Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Blaðamannafélag Íslands: „Óverjandi að lögreglan kalli blaðamenn til yfirheyrslu“

Blaðamannafélag Íslands: „Óverjandi að lögreglan kalli blaðamenn til yfirheyrslu“

Mannlíf fjall­aði í dag um mál þar sem þrír blaða­menn hafa verið boð­aðir í yfir­heyrslu í næstu viku hjá rann­sókn­ar­lög­reglu­manni Lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra. Þetta eru þeir Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, Aðal­steinn Kjart­ans­son, blaða­maður á Stund­inni og Arnar Þór Ing­ólfs­son, blaða­maður á Kjarn­anum. Þre­menn­ing­arnir hafa rétt­ar­stöðu sak­born­ings í rann­sókn á meintum brotum gegn frið­helgi einka­lífs með umfjöllun sinni um „skæru­liða­deild“ Samherja. 

Í fyrra­vor voru birtar fréttir um sam­skipti fólks sem tengd­ist Samherja með ein­hverjum hætti og til­raunir þeirra til að hafa áhrif á umræðu um fyr­ir­tækið í fjöl­miðlum. Hópurinn kall­aði sig „skæru­liða­deild­ina“ og sam­an­stóð meðal ann­ars af Örnu Bryndísi McClure, yfir­lög­fræð­ingi Samherja, Þorbirni Þórð­ar­syni, almanna­tengsla­ráð­gjafa fyr­ir­tæk­is­ins, Páli Stein­gríms­syni skip­stjóra og Jóni Óttari Ólafs­syni, ráð­gjafa og fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­manni. Ekki hefur komið fram á hvaða gögnum umfjöll­unin var byggð. Fullyrt var í fyrra­vor að síma Páls Stein­gríms­sonar hefði verið stolið og Garðar Gíslason, lög­maður Samherja, sagði að þjófn­að­ur­inn hefði verið kærður til lög­reglu. Málið nú gegn blaða­mönn­unum þremur byggir á kæru Páls Stein­gríms­sonar. 

Alvarlegt mál

Þórður Snær segir í sam­tali við Frétta­stofu RÚV að honum hafi komið mjög á óvart að fá sím­tal fyrir um tveimur tímum þar sem hann var boð­aður í yfir­heyrslu vegna gruns um brot gegn frið­helgi einka­lífs. Hann furðar sig á því að blaða­menn sæti lög­reglu­rann­sókn fyrir að hafa fengið gögn og skrifað fréttir upp úr þeim. Það sé alvar­legt mál.

Þórður Snær segir ljóst af við­brögðum við fréttum Kjarnans og Stund­ar­innar um „skæru­liða­deild­ina“ að umfjöll­unin hafi átt fullt erindi við almenn­ing. Þingmenn, ráð­herrar og ýmis hags­muna­sam­tök, þar á meðal í sjáv­ar­út­vegi hafi brugð­ist hart við þeim upp­lýs­ingum sem komu fram í frétt­unum og hafi for­dæmt vinnu­brögð Samherja. „Það er löngu búið að eyða öllum vafa um að þetta hafi átt erindi við almenn­ing,“ segir Þórður Snær. „Það er alvar­legt og stór­mál að ráð­ist sé gegn rann­sókn­ar­blaða­mönnum fyrir það eitt að segja satt og rétt frá,“ segir Þórður Snær.

Gögn sem áttu erindi við almenning

Kjarninn stendur við sína umfjöllun um „skæru­liða­deild­ina“, segir Þórður Snær. „Okkar umfjöllun byggir á gögnum. Við fórum yfir gögnin og skrif­uðum upp úr þeim hluta sem við töldum eiga erindi við almenn­ing,“ segir Þórður Snær. Og bætir við að eng­inn hafi véfengt frétt­irnar. Þá hafi eng­inn þeirra sem átti í þeim sam­skiptum, sem eru grunn­ur­inn að frétt­unum, haft sam­band og sagt að ekki væri rétt eftir haft. Enginn þeirra gaf kost á við­tali.

Snýst um hlutverk blaðamanna í lýðræðissamfélagi

„Þetta er risa­stórt mál og snertir miklu fleiri en blaða­menn­ina sem skrif­uðu frétt­irnar. Þetta snýst um hvernig við skil­greinum rétt blaða­manna til að þjóna sínu hlut­verki í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi,“ segir Þórður Snær.

Norð­lenskur rann­sókn­ar­lög­reglu­maður kemur til Reykja­víkur í næstu viku til að yfir­heyra Arnar og Aðal­stein. Þórður verður yfir­heyrður viku síðar.

Tilkynning frá Blaðamannafélagi Íslands

„Varðandi ákvörðun lög­regl­unnar á Norð­ur­landi að kalla þrjá blaða­menn til yfir­heyrslu vegna gruns um brot gegn frið­helgi einka­lífs­ins í tengslum við frétta­flutn­ing um skrímsla­deild Samherja hef ég þetta að segja sem for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands:

Á þessum tíma­punkti er ekki ljóst nákvæm­lega um hvað blaða­menn­irnir þrír, Aðal­steinn Kjart­ans­son á Stund­inni, Arnar Þór Ing­ólfs­son, blaða­maður Kjarnans, og Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, hafa unnið sér til saka til þess að verð­skulda stöðu sak­born­ings við rann­sókn lög­regl­unnar á Norð­ur­landi.

Þeim hefur verið sagt að þeir séu grun­aðir um brot gegn frið­helgi einka­lífs­ins með skrifum á fréttum unnum upp úr gögnum sem sýndu sam­skipti fólks tengdu Samherja, sem kall­aði sig skrímsla­deild. Enginn hefur véfengt þessar fréttir og Samherji hefur síðan beðist afsök­unar á því fram­ferði sem þar var lýst.

Það er óskilj­an­legt og í raun mjög alvar­legt að lög­reglan á Norð­ur­landi hafi ákveðið að kalla þrjá blaða­menn til yfir­heyrslu vegna þess eins að þeir skrif­uðu fréttir upp úr gögnum sem þeir höfðu undir höndum. Það sé grund­völlur starfs blaða­manna að vinna úr gögnum sem þeim ber­ast. Lög­reglan kallar hér blaða­menn til yfir­heyrslu með rétt­ar­stöðu grun­aðs um að hafa brotið gegn frið­helgi einka­lífs­ins. Hvenær sem gögn eru þess eðlis að þau gætu talist sem brot gegn frið­helgi einka­lífs­ins þarf blaða­maður að meta þau með til­liti til almanna­hags­muna og meta hvort vegi þyngra, frið­helgi einka­lífs­ins eða almanna­hags­munir.

Þegar almanna­hags­munir vega þyngra er það aldrei spurn­ing að slík gögn eigi að nota til grund­vallar fréttum, sama hvernig gögnin eru fengin. Alþjóða­stofn­anir hafa lagt á það grund­valla­r­á­herslu að gætt sé fyllstu var­kárni þegar blaða­menn eru rann­sak­aðir. Blaða­menn hafa, sam­kvæmt dómum Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins, fullan rétt til og ber í raun skylda til þess að vernda heim­ild­ar­menn sína, hvort sem upp­lýs­ingar sem um ræðir eru fengnar með lög­mætum eða ólög­mætum hætti.

Af mála­vöxtum að dæma virð­ist sem það sé ætlun lög­reglu að krefja blaða­menn um að gefa upp heim­ild­ar­menn sína. Það er bein­línis frum­skylda blaða­manna að standa vörð um heim­ild­ar­menn sína, enda er kveðið á um slíkt í lögum og að um það hafi fallið margir dómar fallið. Að auki eru vart dæmi um það á síð­ustu árum eða ára­tugum að blaða­maður sé kall­aður til yfir­heyrslu þar sem hann er kraf­inn um að veita lög­reglu upp­lýs­ingar um heim­ild­ar­menn sína, endar þykir flestum slíkt frá­leit hug­mynd og margir ára­tugir eru síðan slíkt mál fór síð­ast fyrir dóm­stóla.

Það sem er einna alvar­leg­ast í þessu máli er að lög­reglan á Akureyri virð­ist ekki átta sig á því að öll afskipti dóms­valds­ins af blaða­mönnum þurfa að vera vel rök­studd og hafa skýran til­gang og að þörfin sé rík og ganga út frá þeirri ófrá­víkj­an­legu meg­in­reglu að blaða­menn verndi heim­ild­ar­menn sína. Því er óskilj­an­legt og nær óverj­andi að lög­reglan kalli blaða­menn til yfir­heyrslu ein­göngu til þess að fá þær upp­lýs­ingar frá þeim að þeir muni ekki gefa upp heim­ild­ar­menn sína. Það má bein­línis túlka sem óeðli­leg afskipti lög­reglu af starfi blaða­manna sem tefur þá að auki frá öðrum störfum á meðan og hefur þar af leið­andi hamlandi áhrif á störf þeirra.

Evr­ópu­ráðið hefur bent á að þessu til við­bótar geti afskipti lög­reglu sem þessi af blaða­mönnum dregið úr vilja almenn­ings til þess að láta blaða­mönnum í té upp­lýs­ingar, sem hafi einnig áhrif á rétta almenn­ings til upp­lýs­inga.

Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður BÍ.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina