún var beitt kyn­ferð­is­of­beldi árið 2014. Þar lýsir hún því hvað það tók hana langan tíma að átta sig á því að brotið hafði verið gegn henni og hvernig hún ákvað að hafa sam­band við ger­anda sinn til að segja honum hvað hann hafði gert.

„Þetta er ekki alltaf eins og maður sér í bíó­mynd­unum eða sjón­varps­þátt­unum. Þess vegna verður sjálfs­á­sök­unin eftir á mikil því maður fer að setja sök­ina á sjálfan sig í stað­inn fyrir að setja sök­ina á ger­and­ann. Svo gerði hann þetta aftur nokkrum mán­uðum seinna.“

Það var í jan­úar 2014 sem hún og strákur, sem var aðeins eldri en hún, ákváðu að hitt­ast heima hjá henni. Þau höfðu hist einu sinni áður. Þau ætl­uðu að horfa saman á bíó­mynd.

Glowie segir að margir trúi því að í slíkum aðstæðum bregð­ist fólk við með því að verja sig, öskra eða berj­ast. En það er ekki alltaf þannig.

„Því mér fannst ég hafa gert eitt­hvað rangt. Pældu í því! Mér datt ekki í hug að nefna þetta við þau því ég var svo viss um að þau yrðu reið. Þarna kemur aftur hvernig þol­and­inn veltir sök­inni yfir á sjálfan sig, en ekki ger­and­ann.“

Glowie sagði engum frá brot­inu fyrr en hún kynnt­ist núver­andi kærasta sínum í ágúst árið sem brotið var gegn henni. Þá hafi hún líka áttað sig á því að hún hafði orðið fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Hún rifjar upp að hún hafi ótt­ast að segja for­eldrum sínum frá brot­inu því hún ótt­að­ist við­brögð þeirra.

Hún hafði haldið að henni myndi líða betur að koma þessu frá sér, og ræða við ger­and­ann en það varð ekki svo.

„Versta var að ég hélt að mér myndi líða eitt­hvað betur við að koma þessu frá mér en mér leið bara enn verr og varð eig­in­lega bara enn þá reið­ari. Það tók tíma að vinna úr reið­inni, mér fannst mjög órétt­látt að ég væri að díla við alla þessa erf­ið­leika og eft­ir­köst eftir þetta ofbeldi á meðan hann héldi bara áfram með sitt líf án þess að gera sér neina grein fyrir afleið­ingum gjörða sinna.“

Hún hóf í kjöl­farið að vinna úr þess­ari reynslu með aðstoð sál­fræð­ings en ákvað einnig að senda ger­anda sínum skila­boð.

Hún er ennþá vinna úr áfall­inu í dag og telur að þetta muni örugg­lega fylgja henni alla tíð. Sú vinna sem hún hefur verið í hefur þó skilað henni því í dag að hún er búin að finna sjálfa sig aftur hægt og rólega og finnst hún aftur geta verið hún sjálf og passar að virða mörk sín.

„Um leið og maður fattar að þetta var rangt þá verður maður reiður og vill fá ein­hverja lokun, mig lang­aði að hann sæi og við­ur­kenndi að hann hefði gert eitt­hvað rangt. Ég sendi honum skila­boðin alls ekki í neinni reiði, heldur vildi ég bara skrifa honum og láta hann vita hvað hann hefði gert, það hefði ekki verið rétt og von­andi myndi hann aldrei gera þetta aftur. En hann kom alveg af fjöllum og sagð­ist ekki hafa séð þetta sem ofbeldi. „Sorry,“ sagði hann. Sorry! Sorry er ekki svar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur