Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Hamfaraflóttakona úr Eyjum með ólæknandi sjúkdóm: „Bæði kerfin hafa sínar takmarkanir“

Hamfaraflóttakona úr Eyjum með ólæknandi sjúkdóm: „Bæði kerfin hafa sínar takmarkanir“
Heiða Björk við sauna­tunn­una sína í Gríms­nes­inu.

„Áskor­anir mínar eru breyti­legar frá einu tíma­bili til ann­ars. Eitt sinn var heilsa son­ar­ins mín helsta áskorun, en síð­ustu árin hefur það verið mín eigin heilsa, sem hefur verið mikil áskorun. Ég er með ólækn­andi sjúk­dóm, lungnasla­g­æð­ar­há­þrýst­ing, sem hefur skert getu mína til að starfa við það sem ég hef feng­ist við síð­ustu ára­tugi. Ég hef starfað sem leið­sögu­maður og ferð­ast með spænsku­mæl­andi ferða­menn um íslensk fjöll og firn­indi auk þess að sinna kennslu í fram­halds­skóla þar sem ég hef kennt sögu og umhverf­is­fræði.

Ég þarf samt að sníða mér stakk eftir vexti og forð­ast mikið álag og streitu

Fyrir 15 árum fór ég að finna fyrir mik­illi þreytu og mæði og gekk á milli lækna til að leita að orsök­inni. Þetta ástand var sér­lega óvenju­legt fyrir mig, sem alltaf hafði hreyft mig mikið, gengið á fjöll og hjólað í vinn­una. Það var ekki fyrr en fimm árum síðar sem í ljós kom hvað að mér amaði og ég sett á lyf sem hægðu á þróun sjúk­dóms­ins og um leið minnk­aði mæðin og þreytan. Ég þarf samt að sníða mér stakk eftir vexti og forð­ast mikið álag og streitu.

Ég fer í róleg­heita­ferðir með túristana, ekki miklar göngur eða eitt­hvað sem krefst mik­illar áreynslu. Þar til fyrir 20 árum voru með­al­lífslíkur fólks með þennan sjald­gæfa sjúk­dóm aðeins þrjú ár eftir grein­ingu, en ný lyf hafa breytt þessum lífslíkum og nú eru 10 ár frá því að ég greind­ist og ég er bara ansi góð. Ég þarf að beita öllum verk­fær­unum í nátt­úru­lækn­inga­tösk­unni til að vinna með hinum vest­rænu lyfjum sem halda sjúk­dómnum í skefjum og fylgja góðum siðum í nær­ingu og lífs­stíl og mjög mik­il­vægt er að lág­marka stress.

Ég nota jurtir, fæðu og æfingar til að vinna gegn ein­kennum sjúk­dóms­ins og óæski­legum auka­á­hrifum af lyfj­unum og hef tekið eftir því að and­legt og til­finn­inga­legt álag er verst fyrir mig. Þá hrakar mér og þarf að leggja sér­lega hart að mér til að ná mér upp aftur. Það er kannski ekki skrýtið, því sam­kvæmt ayur­veda er rót hug­ans í hjart­anu. Hugur og hjarta eru þannig nátengd og til­finn­ingar hafa bein áhrif á hjarta. Ég er einmitt rétt nýkomin heim frá Spáni, þar sem ég var á heilsu­hót­eli í ayur­veda-lækn­inga­með­ferð sem kall­ast panchakarma. Þar var ég hresst við aftur eftir dýfu niður á við síð­ustu tvö ár.“

Þetta segir Heiða Björk Sturlu­dóttir, jóga­kenn­ari, nær­ing­ar­þerapisti, ayur­veda-ráð­gjafi, sagn­fræð­ingur, umhverf­is­fræð­ingur, öku­leið­sögu­maður og kenn­ari. Mannlíf heyrði í Heiðu og fékk að fræð­ast um nátt­úru­lækn­ing­arnar, lífið og jógað.

Húsið fór á bólakaf í vikur og ekki hægt að grafa það upp

Heiða seg­ist vera ham­faraflótta­kona úr Eyjum. Hún var á sjötta ári þegar gaus þar árið 1973 og fjöl­skyldan end­aði í Við­laga­sjóðs­húsi í Mos­fells­bænum þar sem mynd­að­ist Vest­mann­ey­inganý­lenda. Húsið fór á bólakaf í vikur og ekki hægt að grafa það upp og lappa upp á það, eins og raunin var með mörg önnur hús. Það hefur senni­lega ýtt undir að for­eldr­arnir fóru aldrei aftur til baka, heldur komu sér fyrir „uppi á landi“ og bjuggu sér þar til nýtt líf.

„Þar sem ég ólst upp í Mos­fells­bænum fór ég að sjálf­sögðu að vinna við garð­yrkju að Reykjum, taka upp rófur á sumrin, vinna á Álafossi í lop­anum og síð­ast en ekki síst að vinna við umönnun sjúkra á Reykja­lundi, sem átti sér­lega vel við mig. Enda var og er Reykja­lundur ein­stök vin í skjóli Helga­fells­ins og umvaf­inn skógi og með svo góðan anda inn­an­borðs.

Á Reykja­lundi vann ég sam­hliða námi bæði í fram­halds­skóla (Mennta­skól­anum við Hamra­hlíð) og síðar á háskóla­ár­unum. Þetta var nán­ast fjöl­skyldu­vinnu­staður, því þarna vann móðir mín líka árum saman sem sjúkra­liði og annar bróðir minn vann þar lengi í sölu­deild.

Ég var mikil íþrótta­stelpa, þótt það hljómi ótrú­lega í eyrum margra kunn­ingja og sam­starfs­manna í dag. Enda er ég þekkt fyrir það í dag að vita sjaldn­ast hvenær er t.d. HM, ólymp­íu­leikar eða Íslands­meist­ara­mót í ein­hverju og þekki enga lands­liðs­menn með nafni, nema síð­ustu mán­uði vegna me-too … öhömm. En á mínum yngri árum keppti ég mikið í frjálsum íþróttum og hand­bolta og náði svo langt að vera boðið að æfa með lands­lið­inu í hand­bolta. Ég mætti á eina eða tvær æfingar, en gafst þá upp á alvör­unni og hætti í íþróttum, enda orðin tví­tug og áhuga­málin orðin önnur. Ég var mikið að grúska í alls kyns heim­speki og þá úr öllum áttum; grískri heim­speki, heim­speki Aust­ur­landa, jóga-heim­speki,  að lesa um árur og fyrri líf og ég veit ekki hvað. Um leið hafði ég mik­inn áhuga á öllu gömlu, að lesa um fyrri tíma í sagn­fræði­ritum og klæða mig í gam­al­dags og skrýtin föt úr versl­un­unum Fríðu frænku og Laura Ashley.“

Íhugaði með áttræðri vinkonu sinni

Casa Rural Ahora, heilsu­setrið í fjöll­unum vestur af Malaga. Á slök­unar- og heilsu­nám­skeiði.
Ég hef í raun alltaf haft mikla þörf fyrir ein­veru

Tvítug fór hún að læra inn­hverfa íhugun með vin­konu sinni átt­ræðri, sem hún var heim­il­is­hjálp hjá. Þær not­uðu þessa hug­leiðslu­að­ferð báðar í tals­verðan tíma á eftir og fundu hvað hug­leiðslan gerði þeim gott. Heiða seg­ist alltaf hafa verið mikil ævin­týra­mann­eskja og haft gaman af því að skondr­ast eitt­hvert ein eða reyna eitt­hvað nýtt. Henni datt í hug að taka sér hlé úr sagn­fræði­námi til þess að vinna eitt ár sem kenn­ari í heima­vist­ar­skóla í Svarf­að­ar­dal, sem hún segir að hafi verið stór­kost­leg reynsla. Hún hefur oft ferð­ast ein til Spánar í mála­skóla, til að vinna við barnapössun eða ganga Jak­obs­veg­inn. Hann gekk hún t.d. ein sum­arið 2006 og segir það hafa verið frá­bæra upp­lifun. Hún kynnt­ist þar fjöl­skrúð­ugri flóru af fólki, en fékk um leið heil­mik­inn tíma í að ganga ein og hugsa, hnusa af nátt­úr­unni og fylgj­ast með mann­líf­inu. Sumarið á eftir gekk hún sömu leið með æsku­vin­kon­unum og segir það hafa verið ger­ó­líka reynslu – mikið fjör – en að hún hafi ekki kynnst jafn mörgu áhuga­verðu fólki, því að fólk nálgist mann síður ef maður er í hóp.

„Ég hef í raun alltaf haft mikla þörf fyrir ein­veru. Inni á milli þess sem ég baða mig í félags­skap fjöl­skyldu og góðra vina, hef ég samt mikla þörf fyrir ein­veru. Að draga mig í hlé og hafa næði og þögn með mér sjálfri. Þurfa ekki að halda uppi sam­ræðum eða almennt að tala við neinn. Ég man eftir því hvað mér fannst spurn­ingin furðu­leg, þegar ég hjólaði frá heim­ili mínu í Hraunbæ í vinn­una á Reykja­lundi, sem var svona 45 mín­útna hjóla­túr fyrir mig, en vin­kona spurði mig hvort mér leidd­ist ekki hrika­lega á leið­inni! Fyrir mér var þetta bara góð stund. Svona erum við nú öll ólík.

Þess vegna á það mjög vel við mig að búa í kyrrð­inni í Gríms­nes­inu, þangað sem ég flutti fyrir þremur árum með manni og þremur öldruðum köttum. Ég er hér ein, oft dögum saman, því mað­ur­inn vinnur sem leið­sögu­maður og fer stundum í viku­langa túra. Það á vel við mig að dunda mér hér ein heima, með köttum, fuglum og músum, og sinna hugð­ar­efn­unum.“

Greindist með góðkynja æxli í höfði

Heiða seg­ist alltaf hafa haft áhuga á nátt­úru­lækn­ingum, hafa keypt sér bók­ina Íslenskar lækn­inga­jurtir um tví­tugt og farið á sveppa­tínslu­nám­skeið og lært inn­hverfa íhugun. Þegar hún var 29 ára gömul greind­ist hún með góð­kynja æxli í höfði og fór í kjöl­farið dýpra í alls kyns nátt­úru­lækn­ingar til að reyna að stöðva vöxt­inn. Hún fór mikið í nudd, höf­uð­beina- og spjald­hryggs­jöfnun, spáði í nær­ingu og leit­aði í hug­leiðslu og jóga. Allt þetta gerði að verkum að henni leið betur, en æxlið hélt áfram að vaxa og á end­anum var það fjar­lægt með skurð­að­gerð í Svíþjóð.

„Lof sé guði fyrir vest­ræn lækna­vís­indi, en stundum eru þau það eina sem virkar. Ég er þannig mikil tals­kona sam­vinnu milli heil­brigð­is­kerfa, eins og tíðkast t.d. í Sviss, Þýska­landi og Aust­ur­ríki þar sem margir eru með það góðar sjúkra­trygg­ingar að þeir fara í panchakarma-með­ferð til t.d. Indlands eða Srí Lanka og sjúkra­trygg­ing­arnar þeirra borga. Panchakarma er lækn­is­með­ferð ayur­veda-vís­ind­anna, sem notuð er þegar lík­am­inn er kom­inn í mikið ójafn­vægi. Þessi með­ferð styrkir lík­amann til sjálfs­heil­unar sem getur stutt mjög vel við lyfja- og geisla­með­ferð­irnar Vestrænu.  En stundum eru það nátt­úru­lækn­ing­arnar sem eru það eina sem virkar. Bæði kerfin hafa þó sínar tak­mark­anir.“

Sonurinn greindist með Tourette’s

Það var þó ekki fyrr en sonur hennar greind­ist, níu ára gam­all, með ólækn­andi tauga­röskun sem kall­ast Tourette´s sem hún fór á kaf í nátt­úru­lækn­ing­arnar. Þegar hann var orð­inn það slæmur að það þurfti að fara að prófa lyf, brugðu hún og barns­faðir hennar á það ráð að nota leið nátt­úru­lækn­inga. Hún segir að þau hafi vitað að oft fylgi þessum lyfjum óæski­legar auka­verk­anir og að árangur gæti dreg­ist á lang­inn meðan verið væri að prófa stærð skammta o.s.frv.

Við breyttum matar­æði og lífs­stíl, los­uðum heim­ilið við eit­ur­efni og not­uðum bæti­efni með frá­bærum árangri

„Ég fylgdi þannig bók, sem ég upp­götv­aði á net­inu, banda­rískra sam­taka hefð­bund­inna lækna og nátt­úru­lækna sem vinna saman að lækn­ingu við Tourette´s. Við fylgdum bók­inni í þaula og þeim ráðum sem þar voru gefin. Við breyttum matar­æði og lífs­stíl, los­uðum heim­ilið við eit­ur­efni og not­uðum bæti­efni með frá­bærum árangri. Fórum með dreng­inn í mark­vissa hreyf­ingu ásamt höf­uð­beina- og spjald­hryggs­með­ferð ásamt fleiru. Kipp­irnir og kækirnir sem höfðu gert honum lífið leitt voru á bak og burt eftir rúman mánuð. Ég skrif­aði grein um þessa aðferð til að fleiri gætu farið þessa leið og sú grein leiddi til þess að fjöldi fólks hafði sam­band við mig til að leita ráða og eitt­hvað var um að mæður kæmu í heim­sókn til mín til að fá að líta í skápana og sjá hvað ég not­aði af mat­vælum.

Til að verða betur fær um að hjálpa fólki vildi ég mennta mig í fræð­unum og fór í nám til Kanada, í skóla þar sem heitir Canadian College of Naturopathic Medicines, og fór þar í efna­fræði og líf­efna­fræði til að undi­búa mig undir frekara nám í nátt­úru­lækn­ingum. Ég lauk þessum for­kröfu­á­föngum, en hélt þó ekki áfram þar, því hrunið hafði gert að verkum að skóla­gjöldin ruku upp. Þess í stað fór ég í þriggja ára nám í nær­ing­ar­þerapíu, Naturopathic Nutritional Therapy, í enskan skóla, Natural Healthcare College á Englandi. Þar var kennt í lotum og því þurfti ég ekki að búa á Englandi meðan á nám­inu stóð. Þegar ég var í nám­inu í Kanada, kynnt­ist ég ind­verskum lækni sem stundar fornar lækn­ing­ar­að­ferðir Indlands.

Þegar óút­skýrð veik­indi herj­uðu á son minn, fjórum árum eftir að hann jafn­aði sig á Tourette’s, var ég stödd í Kanada og þessi ind­verski læknir tók hann í með­ferð og setti hann á mjög ein­hæft, heilandi fæði og setti honum fyrir að gera vissar jóga­æf­ingar þrisvar á dag og hreinsa melt­ing­ar­veg­inn með salt­vatns­að­ferð. Með aðferðum ind­verska lækn­is­ins losn­aði son­ur­inn loks við verk­ina og orku­leysið sem hafði hrjáð hann í nokkra mán­uði, en læknar heima höfðu reynt margt og voru orðnir ráð­þrota því ekk­ert dugði. Það má geta þess að síðan eru liðin 12 ár og syn­inum hefur varla orðið mis­dæg­urt síðan.

Hér er verið að brugga til­brigði við CCF-teið skv. ayur­veda-fræð­unum. Það örvar melt­ingu og efna­skipti.
Ayurveda-vís­indin eru svo praktísk og skemmti­leg og geta útskýrt margt

Þessi reynsla gerði að verkum að ég fór í jóga­kenn­ara­nám til að geta notað aðferðir jóga sam­hliða nær­ing­ar­þerapí­unni, enda vinnur þetta tvennt mjög vel saman. Í nær­ing­ar­þerapíu­nám­inu var örlítið fjallað um ayur­veda, ind­versku lífs­vís­indin sem eru talin elstu heil­brigð­is­vís­indi mann­kyns. Ég hreifst af ayur­veda-vís­ind­unum og ákvað síðan fyrir tveimur árum að mennta mig í þeim fræðum og fór alla leið og skráði mig í virtan skóla sem heitir Kerala Ayurveda Academy, þar sem fylgt er hefð Kerala-hér­aðs á Indlandi, en þar liggja rætur ayur­veda. Þessi skóli er með höf­uð­stöðvar og lækn­inga­stöðvar á Indlandi og rekur tvö útibú í Banda­ríkj­unum. Nú er ég í fram­halds­námi í ayur­veda-lífs­vís­ind­unum til að geta betur greint rætur veik­leika hjá ein­stak­lingum ásamt því að farið er dýpra í virkni jurta sem not­aðar eru við heilun lík­ama og hugar. Ayurveda-vís­indin eru svo praktísk og skemmti­leg og geta útskýrt margt.

Eftir að ég lærði ayur­veda horfi ég á fólk og aðstæður í kringum mig með öðrum og skiln­ings­rík­ari augum. Ég horfi á stjórn­mála­menn og finnst borð­leggj­andi að þar sé kannski kapha-týpa á ferð­inni eins og t.d. Sigurður Ingi, eða vata-týpa eins og hún Katrín Jakobs, eða pitta eins og hann Bjarni Ben. Mjög skemmti­legt. Sem dæmi get ég tekið sjálfa mig – ég er haldin óslökkvandi fróð­leiks­fýsn og nýj­unga­girni. Ég hef nán­ast alla ævi verið í ein­hverju námi – sem ég hef núna lært að stýr­ist að nokkru leyti af því að mín með­fædda lík­ams­gerð er vata – þ.e. vata-orkan er sú orka sem er ríkj­andi í mínum lík­ama og huga. Það er glíma að halda þess­ari orku í skefjum, en hún stýrir einnig hreyf­ingu og breyt­ingum sem hafa verið ansi ein­kenn­andi á minni ævi fram til þessa.“

Hefur búið á 31 mismunandi stað

Heiða og Þröstur, mað­ur­inn hennar, í jóga­ferð­inni til fjall­anna vestur af Malaga. „Erum við upp­sprettu­lind í Hrægammagljúfri þar sem við böð­uðum okkur í tæru vatn­inu.“

„Ég held að fáir toppi mig í fjölda heim­ila. Ég hef búið á 31 mis­mun­andi stað hingað til, sem minn ást­kæri eig­in­maður á erfitt með að ímynda sér, en hann er ger­ó­líkur mér í þessum þeyt­ingi og breyt­inga­gleði og hefur aðeins búið á 11 stöðum um ævina. Þessar orku­teg­undir sem stýra virkni lík­ama okkar og huga kalla ayur­veda-vís­indin vata, pitta og kapha. Allir eru með allar þrjár orku­teg­und­irnar í sér, en í mis­miklum mæli. Þær ríkja síðan í mis­mun­andi lík­ams­hlutum og lík­ams­starf­semi hjá hverjum og einum. Út frá þessu er síðan lík­ams­gerð hvers og eins skil­greind. Þannig er ayur­veda-heilsu­fræðin meira ein­stak­ling­smiðuð en önnur heilsu­vís­indi, því það er ekki það sama sem hentar hverjum og einum og alls ekki í hvaða aðstæðum sem er eða á hvaða árs­tíð sem er, svo eitt­hvað sé nefnt.

Fyrir suma virkar vel að hætta að væla og byrja að kæla, en fyrir aðra er það hrein­lega veiklandi fyrir heils­una. Eins með ketó o.s.frv.

Eins meðal getur þannig verið ann­ars eitur, eins og sagt er. Þannig er það alls ekk­ert snið­ugt að borða mikið hrásalat og hrá­fæði fyrir þá sem eru mikið vata og allra síst á vet­urna í íslenska kuld­anum. En fyrir þá sem eru mikið pitta getur það verið fínt í hit­anum á sumrin. Tísku­sveiflur í heilsu­geir­anum eru því miss­niðugar fyrir fólk. Fyrir suma virkar vel að hætta að væla og byrja að kæla, en fyrir aðra er það hrein­lega veiklandi fyrir heils­una. Eins með ketó o.s.frv.“

Núllstilla líkamann

Ayurveda-nám­skeið síð­asta sumar, þar sem legið var í gras­inu og notið Gong-tón­heil­unar í sól­inni.

Heiða seg­ist oft vera með jóga- og djúp­slök­un­ar­nám­skeið heima hjá sér í Gríms­nes­inu, þar sem hún er með jóga­tjald úti í garði, en stundum er hóp­ur­inn inni í rúm­góðri stof­unni ef veður er leið­in­legt og á vet­urna. Hún heldur reglu­leg nám­skeið í sam­vinnu við Systra­sam­lagið og í Síðumúla þar sem hún er með skrif­stofu.

Reglu­lega býður hún upp á vor- og haust­hreinsun í anda ayur­veda. Þá er fæði, jurtir og æfingar not­aðar til að leiða eitur- og úrgangs­efni út úr lík­am­anum og síðan er styrkur lík­am­ans byggður jafnt og þétt upp aftur. Þannig má segja að verið sé að núll­stilla lík­amann aftur eftir það ójafn­vægi sem hefur náð að safn­ast upp með óhollri nær­ingu og lífs­stíl. Í ayur­veda er mælt með slíkum hreins­unum einu sinni til tvisvar á ári.

Ekki hægt að forðast sársaukann endalaust

Að missa það sem okkur er kært skapar sárs­auka

„Mér hefur verið hug­leikið und­an­farið hvernig hug­ar­farið getur ann­að­hvort styrkt okkur eða veiklað. Hvaða inn­rétt­ingar við höfum valið í hug­ar­húsið okkar. Fyrir mér er lífið enda­laust hindr­un­ar­hlaup og ég reyni að forð­ast að líta á það sem sjálf­sagt mál að allt leiki alltaf í lyndi hjá mér og mínum. Lífið er ekki þannig og ef svo væri myndum við senni­lega verða leið á end­anum. En hindr­un­ar­hlaupið er þannig, að það er hindrun sem þú stekkur yfir og síðan er sléttur kafli þar sem þú brunar áfram án erf­ið­leika og síðan önnur hindrun. Maður verður að njóta sléttu kafl­anna, vit­andi að það mun koma önnur hindrun, því ekk­ert er í heim­inum eilíft eins og svo mörg aust­ræn heim­speki­kerfi benda okkur á.

Við munum aldrei vera að eilífu ung, fal­leg eða heilsu­hraust. Við erum sífellt að tapa ein­hverju, hvort sem það er æsku­þokki, heilsa, æra, starf, maki, vinir, for­eldrar og börn. Að missa það sem okkur er kært skapar sárs­auka. En við þurfum að halda áfram vit­andi að þetta er eðli til­ver­unnar. Hlutir verða til og hlutir eyð­ast. Eins og hringrás nátt­úr­unnar.

Við getum iðkað reglu­lega hug­leiðslu og hreyf­ingu og gefið lík­ama og huga fæðu sem styrkir okkur frekar en veiklar okkur

Ekki er hægt að forð­ast sárs­auk­ann enda­laust, en með því að vera und­ir­búin and­lega og sam­þykkja að það munu verða hindr­anir, getum við þjálfað okkur í að stökkva yfir þær eins auð­veld­lega og hægt er. Við getum iðkað reglu­lega hug­leiðslu og hreyf­ingu og gefið lík­ama og huga fæðu sem styrkir okkur frekar en veiklar okkur. Með góðri nær­ingu, hreyf­ingu, reglu­legri and­legri iðkun stælum við lík­ama og huga og erum betur í stakk búin til að takast á við hindr­anir og erf­ið­leika.“

Fólk leitar til hennar með meltingarkvilla, orkuleysi og kvíða

Þegar melt­ingu er kippt í lag, batnar orkan og and­leg líðan um leið
„Malaga, þar sem ég hef dvalið mikið síð­ustu ár, heilsu­bú­garð­ur­inn í fjöll­unum vestan við Malaga­borg“

Melt­ing­ar­kvillar er ansi algengir og leitar fólk mikið til hennar með hægða­tregðu, fæðu­ó­þol, brjóst­sviða og slíkt. Einnig eru margir að glíma við liða­bólgu, orku­leysi og and­lega van­líðan. Hún segir að það sé ótrú­legt hversu mikið sé hægt að bæta and­lega líðan í gegnum betri nær­ingu, enda hafa vest­ræn lækna­vís­indi núna upp­götvað áhrif þarma­flór­unnar á and­lega líðan. Þetta vissu ayru­veda-vís­indin fornu fyrir 5.000 árum og lýsa litlu ver­unum í iðrum okkar sem hafa áhrif á heil­ann og tauga­kerfið. Í ayur­veda er enda lögð mikil áhersla á ristil­heilsu í and­legum veik­indum.

„Breyting á matar­æði og lífs­stíl hefur líka margoft leitt til betri and­legrar líð­unar hjá þeim sem leita til mín. Oft er margt sem hrjáir mann­eskj­una og melt­ing er kannski eitt vanda­mál af mörgum. Þegar melt­ingu er kippt í lag, batnar orkan og  and­leg líðan um leið, því melt­ingin er mið­stöðin í lík­ama okkar þar sem orka er mynduð og öll önnur starf­semi er háð því sem þar fer fram.

Ayurveda-fræðin hafa líka reynst mér mjög vel í glímunni við ein­kenni breyt­inga­skeiðs, eins og hita­bylgjur sem koma reglu­lega yfir landið og svefn­trufl­anir. Ég veit hvað ég þarf að gera þegar sú óáran byrjar og ástandið snar­lag­ast með því að fylgja ströngu matar­æði og gera æfingar.“

Lögmálið í ayur­veda til að halda heilsu og lifa góðu lífi býður okkur að flæða með hrynj­anda  nátt­úr­unnar. Ayurveda gengur mikið út á það. Þannig erum við hluti af nátt­úr­unni og hún hefur áhrif á okkur, hvort sem það eru árs­tíðir, tími dags­ins, mat­væli, jurtir eða hugs­anir. Þannig skiptir t.d. máli hvenær við gerum hlut­ina. Það  er ekki sama hvort þú borðar hrásalat í sum­ar­hita eða vetr­ar­kulda hvenær þú ferð á fætur og að sofa. Allt hefur þetta ólík áhrif á lík­amann og hug­ann. Ef þú ferð gegn hrynj­and­anum fer dýr­mæt orka lík­am­ans í það. Rétt eins og ef þú kýst að brölta upp á móti straumnum í ánni.

Það tekur tíma að brjóta upp vana

Við vitum að eitt­hvað er óhollt og veiklar okkur, en kjósum samt að gera það

„Margir telja ekk­ert virka þegar heilsu­brestur bankar upp á, nema vest­ræn lyf og í mesta lagi sál­fræði­með­ferð, en ekk­ert meira út fyrir boxið. Aðrir eru komnir það langt að sjá að nær­ingin hefur líka heil­mikil áhrif á heilsu, en finnst samt allt tal um bæti­efni og slíkt öfga­fullt. Síðan er þeim að fjölga mikið sem nota bæti­efni mark­visst, eins og stein­efni, olíur og D-vítamín, en dettur ekki í hug að gefa hug­leiðslu eða jurtum séns. Það finnst þeim allt of langt gengið. En nú er sem betur fer að fjölga í þeim hópi sem áttar sig á og hefur fundið það á eigin skinni að hug­leiðsla, jóga­æf­ingar og jurtir hafa einnig heil­mikil áhrif á and­lega  og lík­am­lega heilsu og hlakka ég til að vinna með fólki sem til­búið er að hafa áhrif á eigin heilsu með þessum aðferðum nátt­úru­lækn­inga.

Ayurveda segir að ein helsta ástæðan fyrir veik­indum sé glæpur gegn gáfum. Við vitum að eitt­hvað er óhollt og veiklar okkur, en kjósum samt að gera það, þrátt fyrir að vita betur. Ekki nægir að taka inn pillur og von­ast til þess að lækn­ing fáist við öllu. Fólk verður sjálft að leggja sitt af mörkum, nota gáf­urnar og gera það sem þarf að gera. Lagfæra matar­æðið, hreyfa sig, hug­leiða og gera slök­unaræf­ingar. Það tekur tíma að brjóta upp vana og þess vegna er gott að taka eitt skref í einu og bæta góðum siðum hægt og bít­andi inn í dags­rútín­una. Það er kannski hægt að setja sér það mark­mið að bæta einum heilsu­efl­andi vana inn í dags­rútín­una á mán­uði.“

Hægt er að skoða vef­síðu Heiðu hér.

Heiða hefur tekið á móti hópum eins og sauma­klúbbum í dekur í Björkina. Oft eru þetta konur í sum­ar­bú­staða­ferð yfir helgi.  Þá eru gerðar léttar jóga­æf­ingar, djúp­slökun, tón­heilun og endað á kaffi, melt­ing­arte-inu magn­aða eða tur­merik latte. Heim­sóknin er aðlöguð að hverjum hópi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Létu greipar sópa í Bónus, ELKO og Kids Coolshop

Annar glæpamannanna hafði sakaferil að baki en hinn hafði ekki áður gerst sekur um þjófnað
Heimur

Segir Net­anyahu þrýsta á Trump um kjarn­orku­árás

Pólitík

Reykja­vík ætlar að snúa millj­arða­halla í afgang á aðeins einu ári

Heimur

Úkraínsk dróna­árás olli miklum eldi í rúss­neskri olíu­hreinsi­stöð

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Innlent

Innlent

Getur munað rúmum 22 þús­und krónum á umfelgun fólks­bíls

ASÍ ráðleggur fólki að óska eftir staðfestu heildarverði.
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

Fór í búð í Graf­ar­vogi en end­aði í fanga­geymslu

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu