Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Tveir blaðamenn með stöðu grunaðs manns vegna umfjöllunar þeirra um„skæru­liða­deild­“ Sam­herja

Lögreglan á Norður­landi eystra hefur tvo blaðamenn í stöðu grunaðs manns vegna umfjöllunar þeirra um svo­kall­aða „skæru­liða­deild­“ Sam­herja. Annar þessara blaða­manna er Aðalsteinn Kjartansson sem starfar hjá Stundinni, en miðillinn greinir sjálfur frá þessu.

Mannlíf hafði samband við Aðalstein sem sagði: „það komi á óvart hvað lögreglan virðist vera lítið að sér í fjölmiðla­lögum, en segir að öðru leyti hafa engar auka upplýsingar um þau gögn sem fjallað var um.“ Hann segir ennfremur að: „ef þetta væri ekki skrítin og alvarleg aðferð, þá væri þetta hlægilegt.“

Samkvæmt heimildum Mannlífs hyggst lögreglan senda rannsóknar­lögreglu­mann suður til að yfirheyra mennina vegna málsins og að yfirheyrslur yfir Aðalsteini séu áformaðar á mánudag.

Fram kemur að lögreglan á Norður­landi eystra telji umfjöllun miðilsins um umrædda „skæruliða­deild“ vera hegningar­lagabrot og eru blaða­mennirnir grunaðir um að hafa brotið gegn lögum um friðhelgi einka­lífsins.

„Skæruliða­deildin“ sem um ræðir var skipuð þeim Þorbirni Þórðar­syni, Örnu Bryndísi Baldvins McClure lögmanni og Páli Steingríms­syni skip­stjóra. Í fyrra greindu fjöl­miðlar frá þessum hópi og hvernig hann lagði á ráðin um umfjöllun um Samherja í fjöl­miðlum.

Sjá einnig: Blaðamannafélag Íslands: „Óverjandi að lögreglan kalli blaðamenn til yfirheyrslu“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu